Alþýðublaðið - 31.12.1963, Page 9

Alþýðublaðið - 31.12.1963, Page 9
:LOKKSINS: fara þessa leið, og ríkisstjórjiin hefur marglýst því yfir að hún muni ekki vilja fara hana nema öll önnur sund séu lokuð. Þriðji möguleikinn, sem ég kef heyrt nefndan er að lækka öll laun með lögum um sama hundr- aðshluta. Þessi leið hefur eínnig áður verið reynd og gefið allgóða raun. En ef hægt á að vera að ná góðum árangri á þennan hátt, verða þeir aðilar allir eða all- flestir, sem málið snertir, að vera samþykkir því að þessi lausn verði reynd, annars er hætt við að tilætlaður árangur náist ekki- Fjórði og síðasti möguleikinn, sem ég nefni, og sá sem ríkis- stjórnin hefur staðnæmzt við, þó að engin endanleg ákvörðun hafi verið um það tekin enn, er að freista þess að veita þeim útflutn ingsframleiðendum, sem þess nauðsynlega þurfa, aðstoð á þann hátt að losa þá við kostnaðarliði, svo að nægja myndi til að jafna metin. Er þá fyrst og fremst haft í huga útflutningsgjaldið, að lækka það eða fella alveg niður. Yrði ríkissjóður þá að taka á sig tilsvarandi útgjaldaaukningu, sem hann yrði að afla tekna á móti. Má segja að þá sé vítahringnum lokað. Sú launahækkun sem varð umfram greiðslugetur atvinnu- rekstursins er greidd til baka af almenningi gegnum ríkissjóðinn. Þetta þjónar því engum tilgangi öðrum en þeim að hækka verðlag- ið og gera krónuna verðminni og hver er bættari með því? Ýmislegt fleira kemur vissulega til athugunar, þegar þessi mál eyu krufin til mergjar, þó að ekki verði neitt rætt frekar hér. En eitt vildi ég þó nefna að lokum og það eru hin lögbundnu tengsl millj kaupgjalds og verðlags, sem hafa verið í gildi og eru að veru- legu leyti enn. Þó að vísitöluálag- ið: á laun hafi verið afnumið er enn eftir sambandið á milli al- mennra launa í landinu og land- búnaðarafurðanna. Á því er eng- inn vafi að þau tengsl valda miklu um þá öfugþróun, sem átt héfur sér stað og á sér stað enn í launa- og verðlagsmálum, sem bezt má sjá á því, að í októbor og nóv- ember sl- hækkaði framfærslu- kostnaðarvísitalan beirra vegna um 6 stig„ sem er þriðjungur af árs- hækkuninip. Virðist nú fyllilega tími til kominn, að verðákvörðun landbúnaðarvara sé tekin til gagn gerðrar endurskoðunar. Þó að bæði ég og aðrir hafi kannski nokkra tilhneigingu til að mikla fyrir sér þau vandamál ,og þá erfiðleika, sem við er að etja þá. má hitt ekki gleymast, að árið 1963 hefur verið ísle'nding.um gott Emil Jónsson, forniaður Alþýffuflokksins. ár. Árgæzka hefur verið mikil bæði til lands og sjávar. Afli er að vísu nokkru minni en hann var í fyrra, en í því sambandi er þess að gæta, að aflinn 1962 var sa mesti sem nokkurn tíma hefur ver ið dreginn hér á land. Ný skip hafa komið til landsins i tugatali, bæði fiskiskip og flutningaskip, og fleiri eru í smíðum. Verksmiðj ur hafa risið á árinu til vinnslu aflans og eru enn í undirbúningi og verðlag á útflutningsvöru okkar stöðugt, og á nokkrum tegundum hækkandi. Búvöruframleiðslan eykst með hverju ári sem líður, þó að fjöldi manna, sem starfar að landbúnaði, standi í stað eða minnki. Kemur þar til greina hin mikla vélvæðing, sem orðið hefur í þessari atvinnugrein eins og ann arsstaðar- Vélarnar létta störfin og auka öfköstin. Iðnaðarfram- leiðslan