Óðinn - 01.07.1923, Blaðsíða 15

Óðinn - 01.07.1923, Blaðsíða 15
ÓÐINN 63 því að hella vatninu þrisvar úr bátnum, öðru hvoru stóð um við á sandrifjum, því erfitt var að halda bátnum í álnum, vegna þess hvað straumurinn er harður. Um kvöldið höfðum við aðfallið á móti okkur, en ekki gat jeg sjeð hvað væri hættulegt við strauminn, það var bara erfiði í meira lagi að komast niður í Borgarnes. Nú fórum við inn Brákarsund, og gekk okkur ágæt- lega, straumurinn hafði svo lítið að segja, af því hvað báturinn var grunnsyndur. I Borgarnesi gistum við og fengum gert við brotin árablöð. Þar töluðum við við undarlegan mann, sem undraðist yfir okkur og spurði okkur spjörunum úr. Hvort við reyktum, hvort við drykkjum, hvort við tækjum í nefið? Þegar við neit- uðum þessu öllu, spurði hann, »hvort enginn skáti gerði það«. Hann spurði »hvernig við kynnum við bæjarlífið«, og sagðist sjálfur hafa átt heima í Reykja- vík; hann sagðist hata þann óvistlega bæ, þar sem sólskinið ætti erfitt með að komast gegnum rykið og reykinn. ]eg ætlaði að sannfæra hann um, að það væri þó eitthvað gott við bæinn, en það var eins og jeg byði honum hafragraut, eldaðan fyrri hluta Stein- aldarinnar. »Það sem gott er«, sagði hann »er svo lítið á móti hinu, að vel má líkja því við dropann á móti hafinu«. Hann var áreiðanlega vanur því að yfir drífa það sem hann sagði. Þegar hann kvaddi okkur, sagði hann, »já svo þið eruð úr Reykjavík, þar sem enginn nær andanum fyrir tópaksreyk, þar sem tíunda hver stúlka hefur hryggskekkju, eða snert af henni, þar sem önnur hver er máluð eins og gipsdúkka, þar sem allir ganga á silkisokkum, ef þeir hafa ráð á því, og í þröngum fötum sem helst má ekki koma neitt aukabrot í. ]eg er glaður yfir því, að hafa hitt upp- skafninga, sem hafa skafið bæjarrykið dálítið af sjer. Guð blessi ykkur!« Svo hvarf hann. Þegar byrjaði að falla út daginn eftir, lögðum við af stað og rerum út Brákarsund. Það var töluverður vindur á norðan, svo við settum upp seglið, og gekk okkur nú betur að komast út fjörðinn, en okkur hafði gengið að komast hann inn, því nú var bæði vindur og straumur með okkur. Aður en við vissum af vorum við komnir að Höfn, þar máttum við til að koma í Iand. Húsfrúin stóð á hlaðinu og veifaði til okkar. Við rendum bátnum upp í sandinn og gengum heim að bænum, þar fengum við sömu góðu viðtökurnar og samhygð yfir því, að við fengum ekki skygni á jökulinn. Þórunn sýndi okkur klútinn sem hún veifaði með, á honum stóðu þessi orð: »ísland þig elskum vjer alla vora daga«. Þarna var staddur Þorsteinn á Grund (við Akranes), við hann líkaði okkur vel. Meðal annars sagði hann: »Þó að einhverjir fari á eftir ykkur upp í Borgarnes á svona bátum, þá eruð þið góð en ekki ill fyrirmynd, þeir sem drepa sig mega þá fara«. Þegar við höfð- um verið í tvo tíma, fanst okkur tími til kominn að halda af stað. Þórunn, Þorsteinn og fleira fólk fylgdi okkur að bátnum, svo var kvatt og haldið af stað. Vindurinn var nú kominn á móti, svo að góður byr befði verið til baka. Við áttum eftir að fara um 20 km að Akranesi. Á leiðinni að Melhólma sáum við ótal seli, þeir sveimuðu í kring um bátinn, en sumir sváfu í skerjunum. Við rendum bátnum hægt að einu skerinu, læddumst að stórum hóp og stemdum mynda- vjelina, síðan æptum við upp. Þeir hrukku við og busluðu í sjóinn, með svo miklum gauragangi að ósjór varð á stóru svæði. Á skerinu hvíldum við okkur um stund og hjeldum svo áfram, nú gekk okkur bet- ur yfir Leirárvoginn en á upp eftir leiðinni, það er að segja við fórum ekki eins hart, en gátum í þess stað notið fegurðarinnar og verið óhræddir um lífið. Að Akranesi komum við um kvöldið, en vorum þá ornir svo þreyttir að við áræddum ekki að fara lengra um nóttina. Við fengum okkur gistingu á sama stað og áður. Þegar við vorum komnir í land safnaðist um okkur stór hópur af mönnum, sem vildu vita hvernig ferðin hefði gengið, við leystum úr öllum spurningum þeirra, og síðan báru þeir bátinn með okkur gegnum bæinn og niður á bryggjuna hinumegin. Við vorum búnir að róa í 2 daga, að mestu óvanir róðri, og þegar við frjettum að vjelbátur færi til Reykjavíkur morguninn eftir ákváðum við að fara með honum. Við vissuni að það borgaði sig ekki að ofþreyta sig, en þurfa á kröftum að halda. Við sváfum vel alla nóttina og vöknuðum kl. hálf átta, báturinn átti að fara kl. átta. Við klæddum okkur og gengum niður á bryggjuna, þar voru menn að skipa upp fiski, sem nefndist háfur. Þeir voru ekkert ánægðir yfir aflanum, og bölvuðu botnvörpuskipunum, sem dræpu alt ung- viðið, eyðilegðu fiskimiðin og gerðu sjómennina að eins óánægða og ósjálfstæða. Nú komu nokkrir far- þegar og þar á meðal einn hestur. Við komum bátn- um fyrir á þilfarinu, og eftir stutta stund var lagt af stað. Veðrið var inndælt, svalur norðangustur og sól- skin. Á miðri leið bilaði vjelin eitthvað smávegis, hún var komin af stað eftir hálftíma og gekk vel. Nú færðumst við nær og nær höfuðborginni og kviðum fyrir því að fá óloftið í staðinn fyrir hreina loftið ofan í lungun. ]eg saup kveljur við umhugsunina. Þegar jeg kem til bæjarins eftir lengri eða skemri útivist, sýp jeg alt af hveljur við loftbreytinguna. Aldrei finnur maður það betur, hve holt það hlýtur að vera fyrir bæjarmenn að fara í nokkra daga út í víða náttúruna,

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.