Alþýðublaðið - 31.12.1963, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 31.12.1963, Blaðsíða 4
WmWMMWWWWWWWWMWWWWWWiWWMWWMIWWiWimWmWMWWVW VORUBÍLSTJORI 135 ÁR Gíslason sjötugan 31. desember 1893, fæddist aö Litla Ný.jabíe, í Krísuvíkur- hverfi í Gullbringusýslu, lítill sveinstauli, sem hlaut nafnið Ásgrímur. í dag losar hann því sjö- unda tuginn og byrjar þann áttunda með nýju ári. Ásgrímur var ekki hjóna- bandsbarn og fiæktist af þeim sökum milli staða í aesku, eins og títt var um slík börn í þann tíð. Tíu ára að aldri var hann svo heppinn að komast. i fóstur til hjónanna Guðjóns Guðmunds- sonar og Engiibertínu Hafliða dótt-ur. sem þá bjuggu að Hrauni í Grindavík. Hjá þeim átti hann lieimili til 35 ára ald- urs, eða þar tit hann giftist Lúisu Tómasdóttur, skipstjóra og fiskimatsmanns Jónssonar á Bræðraborgarstíg 35. Þau eiga 4 börn, 3 dætur og einn son. Asgrímur hóf sjómennsku ungur að árum, setti árabáta 11 ára gamall- Fimmtán ára gamall fluttist hann með fósturforeldrum sín- um til Reykjavíkur og bjuggu þau á Laugavegi 72. Það ár fór hann á skútu. — Aðbúnaðurinn þætti í dag ærið slæmur, sagði Ásgrímur, — en kröfumar voru minni þá. Annars var hann misjafn, það fór eftir skipstjóranum. Ég var yfirleitt með góðum skipstjór- um. EgiII Þórðarson í Ráðagerði er með meiri og betri skipstjór- um tem ég hefi kynnst og mik ill sjómaður var hann. Síðan var ég á togurum og var stýrimaður á Austra, þeg- ar ég slasaðist I’að brotnaði polli og vírinn slóst í mig. Ég lærbrotnaði á báðum fótum og var frá vinnu í tvö ár. ÁSGRÍMHR GÍSLASON Eftir það fór ég tvo eða þrjá túra á togaranum Kára með Guðmundi Guðmundssyni. ' 1929 keypti ég mér vörubíl og hefi stundað akstur síðan. Þetta var Chevrolet bifreið og tók 1,5 tonn, en þeir gerðust ekki stærri í þá daga. Hann kostaði 4200 krónur kominn á götuna, með varadekki. Maður borgaði helminginn út, en af- ganginn með mánaðargreiðsl- um- Það var oft lítið að gera á kreppuárunum fyrir stríð, en peningarnir sem maður fékk, giltu meira en nú. Samt finnst mér betra að lifa í dag, þrátt fyrir mikla dýrtíð. í Alþýðuflokknum hefi ég verið frá stofnun og reynt að stuðla að vexti hans og við-' gangi af beztu getu. Þegar Sjómannafélagið var stofnað, í Fjalakettinum, var ég einn af stofnendum, og á skír- teini númer 121 eða 2. Frá því að Þróttur var stofn- aður hefi ég verið í stjórn, nema eitt eða tvö stríðsár. Það er mikill munur á fél- agsbaráttunni í dag og á ármi- um fyrir stríð, Þá. var Ólafur Friðriksson okkar uppáhald- Hann kom um borð til okkar og talaði yfir hausamótunum á mannskapn- um, Ég hélt mikið upp.áHéðinn heitinn Valdemarsson og var á fundinum þegar flokkurinn klofnaði fyrir hans gjörðir. En þrátt fyrir uppáhald mitt á Héðni, gat ég ekki verið honum sammála í þessu máli, En vinst- ri sinnaður hefi ég alltaf ver- ið og ekki talið mönnum til lasts þótt þeir hafi verið mér ó sammála í póiitík, heldur unn- ið með þeim, hafi þeir viljað stuðla að hagsmunum þeirra féiaga sem um hefur verið að ræða. Ég hefi alltaf talið jafn- aðarstefnuna þá beztu og satt að segja skil ég ekki hvers vegna Alþýðuflokkurinn er svo fámennur, eins og hann hefur þó gert margt gott fyrir alþýðu manna. Að hann slculi vera með minni flokkum á landinu- Að lokum vil ég beina þeirri ósk til unga fólkains og einnig þeirra eldri, sem njóta góðs af gjörðum Alþýðuflokksins, að það athugi sinn gang í framtíð- inni, Svo óska ég Alþýðuflokknum góðs gengis í nútíð og fram- tíð--"‘ Þar sem búast má við að vini og kunningja Ásgríms fýsi að sækja hann heim á þessum merku tímamótum, er þess vænst að