Alþýðublaðið - 31.12.1963, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 31.12.1963, Blaðsíða 8
Flugeídar rakettur sólir og blys Ótal tegundir — Lítið í gluggana um helgina. TÓBAKSVERZLUNIN LONDON Flugfreyjur Loftleiðir h.f. óska eftir að ráða til sín flugfreyjur frá 1. apríl n.k. að telja. Til undirbúnings starfinu verður éfnt til 3,ia vikna kvöldnámskeiðs sem hefst 1. febrúar 1964 að und- angngnu inntökuprófi. Helztu umsóknarskilyrði eru: Aldur: 20—30 ára. ^ Líkamshæð: 160—170 cm. Menntun: Gagnfræðamenntun eðá önnur viður- kennd almenn menntun. Sérmenntun: Leikni í að tala os rita ensku og eitt Norðurlandamálanna, og æskilegast er að um- sækjendur kunni að auki annað hvort þýzku eða frönsku. Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Loftleiða, Lækj- argötu 2 og Aðalskrifstofunni, Reykjanesbraut 6 Umsóknir skulu hafa borizt ráðningarstjóra félagsins fyrir 16. janúar 19641. Auglýsið í Aljjýðublabinu EMIL JÓNSSON, FORMAÐUR ALÞÝÐUF í>að sem efst er í huga við þessi áramót, hjá mörgum þeim, sem um landsins gagn og nauðsynjar hugsa, er án alls efa hvert stefn- ir í efnahagsmálum okkar íslend- inga. Verkföll, mjög víðtæk, eru nýafstaðin, og þó að samkomulag næðist, var það aðeins gert til stutts tíma, hjá flestum til 6 mán- aða, og viðbúið að átökin haldi þá áfram, ef skilningur almennings á skaðsemi þessara átaka vex ekki frá því, sem nú er- Kaupgjald almennra launþega hefur hækk- að þri-var á árinu, fyrst um 5%, síðar á miðju ári um 714% og loks nú í desember um 15% eða samtals um nær 30%. Hjá opinber um starfsmönnum er aftur á móti talið að meðalhækkun launa hafi orðið um 40% á miðju ári. Þegar svo hins vegar aukning þjóðar- firamleiðrlunnar á áiri er talin 3-4%, er sýnilegt að sú launa- hækkun -em orðið hefur getur ekki orðið raunhæf, þegar hún gengur í gegnum allt launakerf- ið. Þvi aðeins hefði hún getað orðið það, að hún hefði einungis náð til takmarkaðs hóps, og allir aðrir fengið minni hækkun. Ríkis- stjórnin vildi beita sér fyrir því. að þessi háttur yrði á hafður í launadeilunni síðustu, eins og kunnugt er, launahækkanirnar þá fyr:t og fremst miðaðar við þá lægst launuðu, en tókst það ekki. Afleiðingarnar af þessari þró- un hafa heldur ekki látið á sér standa. Vísitala framfærslukostn- aðar hefur hækkað um 18 stig, eða 14% fyrstu 11 mánuði ársins, og framundan eru hækkanir, sem á- reiðanlega taka kúfinn af þeim launahækkunum, sem orðið hafa Menn deila að vísu um það, hvað sé orsök og hvað sé afleiðing í þesm sambandi En án þess að fella um það nokkurn dóm er þó óhætt að slá því föstu, að þetta tvennt fylgist að — launahækkan- ♦ ir og verðlagshækkanir — þegar svo er að málum staðið eins og gert hefur verið á undanförnum árum. En afleiðingarnar eru fleiri. Gjaldeyrisstaðan batnaði fyrstu 11 mánuði ársins 1962 um 484 milljónir kr-, en á fyrstu 11 mán- uðum þessa árs aðeins um 55 millj. kr. og segir það einnig sína sögu. Vöxtur gjaldeyrisforðans hefir að heita má stöðvazt, og mikil hætt er á að þessi gjaldeyr- isforði, sem við nú eigum, fari á næstunni minnkandi, ef ekki verð ur að gert, og núverandi þróun mála heldur áfram. Þetta er iíka mjög skiljanlegt. Heildar launa- tekjur allra landsmanna nú í ár, eru taldar vera um 7000 miiljónir króna. 15% hækkunin, sem geng ur í gegnum allt launakerfið nem ur því yfir 1000 míllj. kr. Ef reiknað er með að 40% af þessari upphæð gangi til kaupa á erlend- um varningi, þá nemur sú upphæð 400 millj- kr. Og þegar útflutning urinn eykst ekki nema um lítift brot af þeirri upphæð er sýnt að stéfnt er út í hreinan hallabú- skap í viðskiptunum við útlönd. Vöruskiptajöfnuðurinn við útlönd fyrstu 10 mánuði þessa árs varð líka óhagstæður um 695 millj. kr. en var í fyrra, á fyrstu 10 mán- uðum þess árs óhagstæður um að- eins 81 millj. kr. Allt segir þetta sfna sögu. Þróun þessara mála er vægast sagt uggvænleg. Loks er þess að geta, sem segja má að sé þýðingarmest af öllu, að ýmsir þættir útflutningsfram- leiðslunnar eru að stöðvast vegna hækkaðs tilkostnaðar, bæði vegna síhækkandi verðlags innanlands og launa, án þess