Alþýðublaðið - 22.10.1963, Síða 3
WHWWHWWMWUHWWMWWWWWMMWW*WUWWWMWUWMMM*iW*iWW1
í DAG hefja Bandaríkjamenn
miklar heraefingar, og fela
hær m. a. í sér sendingu 16
þúsund hermanna og flug-
manna frá Bandarikjunum til
Þýzkalands, þar sem hermenn-
irnir taka þátt í æfingum á veg-
um NATO. Herflutningar þess-
ir taka þrjá daga.
Meðfylgjandi kort sýnir standa í eina viku. Að svo búnu
„loftbrúna” yfir Atlantshaf, en
hermennirnir verða fluttir flug
leiðis frá herstöðvum í Texas.
Aldrei áður hafa landherinn
og flugherinn í Bandaríkjunum
sent eins mikið lið rnanna yf-
ir hafið.
Heræfingarnar í Þýzkalandi
verður hergögnum bandarísku
hersveitanna komið fyrir í
vopnageymslum í Evrópu þar
sem þau verða höfð til taks ef
þeirra kann að verða þörf í
framtíðinni og síðan halda her
mennirnir aftur flugleiðis til
Texas.
Washington, 21. okt.
Iþar á meðal eldflaugar er útbúa
má með kjamlilöðum, væru á
leið til amerískra herdeilda í Ev-
rópu og á Kyrrahafssvæðinu.
IDNNEMAÞINGID
* Framh. af 16. síðu
bandinu, enda þótt þeir væru í
miklum minnihluta á þinginu, en
samkvæmt lögum Iðnnemasam-
bandsins á það að vera ópólitískt.
Pólitískt ofríki kommúnista í
stjórn sambandsins kom fram
strax í fundarbyrjun, þegar þeir
beittu sér gegn því, að fulltrúar
iðnnemafélagsins í Hafnarfirði
fengju setu á þinginu, án þess
að tilgreina nokkra ástæðu fyrir
því. Kjörbréf þeirra voru þó sam-
þykkt af meirihluta fundarmanna.
Annað var það, að inntökubeiðni
frá nýstofnuðu félagi iðnnema í
Safnið kaupir
skjaldbökuna
Reykjavík, 21. okt. — G.G.
SÚ Iandsfræga sjóskjaldbaka,
er bóndi og sonur lians fundu á
floti á Steingrímsfirði norður
fyrir eigi allöngu, var um helgina
höfð til sýnis almenningi í höfuð-
stað landsins og segir Vísir, að
færri hafi komizt að til að sjá
ltana en vildu. Skjaldbökuliróið er
nú geymt í einu fyrstihúsa bæj-
arins, en nokkurn veginu mun ör-
uggt, að Náttúrugripasafnið muni
kaupa gripinn.
bifvélavirkjun í Reykjavík fékkst
ekki tekin fyrir til afgreiðslu í
þingbyrjun. Úrskurðaði gamla
stjórnin, að inntökubeiðnin skyldi
tekin fyrir seinast á þinginu und-
ir liðnum: Önnur mál á dagskrá.
Seinni daginn kom stjórnin fram
með þá fullyrðingu, að einn full-
trúanna úr Hafnarfirði mundi
einnig vera skráður félagi í prent-
nemafélaginu í Reykjavík og
krafðist þess, að allir iðnnemarn-
ir frá Hafnarfirði yrðu gerðir
brottrækir af þinginu. Eftir að
þetta ofríki stjórnarinnar kom
fram á þinginu lögðu margir full-
trúar til, að það yrði rofið og
boðað til annars þings, og yrði þá
búið. að úrskurða kjörbréf full-
trúa. Úrskurðaði formaður sam-
bandsins, að með því að sam-
þykkja slíka tillögu væri verið að
brjóta lög Iðnnemasambandsins,
og náði tillagan ekki fram að
ganga eftir þennan úrskurð. Þeg-
ar svo var komið málum, gengu
allmargir af þinginu, þar sem þeir
töldu það með öllu ólöglegt. Iðn-
nemar, sem voru komnir til þings-
ins, urðu meira en lítið undrandi
á því, að stjórn sambandsins og
fulltrúar frá aðeins einu félagi,
skyldu beita slíkum yfirgangi til
að viðhalda pólitískum yfirráð-
um í sambandinu. Auk kjörinna
fulltrúa á þinginu var þar stadd-
ur erindreki Sósíalistaflokksins,
sem virtist stjórna þessu pólitíska
ofríki sambandsstjórnarinnar.