þeir taki tU greina að hann hefur verið veikur upp á síðkastið og er undir læknis- hendi um þessar mundir. Svo vill Alþýðublaðið óska afmælisbarninu til hamingju með daginn og góðrar heilsu í nútíð og framtíð. R. L. I<4WWWWWWWWWWWWWÍWW ^M^^W^M^HWWWiWWWWWWW KÓPURINN KOBBI Framh. af 16. síðu og kveiknar sér ef við hann er komið. Þcim kom saman um það, Þormari og pilti, sem með hon um var, að gólfið í þvotta- húsinu særði kópinn og því ráðlegast að fá handa lion- uin nokkuð háan kassa með einhverju mjúku í botninum. Um það leyti sem þeir gáf- ust upp við að fóðra Kobba og Ijósmyndarinn hafði sloppið með skelkinn, tók vinurinn á rás að útidyrum þvottahússins og linnti ekki látum fyrr en Þormar hafði opnað fyrir honum og hleypt lionum út í góða veðrið. — Hann hljóp eftir harðfrosn- um balanuni og eftir nokkur augnablik gat að líta sjón sem ekki mun mjög algeng liér á landi og þó víðar væri •leitað. Sel í blóma og trjá- beði! (Trúið mér til: Selir geta hlaupið!). Ekki er Þormari alveg ljóst Iivað hann gerir við skepn- una, ef liún tórir. Helzt vill liann koma henni til ein- hverra, sem hafa tok og kunn áttu til að fóðra hann og hugsa um hanu þangað til hægt er að sleppa honum. Þetta veröur mjög óhcntugt húsdýr í framtíðinni og óvíst að gestagangur haldist á hcimilinu, ef þar er von á fullvöxnum útsel til alls vís- an. Hauu mun !>ó að öllum Hkindum spekjast þegar hann iæfur fcngið að gróa sára sinna og fær matarlystina. — '.'^'•wwmwuwwmMWimMWiwwHwwwww Nú má helzt enginn koma ná- lægt honum annar en Þorm- ar, lífgjafi hans og einkavin- ur og þó er vissara fyrir liann að gæta sín á tönnum Kobba. Þegar við kvöddum, bað Þormar okkur að skila því tU þeirra, sem einhverja reyn- slu hefðu af uppeldi útsels- kópa, eða kópa yfirleitt, að setja sig í samband við hann með ráð og leiðbeiningar. wwwwwwwwwww PENINGAR Framh. af 6. síðu ekkert. Hinn seSillinn kom einn ig frá Lyngby. Um hann komst ekki upp fyrr eu hann var kom- iun íil banka c-ius- í Kauprnanna- höfn, sem íekk hann frá. útibúi sínu, en þar hafðt menn eklci grunað ne-itt misjafnt. Verkatnannafélagið Jólatrésfagnaöur verður í Iðnó. föstudaginn 3. og laugardaginn 4. janúar og hefst kl. 3 báða dagana. Hljómsveit Hauks Morthens leikur og syngur. Jólasveinn kemur í heimsókn, Aðgöngumiðar á íkr- 40.00, seldir 2. janúar í skrifstofu félagsins. — Tekið á móti pöntun- um í dlag, isími 13724. BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS óskar að ráða skrifstofustúlku, vana vélritun, nú þegar. Umsóknir sendiist skrifstofu félagsins, Lækj- argötu 14 b. *^wwwwwwwwwwwwwwiwwiwwM»M«M..4.H<w1WMt1wmwtttv Útför móður okkar Kristínar Sigmundsdóttur Lindargötu 34 fer fram frá Dómkirkjunni, föstudaginn 3. janúar 1904, kl. 10,30. Athöfninni verður útvarpað. Fyrir hönd systkina Marteinn Pétursson. Hjarkær móðir okkar, tengdamóðir og amma Sigríður Jónsdóttir Laugaveg 53, A, lézt 28. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda. Margrét Einarsdóttir. Guðbjörg Einarsdóttir. Hrefna Einarsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við and lát og jaröarför eiginmanns, föður, tengdaföður og afa Sigurjóns Símonarsonar Sérstakar þakkir færum við læknum og lijúkrunarliði Borgarsjúkra hussins. Hólmfríður Halldórsdóítir Guðrún K. Sigurjónsdóttir Þórarinn Jónsson Hallborg Sigurjónsdóttir Ilaraldur Guðmundsson Kristján Sigurjónsson Guðný Þorvaldsdóttir Sigurður Sigurjónsson Símon Sjgiirjónsson Ester Guðmundsdóttir Jórunn Anna Sigur.jónsdóit,ir Kristján J. Ólaíssou. og barnabörn. 4 29. des. 1963 — A’lÞÝÐUBLAÐIO

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.