Óðinn - 01.07.1923, Blaðsíða 18

Óðinn - 01.07.1923, Blaðsíða 18
66 ÓÐINN Hans Sigfús Bjarnarson fyrv. konsúll og kaupmaður. Hann var fæddur í Kaupmannahöfn 24. sept. 1857, en fluttist ásamt foreldrum sínum, sýslumanni. Stefáni Bjarnarsyni og Karen f. ]örgensen, til ísafjarðar 1858, er föður hans var veitt ísafjarðarsýsla. — Stúdent varð Hans Sigfús Ðjarnarson. hann 1880, en cand. phil. 1881, las Iög við Hafnar- háskóla, en hætti við laganámið, og tók próf við Lanc- hers verslunarskóla, er þá var í miklum metum. Það var meining Sigfúsar, eftir prófið að kynnast verslun í útlöndum, og fór því til Englands í þeim erindum, en þessar fyrirætlanir hans urðu að engu, aðallega vegna heimþráar. Hann hafði á stúdentsárum sínum kynst í Kaupmannahöfn geheimeetatsráði Tietgen, og formanni Sameinaða gufuskipafjelagsins hr. Koch, og gáfu þeir þessum unga manni sín bestu meðmæli, sem sýnir álit þessara miklu manna á Sigfúsi. — Hann fluttist því alfarinn til íslands og byrjaði verslun á ísa- firði 28. maí 1885. Á þeim tímum var mjög_erfitt_að byrja verslun, með því að samgöngur voru illar og engir bankar að leita til. Það reyndist því erfitt fyrir efnalitla menn að reka þá atvinnu. Tókst honum samt sem áður með hygni að koma verslun sinni í sæmilegt horf, og gætti þess jafnframt ætíð að sníða sjer stakk eftir vexti. Hann stækkaði verslun sína smátt og smátt og keypti þilskip, og rak verlun ásamt útgerð þangað til 1898. Konsúll fyrir Norðmenn og Svía varð hann 1886 og var það í 25 ár. Urðu margir til þess að sækja um konsúlsembættið, en hann var skipaður án þess að hann sækti um það. Við burtför sína úr konsúlatinu var hann sæmdur Vasaorðunni. Árið eftir að hann kom til ísafjarðar var hann kjörinn í bæjarstjórn, og mun hafa setið í henni þrjú kjörtímbil, Hann kom því til leiðar að aukaútsvörin voru hækkuð á hæstu gjaldendum bæjarins, og þá fyrst gátu orðið einhverjar framfarir í bænum, en þar var við ramman reip að draga, því þeir einir sátu í bæjarstjórn og niðurjöfnun- arnefnd, sem síst vildu hækkun útsvara. Sigfús gaf sig lítið að annari pólitík en bæjar-pólitík, jafnvel þó hann ætíð fylgdi sjálfstæðismönnum að málum, og mun það hafa komið til af því, að honum líkaði ekki póli- tíkin eins og hún var. Sigfús var gleðimaður og var oft glatt á heimili hans, en á seinni árum dró hann sig í hlje. Var vinsæll og drengur góður, og vinur vina sinna. Af systkinum hans lifa Dagmar læknir í París, Camilla kona Magnúsar sýslumanns Torfasonar og Pjetur M. Bjarnarson kaupm. Dáin eru: Þorbjörg fyrri kona Klemensar Jónssonar ráðherra, Björn sýslu- maður Dalamanna, Benedikt bakari og Þórarinn skip- stjóri, sem var búsettur í Kaupmannahöfn og er ný- lega dáinn. Sigfús var kæntur Ingeborg, dóttur Th. Torstejnsson fyrrum alþm. ísfirðinga. a & Kveðið við gamla konu. Nú ertu með nýja-brum næstum eins og vorið. Það er orðið úrelt skrum að ellin þyngi sporið. Þeim er ellin aldrei þung æðrulaust sem þreyja; sálin verður altaf ung þó annað kunni að deyja. Fnjóskur. 4

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.