að tilsvarandi hækkun hafi orðið á framleiðslu- vörunum, og hefur hún þó orðið á sumum tegundum nokkur, og á einstaka tegundum veruleg. Á þessu ári hefur nefnd starfað að athugun á hag- og rekstursaf- komu togaraútgerðarinnar, og ekki sú fyrsta, því að togaraútgerð- in hefuir á undanförnum árum átt við mikla erfiðleika að etja- Þessi nefnd skilaði áliti í byrjun þessa mánaðar og kemst að þeirri niður stöðu, að halli á hverjum togara sé að meðaltali 3-4 millj kr. á ári. Liggja til þess ýmrar ástæður og alveg óvéfengjanlegar, sem ekki er ástæða til að rekja hér. Þetta er staðreynd, sem ekki verður komizt hjá að horfast í augu við. Er því ekki nema tvennt til. Ann- að hvort verður þessi útgerð að leggjast niður að mestu leyti eða hið opinbera verður að koma til og styrkja hana svo að starfsem- inni verði haldið áfram. Þetta er að vísu ekki nýtt, togaraútgerð in hefur verið styrkt nokkuð und- anfarin ár, þó að það hafi ekki verið í jafnstórum stíl og nú virð ist nauðsynlegt. Og þetta er held- ur ekki einstakt fyrir íslenzku tog arana. Togaraútgerð bæði í Bret- landi og Þýzkalandi nýtur nokk urs syrks frá hinu opinbera, þó að ýmis skilyrði il sæmilegrar af- komu séu þar betri en hér- En telja má víst að ýmsum myndi Þykja þrengjast okkar kostur ef togararnir hyrfu með öllu af sjón arsviðinu. Um afkomu annarrar útgerðar iiggja ekki fyrir tölur, en ef marka má áhuga útgerðar- manna á því að eignast ný skip, virðist afkoman vissuiega hafa verið sæmileg því að aidrei hafa íslenzkir útgerðarmenn átt jafn mörg skip í smíðum og nú. En þó verður það að segjast í því sambandi, að mikið mun vera Iagt upp úr hinum mikla síidarafla, bæði sumarsíldinni fyrir norðan og austan og vetrarsíldinni sunn- anland- og vestan, sem fengizt hef ur si. tvö ár, en sem því miður ekki hefir verið árviss. Samtök frystahúsaeigenda, Söiu miðstöð hraðfrystihúsanna höfðu tiikynnt ríkisstjórninni fyrlr nokkru síðan, að mjög hefði þrengzt þeirra ko-tur, þannig að þann hluta ársins, sem þá var liðinn, hefðu þau yfirleytt verið rekin með tapi. Þegar svo sú út- gjaldaaukning bætist við, sem leið ir af hinum nvju kjarasamning- um í desember, er viðbúíð að ekki verði hjá því komizt að veita hraðfrystihúsunum stuðning í ein hverju formi Þó að pjálfsagt sé að taka öllum þessum og öðrum upplýsingum sem fyriv liggja um lélega afkomu með fyllstu varúð, virðist þó auð- sætt, að vmsir þættir útflútnings- atvinnuveganna, eigi við mikla earfiðleika að etja og að sumir komist alls ekki af nema með að- stoð í einhverri mynd. Þá hlýtur sú spurning að vakna, hvernig að iausn þessara mála skuli staðið af hálfu ríkisstjórnarinnar og Al- þingis. Ýmsar leiðir hafa verið nefndar, og sýnist, eins og jafnan sitt hverjum. Fyrsti möguleikinn og einfald- asti er sá, að láta allt arka að auðnu, halda að sér höndum ag gera ekki neitt- Af þeim upplýs- ingum, sem fyrir liggja, og örugg- ar meea feljast, virðist þó ljóst að sú leið mvndi liggja til stöðvunar fjölda atvinnutækja, sem hafa mundi í för með sér atvinnuleysi og mikla skerðingu á þjóðartekjun um. Þó að þessi leið kynni að geta opnað augu einhverra þeirra, sem nú standa að stöðugt hækkandi verðlagi og kaupgjaldi, fyrir þeirri hættu, sem slíkt hefur í för með sér, má segja að sú fræðsla sé of dýru verði keypt, áð minnsta kosti á meðan nokkur von er um að hún geti fengizt eftír öðrum leiðum. Annar möguieikinn er gengis- breyting til að jafna metin fyrir útflutningsframleiðsluna. Þessi leið hefur verið reynd nokkrum sinnum á undanförnum árum. Hún getur bjargað í bili, en aðeins í bili, og hún hefur þann mikla galla, að hún veikir trú manna á íslenzka gialdmiðlinum og dregur úr eðlilegum sparnaði, sem er hornsteinninn undir heilbrigðu efnahagskerfi hvers lands. Það geta að visu komið fyrir tilfelli þar sem gengislækkun er óum- flýjanleg ,en með þeim gjaldeyr- isvarasjóði, sem við þó eigum í dag, sem er meiri en við nokkum ííma höfum átt áður síðan í styrj aldarlok, virðast vera möguleikar til þess nú að komast hjá því að 8 31. des. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.