Sagt er, að margar eltíflaugar
af gerðinni Sergeant er skjóta má
um 120 km. vegalengd eigi að
fara til Evrópu og nýjar gerðir
eldflauga sem ekki er hægt að
útbúa með kjarnhlöðum verða
fluttar til Evrópu og Kyrrahafs-
svæðisins. Auk þessa verða flutt
ýmis fleiri vopn m. a. eldflaugar
og á allt þetta að þéna tU þess
að auka vopnamagn bandaríska
hersins og bæta „gæði” þess.
240 bandarískar herflugvélar
standa nú tilbúnar til flugs á
fimm flugvöllum í Bandaríkjun-
um. Munu þær í nótt flytja til
Vestur-Þýzkalands heila herdeild
manna og eru þeir 14.500 tals-
ins. Með heræfingu þessari á að
sýna hvers Bandaríkin eru megn
ug, ef ráðizt verður á banda-
menn þeirra. Vélar þær, sem not-
aðar verða til flutninganna eru
þotur af gerðinni C-135, er flutt
geta 75 manns og útbúnað þeirra,
C-130 og Globemaster.
Varahermálaráðherra Banda-
ríkjanna, Rockwell Gilpatricks hef
ur tilkynnt að æfingar þessar
muni sýna, að Bandaríkin gæti
minnkað mjög herlið sitt í öðrum
löndum án þess að það þurfi að
þýða minnkandi varnarmátt ■ á
viðkomandi stöðum.
Talsmaður vestur-þýzka vam-
armálaráðuneytisins tilkynnti í
dag, að ráðuneytið hefði snúið
sér til bandaríska hermálaráðu-
neytisins og spurzt fyrir um það,
hvað lægi að baki orða vara-
hermálaráðherrans. Robert Mc-
Namara hermálaráðherra og aðrir
forsvarsmenn ráðuneytisins hefðu
fullvissað ráðuneytið um það, að
ekki væri neitt samband milli æf-
ingarinnar og hugsanlegrar
minnkunar herafla Bandaríkj-
anna erlendis.
Sovét varar
við kjarnher
tM%MWWWWWMMMMWWMWWWWW*W>WMWWWMWWMWW*MMMMIWW»W>W»
IViestu herflutning-
ar á friðartímum
Moskvu, 21. okt. NTB-AFP.
Það gæti haft alvarlegar afleið-
ingar ef teknar yrðu upp að nýju
viðræðurnar nm marghliða kjarn
her NATO í Evrópu, segir í opin-
berri yflrlýsingu frá sovézku rík-
isstjóminni er TASS-fréttastofan
birti í dag. Segir þar, að allar
nndirbúningsviðræður vestra um
þetta mál séu í beinni mótsögn
við anda Moskvu-sáttmálans um
bann við tilraunasprengingum.
Maður getur ekki annars vegar
lýst sig fúsan til baráttu fyrir
friðnum í heiminum og hins veg-
I ar gengið til móts við vestur-
þýzku hefndarseggina og fullnægt
löngun þeirra til kjamvopna með
því að afhenda þau NATO-her er
opna mun dyrnar að kjarnvopna-
birgðum fyrir vestur-þýzku hern-
aðarseggina, segir í yfirlýsing-
unni.
í yfirlýsingunni segir ennfremur
að Sovétstjórnin hafi opinberlega
aðvarað bandarísku stjórnina við
þeim hættulegu afleiðingum, sem
frekari útbreiðsla kjarnvopna
getur haft. Forystumenn Sovét-
ríkjanna hljóta að taka ttl athug-
unar þær alvarlegu afleiðingar
sem það myndi hafa, ef áður-
nefnt gerðist og hvað gera yrði
í slíku tilfelli Sovétríkjunum og
bandamönnum þeirra til verndar.