eykst einnig og húsabygg ingar hafa verið með mesta móti Atvinna hefur verið mikjl, svo mik il, að eftirspurn eftir vinnandi fólki hefur hvergi nærri verið unnt að fullnægja. Afkoma alis almennings hefur því verið góð, þrátt fyrir hækkandi verðlag, nema hjá þeim, sem lægst eru launaðir, en þeirra vandamál virð ist ekki vera liægt að leysa nema að taka þá eina út úr og gera fyrir þá sérstakar ráðstafanir, þó að það tækist ekki nú, hlýtur að koma að því, að það verði gert- Með núverandi afkomu þjóðar innar í heild er óþarfi að nokkur búi við skort. Vcigamiklar breyt ingar til bóta voru á árinu gerðar á almannatryggingalögunum, sem koma til framkvæmda nú um ára mótin. Kosningar til Alþingis fóru fram sl. vor. Hlutu núverandi stjórnar flokkar rúman meirihluta allra at kvæða og vottaði þjóðin þannig núverandi ríkisstjórn fullt traust. Stjórnarsámstarfið, sem á íslenzk an mælikvarða er orðið óvenju- langt, heldur því ófram með ó bzreyttri stefnu eins og áður- Þó að ríkisstjórninni hafi ekki tekizt að leysa allan vanda, er það þó sannmæli sanngjarnra manna, að margt hafi henni vel tekizt og mörgum góðum málum hafi verið þokað til réttrar áttar. Ég vil svo að síðustu þakka öll um Alþýðuflokksmönnum mikils verðan stuðning og liðveizlu á ár inu bæði í sambandi við alþingis kosningarnar og við fjölmörg tæki færi önnur. Það hefur verið hart sótt að Alþýðuflokknum, nú eins og oft áður og ekki alltaf sann- gjamlega, svo vægt sé að orði komizt, en hann mun halda sínu striki, trúr sinni stefnu, sem fyrst og fremst er sú að gæta hagsmuna íjDlenzkrar alþýðu á raunhæfan hátt. Öllum íslendingum óska ég árs og friðar. GLEÐILEGT NÝÁR IILKYNNING UM SÖLUSKATTSSKÍRTEINI Hinn 31. desember n.k. falla úr gildi skírteini þau, sem skattstjórar hafa gefið út á> árilnrt 1963 skiv 11. gr. laga nr. 10/1960 um sölu- skatt. Endurnýjun fyrrgreindra skírteina er hafin, og skulu atvinnurekendur snúa sér til vi'ð- komandi skattstjóra, sem gefa út skírteini þessi. Allar breytingar, sem orðið hafa á rekstri, heimilisfangi eða þ. h- ber að til- kynna um leið og endurnýjun fer fram. Nýtt skírteini verður aðeins afhent gegn afhend- ingu eldra skírteinis. Eyðublöð fyrir tilkynningar um atvinnurekst ur og söluskattsskírteini fást hjá skattstjór- um- Reykjavík, 30. desember 1963. Skattstjórinn í Reykjavík. Tilkynning frá bönkunum Vegna vaxtareiknings verða sparisjóðsdeildir aðalbankanna lokaðar mánudaginn 30. desem ber og þriðjudaginn 31: desember 1963, en í útibúunum í Reykjavík fer öll ivenjuleg af- gréiðsla fram þá daga. Bankarnir ailir, ásamt útibúum, verða lokað- ir fimmtudaginn 2. janúar 1964. Athygli skal vakin á að víxlar, sem falla í gjalddaga sunnudaginn 29. desember og mánu daginn 30. desember, verða afsagðir þriðju- daginn 31. desember, séu þe’ir eigi greiddir fyrir lokunartíma bankanna þann dag (kl. 12 á hádegi). LANDSBANKI ÍSLANDS BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS IÐNAÐARBANKI ÍSLANDS HF. VERZLUNARBANKI ÍSLANDS H.F. SAMVINNUBANKI ÍSLANDS H.F. Duglegir sendisveinar óskast. Þurfa að hafa reiðhjól. AlþýÖublaðið, sími 14-900. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 31. des. 1963 9

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.