Óðinn - 01.07.1923, Blaðsíða 10

Óðinn - 01.07.1923, Blaðsíða 10
58 ÓÐIN N óhraust, hlekkjuð og sofandi þjóð. En svefninn er ef til vill bestur. — Þeir menn sem eru svo óhamingju- samir að lifa í bæjum og stunda einhverja fasta at- vinnu, fá flestir nokkra daga úr sumrinu fría. Dagana nota menn á margvíslegan hátt, flestir fá sjer nesti og nýja skó og leggja svo á stað upp í sveitirnar. Þeir sem ekki elska hreint loft og ekki vilja sjá neitt nýtt, halda sjer á rykugri mottunni og fara hvergi. — Það er ef til vill ekki frásagnar vert, þó jeg og fjelagi minn, Guðmundur H. Pjetursson, legðum á stað í sumarfrí, en af því að fólk er ekki vant því að fara á strigabátum frá Reykjavík og upp í Borgarnes, þá hefðu kann ske einhverjir gaman af að vita hvernig svoleiðis ferð gengi til. — Við fórum frá Reykjavík á »kajak« löguðum strigabát, 4 metra löngum, 70 cm þar sem hann er breiðastur, hann er gerðnr fyrir tvo menn, sem sitja í IV2 meters löngu opi, standa þá 20 cm upp úr sjó, kjöllaus er hann og þarf lag til að róa honum svo ekki hvolfi. Ararnar eru 2, hvor með tveim spöðum á endunum; þeim er haldið á lofti svo þær koma hvergi við bátinn þegar róið er. Allir, sem vissu um ætlun okkar, spáðu okku slysum og margir dauða; þarna gafst okkur því tækifæri á að sýna, hve mikil fífl við værum og það gripum við. Við fengum okkur lítið þversegl, festum »bambus«- stöng í bátinn; hún kom í stað masturs. Striga feng- um við okkur yfir opið á bátnum, á striganum voru 2 op og mátti binda hann þjett að sjer, svo minna færi af sjó ofan í bátinn. — Það er laugardagskvöld, við erum ferðbúnir, setjum bátinn á flot og setjumst síðan ofan í hann. A bryggjunni er hópur af fólki, sem ætlar að vera viðstatt þegar báturinn leggur af stað. Einhverjir í hópnum segja »góða ferð«, aðrir »þeir eru vitlausir*. Sjálfir vorum við hissa yfir þess- ari hræðslu, og að við værum vitlausir tókum við ekki til mála. Við settum því seglið upp, veifuðum til lands, sigldum út fyrir hafnarmynnið og tókum stefnu á mitt Akrafjall, sem lá fram undan eins og sofandi risahvalur. O, hvað við vorum ornir eitthvað frjálsir og þó máttum við ekki hreyfa okkur, það var sjóloftið sem fylti lungun og örfaði okkur, það eina sem við reyndum á okkur, var að stýra til skiftis með árar- blaði. Þegar við vorum búnir að sigla um 8 km, tók- um við stefnu á Andriðsey, hún liggur ytst í Hvalfirð- inum, með þeirri stefnu fengum við vindinn betur í seglið. Enn þá Ijek alt í lyndi; hefði mátt vera betra veður. I staðinn fyrir grænmálaðan vatnskút, eins og sjómenn eru vanir að hafa með sjer, höfðum við full- an poka af »appelsínum«. Um leið og þær svöluðu mjer, kendi jeg hálfvegis í brjóst um þessa litfögru suðrænu ávexti, sem höfðu flækst svona langt norður og voru svo tættir sundur til að svala, ef til vill, bráð- feigum mönnum. Þegar við vorum búnir að sitja hreyfingarlausir í 2 tíma, var ekki laust við að okkur væri orðið kalt. Andriðsey lá nú fyrir aftan okkur, en stefnan var á Akranes. Það var orðið nokkuð dimt yfir og hvergi sást í bláan himinn; blár himinn er það göfugasta sem jeg þekki og að sjá öld- urnar blálitaðar er yndislegt. Við tókum kortið upp og eftir því að dæma áttum við 7 km eftir að Akra- nesi. Vindurinn hafði aukist og var þar að auki á hlið. Seglið sem var eins rifað og það gat verið, tók- um við niður, því okkur fanst báturinn hallast helst til mikið. Við rerum því áfram í 3 km fjarlægð frá landi. Okkur hitnaði við róðurinn, en öldurnar voru orðnar nokkuð ágengar og þegar báturinn seig niður í öldudalina, fanst mjer jeg endilega þurfa að standa upp, en svo vorum við alt af komnir upp á öldu- toppinn eftir þrjú áratog. Ekki dugði að snúa að landi, við urðum að halda áfram þennan stutta spotta sem eftir var, það var að eins hressandi að fá nokkra unnarkossa og þegar við náðum að Vtra-Hólmi, höfð- um við vindinn í bakið. Við vildum flýta fyrir okkur, með því að sigla inn víkina og rifuðum seglið meir en hægt var. Um leið og við höluðum það upp reif vindurinn í það og henti bátnum til og frá, á svip- stundu sleptum við seglinu og rjettum bátinn við. Þegar við vorum búnir að binda seglið fast, rerum við áfram eins og árarnar þoldu. Oldurnar voru orðn- ar miklu krappari og nú var lítið af bátnum upp úr sjó, því öldurnar runnu látlaust yfir hann. Jeg mældi þegjandi hvað langt sund væri til lands, alt þangað til við lentum í svo nefndri »Steinsvör«. Annar vildi stefna á kirkjuna, hinn á vörina, en hvorugri stefn- unni var gott að halda. Við náðum landi án þess að skemma bátinn og þegar við litum út yfir víkina virt- ist sjórinn vera orðinn minni, — eða kann ske að okkur hafi sýnst hann svona mikill af því hvað fleyt- an okkar var lítil. Þegar við vorum búnir að vinda fötin okkar, bárum við bátinn upp og heltum úr hon- um sjónum. Ekki meira en hundraðasti partur af hverri öldu sem yfir hann hafði runnið, hafði farið ofan í hann; ýmist um samskeyti á striganum, eða um ermar og brjóst á okkur. Við vorum að eins í græn- um skátablússum, kápurnar lágu aftur í bátnum, en við gleymdum að fara í þær þegar byrjaði að gefa á. Nú gátum við hvílt okkur og athugað klukkuna, við höfðum verið 4 tíma upp að Akranesi, rúma 20 km. Nú fór að rigna og við gegnblautir fyrir, klukk- an farin að ganga þrjú. Okkur fanst því tími kominn

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.