Samningurinn um tilraunabann
skapaði heppilegt andrúmsloft til
leitar að lausnum á öðrum vanda-
málum er hafi getað haft í för með
sér stríðshættu. Sovétríkin vilja
gera allt sem í þeirra valdi stend-
ur til að notfæra andrúmsloft
til að tryggja friðinn, seglr þar.
Það er því þýðingarmest af öllu
að forðast allt það er getur gert
þýðingarmiklum samningum öll-
um þjóðum til heilla, erfiðara fyr-
ir segir að lokum. ,
Alvarlegt slys
í Árnessýslu
Reykjavík, 21. okt. — KG.
Vestan við Þingborg í Árnes*
sýslu varð 12 ára gömul telpa
fyrir Volkswagenbifreið á laugar-
dag. Hún tvíbrotnaði bæði á fætl
og hönd, vinstra megin, og fékk
einnig önnur meiðsli. Stúlkan var
ásamt föður sínum og öðrum
manni að reka hesta eftir veginun*
og var rétt komin á leiðarenda,
þegar slysið vildi til. Klukkan var
um 6 og byrjað að bregða birtu,
auk þess sem rigning var og
slæmt skyggni. Stúlkan var fyrst
flutt á sjúkrahúsið á Selfossi og
síðan á Landspítalann í Reykja-
vík.
Bifreiðin var á töluverðri ferð
og skemmdist nokkuð, meðal
annars brotnaði framrúða og
bretti beyglaðist.
Skammt þarna frá var ma'ður
í bíl og mun hann hafa séð slys-
ið, en þegar lögreglan kom á
staðinn, var hann farinn. Eru það
vinsamleg tilmæli frá lögreglunni
að hann gefi sig fram annað hvort
hjá lögreglunni á Selfossi eða í
Reykjavík.
Erlend herskip nær-
göngul v/ð sænska
Stokkhólmi, 21 okt. (NTB).
Erlend herskip, einkum þó kaf-
bátar, hafa mikinn áhuga á Sví-
þjóð sagði talsmaður sænska her-
ráðsins í dag. Síðustu mánuðina
hefur í hverri viku frétzt um nær-
göngula kafbáta. Þýðviðri er sagt
rikja úti í hinum stóra heimi en í
Eystrasalti færast herveldin í auk-
ana, sagði Skoglund ofursti í dag.
Að vísu er hér yfirleitt um æf-
ingar að ræða sagði hann en ekki
verður framhjá því komizt að kaf-
bátarnir reka njósnir við strendur
Svíþjóðar. Fyrir fjórtán dögum
síðan sást kafbátur á miðju æfing-
asvæði flotans við vesturströndina,
fyrir nokkrum mánuðum síðan sá
fiskibátur kafbát við suðursti-önd
Svíþjóðar, í fyrra kastaði leitar-
flugvél sprengjum að kafbát er
sást á æfingasvæði flotans við Got-
land.
Skogland ofursti sagði í fyrir-
lestri á sunnudag að ekki aðeins
væru það Sovétríkin er rækju
njósnir í Eystrasalti heldur líka
Vestur-Þýzkaland og önnur NATO
lönd.
Reykjavíkurflot-
inn er á förum
Reykjavík, 21. okt. — GO.
REYKJAVÍKURBÁTAR búast
nú sem óðast á síld. Rifsnes var
að taka nótina um borð í dag og
fer út á morgun, ef veður leyfir.
Svo mun og um fleiri. Þorsteinn
þorskabítur fór út síðdegis í dag
til leitar, en hann kom á laugar-
daginn vegna einhverrar bilunar á
tækjum.
Eftir því, sem.blaðið gat fregn-
að sannast, fann hann litla síld,
aðeins nokkuð magn út af Jökli,
þar sem bátarnir liafa verið að
undanförnu. Skipstjóri og leitar-
stjóri á Þorsteini þorskabít er
Jón Einarsson.
Vetrarsíldveiðarnar byrja nú
nokkru fyrr en í fyrra, en þá
seinkaði þeim vegna verkfalla. Nú
hefur þeim hins vegar seinkað
nokkuð vegna stöðugra illviðra,
sem hafa gengið að undanförnu.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 22. okt. 1963 3