Alþýðublaðið - 31.12.1963, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 31.12.1963, Qupperneq 1
I. BLAD ] I T "1........— {Mmm 44 árg. — Þriðjudagur 31. desember 1963 — 272. tbl. WIWWWWWWMWWWW Þessi mynd er tekin við Surtsey í grærmorgun. Neðst til vinstri á myndinni má greina gufustrók, sem kem- ur upp tæpa mílu A-N-A af eyjunni. Þarna eru nokk- ur eldsumbrot á 4-6 metra dýpi, og má búást við, að eyja rísi þar úr sæ. (Ljósm. J. Vilberg). Eldsumbrot 1 mílu A-N-A- frá Surtsey Reykjavík, 30. des. — AG. Á laugardaginn urðu menn frá Vestmannaeyjum varir við ein- hverja ólgu í sjónum skammt frá Surtsey. Á sunnudagsmorgun sást svo úr fiugvél hvar Ijósir — og dökkir strókar risu upp frá haf- fletinum A-N-A af Surtsey. Voru þetta heldur veigalitlir strókar, en í kringum þá var nokkur ólga. Þá mátti einnig greina spreng- ingar crg glampa í sjónum á litlu dýpi. Telur dr. Sigurður Þórarinsson 1 STORSLYS VIÐ BÆGISÁ Akureyri, 30. des. — GS-RL. Það slys varð í Hörgárdal um kl. 6 í dag, að vörubifreið, sem vár að koma frá Akureyri og var á suðurleið, 6k út af brúnni á Ræg- isá og steyptist niður í gljúfrið, sem er djúpt á þessum stað. Tveir menn voru i bifreiðinni og slösuðust þeir báðir alvarlega og liggja nú á sjúkrahúsinu á Akureyri. Bifreiðin mun hafa komið á topþinn í ána og menn- irnir klemmst fastir inni í stýr- ishúsinu. Jeppabifreið úr Þingeyjarsýslu bar þarna að og veittu farþegar | hennar því athygli, að hljólför lágu þarna út af veginum við brúna. Stöðvuðu þeir bifreið sína og gengu fram á gljúfurbarminn. Heyrðu þeir þá til mannanna sem fastir voru í vörubífreiðinni og mun þeim hafa tekizt að losa þá úr stýrishúsinu. Slæm beygja er þarna við brúna en hættumerki gefur hana til kynna. Ekki var unnt að fá nöfn mannanna tveggja, enda munu aðstandendur þeirra vart vita um slys þetta, þegar þessar línur eru ritaðar. Báðir mennirnir eru mik- ið slasaðir og meðal annars fót- brotnir. REYKJ Reykjavík, 30. des. — GG. EINN erlendur stórmeistari og þrír alþjóðlegir meistarar og ef til vill einn stórmeistari enn taka þátt í hinu alþjóðlega skákmóti, sem Skáksamband íslands og Taflfélag Reykjavíkur gangast fyrir eftir áramótin og hefjast á 12. janúar. í dag barst skeyti frá Moskva, að þvi er Baldur Pálmason tjáði blaðinu í kvöld, þar sem segir, að frá Sovétríkjunum muni koma til keppninnar stórmeistarinn Tal og ennfremur stúlkan Nona Gabrinds taKíim' óskar öllum lesendum sínum og landsmönnum gleðilegs árs. jarðfræðingur, að þarna sé um 3 giga að ræða, sem eru á sprungu í framhaldi af þeirri, sem er und- ir Surtsey. Áætlar hann lengd I hinnar nýju sprungu um 300 m. I og að liún sé í um einnar milu | fjarlægð frá Surtsey. Segir hann : það ekki óalgengt hérlendis, að sprunga opnist í framhaldi þeirr- ar er fyrst tók að gjósa: Sé því tæpast rétt að segja, að þarna sé um nýtt gos að ræða. Þá telur hann, að þarna komi nú gosið upp á 4-6 metra dýpi, þar sem áður var rúmlega 120 metra dýpi. Geti og myndast þarna ný eyja. Af þessu gosi telur hann Vestmanna- Framh. á 15. síðu WMMMMWMWWWWMMM. Nú eru ungir drengir víða um bæ að leggja síðustu hönd á bálkesti, sem kveikt verður í á gamlárskvöld. — Veitt hafa veriö leyfi fyrir 65 brennum, og eru það nokkru færri en síðasta ár. Þá voru þær um 90. Ein brenna verður á vegum borg arinnar á Klambratúni. — Þessi mynd var tekin í gær af nokkrum drengjum, sem voru að hlaða upp brennu, þeir sitja á bíldekkjum, en mikill fengur þykir í slíkum hlutum. Dekkin loga vel og af þeim leggur mikinn dökk an mökk. (Ljm. Rúnar). GRÝTTI FJÓRAR STÓRAR ísafirði, 30. des. — BS-HP. Aðfaranótt síðastliðins sunnu- dags voru brotpar rúður í fjórum verzlunum á ísafirði, sennilega um fjögur leytið. Ein rúða var brotin í hverri verzlun, en þær eru: Veitingastofan Eyrarver, Bókabúð Matthíasar Bjarnasonar, Verzlun Jóns A. Þórólfssonar og Timburverzlunin Björk. Allar rúðurnar voru stórar og með tvöföldu gleri. Hér var ekki um innbrot að ræða, því að engu var stolið, aðeins unnin skemmd- arverk. Ekki er vitað, hver þess- um spellvirkjum olli, en grunur leikur á, að það liafi verið einn og sami maðurinn. Sást til manns, sem kastaði í rúðu, en hann þekkt- ist ekki. vili frá Georgíu, sem er alþjóðleg- ur meistari og heimsmeistari kvenna í skák. Af öðrum útlendingum er á- kveðið að komi alþjóðlegu meist- ararnir Svein Johannesson frá Noregi og Robert Wade frá Nýja Sjálandi og Englandi. Ekki er enn alveg víst, hvort Glicoric frá Jú- góslavíu kemur. Hann hefur verið að keppa í Hastings-mótinu og mun hafa verið búinn að tofa að taka þátt í fleiri mótum þar í landi á eftir, en nú er urnið að því að fá hann lausan frá þeim skuldbindingum, enda mun hann langa til að koma hingað. Níu íslendingar taka þátt í mót- inu, en þeir eru: Friðrik Ólafsson, Ingi R. Jóhannsson, Guðmundur Pálmason, Arinbjörn Guðmunds- son, Freysteinn Þorbergsson, Ingv- ár Ásmundsson, Jón Kristinsson, Magnús Sólmundsson og Trausti Björnsson. Nokkrir erfiðleikar eru enn á að fá hentugt húsnæði til keppn- innar og ekki unnt að skýra frá því enn, hvar mótið verður hald- ið. HHMMMHMMMMMMWMMV Hljóðfæraleikar- ar ekki í verkfall Samningaviðræðum milli Sambands veitinga- og gisti- húsaeigenda og Félags ís- lenzkra hljómlistannaima hefur verið frestað fram yfir áramót, og kernur því áður boðað verkfall 1. janúar ekki til framkvæmda. mmmmmmmmmmmmmmmm

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.