Óðinn - 01.07.1923, Side 7

Óðinn - 01.07.1923, Side 7
ÓÐINN 55 notað íslenskar jurtir til lækninga. Oft var hans vitjað til sængurkvenna, og mun hann alls hafa tekið á móti um 500 börnum. Hefi jeg fyrir satt, að hann hafi verið yfirsetumaður með afburðum. — Iðjumaður hefur Jónas verið mikill um sína daga. Hann er einn af þeim fáu mönnum sem mega kallast afburðamenn í hvívetna. Hann hefur verið dverghagur á gull og silfur, járn og trje, og fá munu þau störf vera, tíðkuð til sveita á Islandi, er hann eigi hefur kunnað til hlítar. Opinberum störfum hefur hann gegnt til muna. T. d. var hann sýslunefndarmaður 26 ár og hreppsnefnar- maður Iengi. Sem vænta má, hefur hann ætíð verið fátækur maður af löndum og lausum aurum. En þó hefur honum auðnast að ala upp sinn mikla barnahóp, án þess að njóta nokkru sinni sveitarstyrks, og má það heita fágætt þrekvirki. En sem vita má hefur hann ekki staðið einn við það verk. Konur hans eiga drjúgan þátt í því að sjálfsögðu. Er mjer dálítið kunn- ugt, að núverandi kona hans er sjerstök dugnaðar- og gæðakona, prýðilega skynsöm og skáldmælt. Ann- ast hún börn sín og hinn aldurhnigna mann sinn með ástúð og umhyggjusemi. En hann hefur nú legið rúmfastur meir en 2 ár og getur eigi lengur í fætur stigið vegna sinakreppu. Jeg, sem rita þessar línur, hefi verið svo heppinn að dvelja um stund í návist hins margfróða öldungs, og verður sú stund mjer lengst minnisstæð. Þó að líkami hans sje nú mjög tekinn að hrörna, þá er sál hans síung, sólheið og fögur, heilbrigð og glöð í guðstrúar-öryggi. Enn kemur það oft fyrir að hugsanir hans fæðast í ljóða- gerfi. Sannast þá hið forna orðtak: »Lengi lifir í gömlum glæðum*, því Jónas í Hróarsdal hefur lengi verið að verðugu talinn með bestu ljóðsmiðum í Skagafirði, eins og Símon heit. Dalaskáld viðurkennir í skáldatali. Hann kveður svo: Ennþá }ónas uppi’ á fróni stendur, skýr með fróðleiks skemtihjal, skáldið góða í Hróarsdal. Mjer finst viðeigandi að greina hjer 3 vísur eftir Jónas og eru 2 af þeim orktar nýverið: Eymd í klaeðist auminginn, — eykst því mæðan búna. Á níræðis-aldur minn er jeg að læðast núna. Bráðum Iátinn legst jeg nár lífs frá horfinn svaki. Áttatíu’ og tvö nú ár tel jeg mjer á baki. En losni andinn líkam’ frá lífs í strandar-vogi, fús jeg landið friðar á fer í andartogi. Áður er jeg legg frá mjer pennann, finn jeg sterka hvöt hjá mjer til þess, að vekja athygli manna á því, að það gengur hneyksli næst að þessi maður skuli aldrei hafa fengið neinn viðurkenningar-vott fyrir sitt langa og margvíslega þjóðnytjastarf. Finst mjer sjálf- sögð skylda Alþingis að veita honum, í eitt skifti, sómasamlega fjárupphæð, meðan það er ekki um seinan, því það væri hluteiganda haldkvæmara en t. d. heiðursmerki fálkaorðunnar eða dannebrogsmanna, þótt hann raunar hafi til þeirra unnið flestum fremur, eins og öllum hlýtur að vera ljóst, eftir því sem nú er sagt. Svo lýk jeg máli mínu með þrem stökum, sem mjer duttu skjótlega í hug daginn eftir að jeg kvaddi gamla skáldið og lækninn í Hróarsdal: Dýrt á Jónas fræða-full, faldinn skálda-eldi. Soralaust hans gáfna-gull gelslar lífs á kveldi. Er hann borgar Bana skuld, brenna harmar sárast. Gæfudís þá, himni huld, hyr og blóði tárast. Líka hans jeg leit ei neinn lífs í kynja-dreymi. Hann er mesti minjasteinn í mínum andans heimi. Á annan dag jóla 1922. Jóh. Orn Jónsson. Sí Það verður ei táknað. Það verður ei táknað með töfrandi lögum, nje tæmt í óði snildarhögum, og ekki gjörsagt í góðskálda sögum, hið mikla sem mannssálin geymir og mannlegan anda dreymir. En þessi geislabrot guðsmyndarinnar sem gægjast um skýjarof syndarinnar, þau sýna, að eitthvað býr innar, innar, sem æðra heims lögmáli hlýðir og eflaust mun sigra um síðir. Fnjóskuv.

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.