Voröld - 28.10.1919, Page 8
Bls-fc
VOBÖLD.
Winnipeg, 28. október, 1939
SENDIÐ EFTIR
VERÐLAUNASKRÁ j
VERÐMÆTRA MUNA
ROYAL CROWN SOAP LTD. j
Í654 Main Street Winnipegl
Zlr 3Bænum
Ungfrú Guðný Sigurðson, dótt-
ur Guðrúnar Sigurðsson að Cy-
press River, lagði af stað til Cali-
forniu í vikunni sem leið til þess
að heimsækja föðursyálur sína þar
Með henni fór Elenóra Sveinsson,
dóttir H. Sveinsonar, og ætlar til
Blain að heimsæk.ja þar föður-
systur sína.
Kötlugosið 1918
og afleiðingar þess; eftir Gísla
Sveináson, sýslumann Skaftfell-
inga. Gefið út af tilhlutun Stjórn-
arráðs Islands. Jtað ábyggileg-
asta sem um þetta gos' hefir verið
skráð.
KOSTAR 65c
Fæst í bókaverzlun Ólafs S. Thor-
geirssonar.
674 Sargent Ave.
winnipeg
Á þriðjudagskvöldið í vikunni
sem leið, var haldin þakklætishá-
tíð í’kirkjunni að Brú í Argyle;
fyrst var veizla í samkomuhúsinu
og síðan fór fram skemtun í kirkj-
nnni Samkoman var hin ánægju-
legasta.
Til söiu er 2o hestafla gufuket-
ill til þreskingar (locomotive
Boiler); búinn til af Sawyer Mfg.;
vélarnar eru í ágætu standi. Verð
$800. Borgunarskilmálar rýmileg-
ir. Vélin verður íiutt á járnbraut-
arvagn í Cypress River af seljand-
anum, ef kaupandinn er þar utan
bygðar. Einnig er til sölu notuð
skilvinda (Separator) fyrir hálf-
virði. Fargjald borgað á járn-
braut fyrir þann sem kemur að
skoða, ef kaup takast. Upplýsingar
á skrifstofu Voraldar.
Ingiibjörg Björnson, hjúkraun-
arkona, er hætt að sinna hjúkrun-
ar störfum utanbæjar. Hana verð-
ur því að finna í Winnipeg að 703
Victor Str. Bráðbrygðar talsími
Garry 4252
Heimkomnir hermenn sem hafa
í hyggju að kaupa lönd, ættu að
líta inn á skrifstofu Voraldar og
fá þar upplýsingar. Vér vitum af
ágætum löndum með fyrirtaks-
byggingum og verðið er sann-
gjarnt. Komið drengir og fáið
upplýsingar.
Hjálmar Gíslason að 506 Newton
Ave. í Elmwood, hefir fengið alls
konar bækur að heiman nöjar og
skemtilegar.
ATVINNA
Heilsugóð stúlka, vön almennum
húsverkum, óskast í vist á sérlega
gott heimili úti á landi í Manitoba
(íslenzkt). Kaup það bezta sem
tmrgað er. Frekari upplýsingar
gefur G.P. Thordarson, 866 Winni-
peg Avenue.
Fyrirlestur
söngvar og
hljóðfœrasláttur
Samkoma til arðs fyrir Jóns
Bjarnasonar skóla verður haldin
í efri sal Goodtepmlara-hússins
undir umsjón stúkunnar “Skuld”,
miðvikudagskvöldið í næstu viku,
5. nóvember og hefst kl. 8 e. h.
j Aðgangur kostar 25 cent.
Velundirbúin skemtiskrá verður
sem hér fylgir:
Ávarp forseta, Æ.t. st. Skuld
Slaghörpuspil, ungfrú Sveinsson
Fíólín samspil:
ÍW. Einarson, K. Jóhannesson
Fjórraddaður söngur
I ungfrúr Herman og Thorvaldson
jhr. Alfr. Albert, Mag. Magnússon
Óákveðið:
Lærlingar Jónasar Pálssonar
i Fíólin spil W. Einarson
í Fyrirlestur, Adam þorgrímsson
Einsöngur Alex. Johnson
Fíólín spii A. Fumey
©g að endingu ættjarðarsöngvar
sem allir syngja.
I Voraldar erindum
Ágúst Einarson er nýlega kom-
inn vestan frá Argyle þar sem
hann hefir verið við þreskingu að
undanförnu. Hann stundar nám
við verzlunarskóia hér í vetur.
Ilörku frost og vetrarbragur í
vestur fylkjunum að undanförnu.
Kaldasti Október í sögu landsins.
Ef þið spyrjið hvaða bækur
hann Hjálmar Gíslason hafi feng- j
ið að heiman, þá er svarið það að j
þær eru.of margar til þess að telja j
þærupp; ef þið spyrjið hvers ■
vegna ekki megi nefna þær beztu
þá er svarið það að þær eru allar J
ailra beztu bækur. Bezta ráðið j
er að heimsækja Iljálmar að 506
Newton Ave.'í Elmwood eða tala I
'við hann í síma; númerið er St. j
Johns 724.
Hjálmar Gíslason verður á skrif
stofu Voraldar allan næsta laugar
dag og hefir þar til söiu hinar
konar bækur að heiman nýjar og
lega fengið að heiman.
Glenboro Gazette getur þess í
23. þ.m., að John Sigvaldason og
J. Baldvin frá Glenboro hafi far-
ið á bifreið ti) ýmsra staða í Sas-
katcewan og séu nýkomnir aftur.
Sama blað getur þess, að séra P’r.
Hallgrímsson hafi stofnað söfnuð
í Glenboro á sunnudaginn, og var
,hann nefnöur Glenboro-söfnuður
V. B. Anderson, ráðsrnaður Vor
j aldar, er nýlega kominn vestan frá
Argyle; hann fór þangað í Votald
arerindum og dvaldi þar 6 daga.
Ferðin sýndi það, að Voröld á
marga vini í þeirri bygð eins og
annarsstaðar. Svo að segja allir
jArgylebúar höfðu áður keypt
hluti í Hecla Press, en þeir sem hér
fara á eítir bættu við sig fleiri og
færri hlutum:
1. Húsfrú H. Sigurðsson
Cypress River
2. ----Salome S. Johnson —”—
3. Jón Th. Johnson —”—
4. Páll friðfinnsson —”—
5. St. G. Johnson —”—
6. þorsteinn Johnson —”—
7. Konráð Normann —”—
8. Gunnl. B. Guðbrandsson —”—
9. Björgólfur Sveinson —”—
10. Sæmundur Árnason, Baldur
11. Tr. S. Arason, Cypress River
12. Sigmar Sigurjónsson, Baldur
13. H. Christophersson —”—
14. P. H. Christophersson —”—
15. Albert Olver, Cypress River
16. Bjöm Anderson —”—•
17. Haraldur Sigtryggsson •—”—
18. Kjartan Stevensson, Baldur
19. H. H. Johnson, Cypress Rhrer
20. Jón S. Anderson —”—
21. Emil Johnson —”—
22. Jónas Anderson —”—
23. A. C. Orr —
24. H. S. Anderson —”—
25. Helgi Helgason —”—
þess má geta að Anderson gat
ekki fundið nema tiltölulega fáa
menn, en það er eftirtektarvert, að
hann fann tæplega nokkurn mann
sem ekki keypti hluti og blaðið er
þar á svo að segja hverju heimili.
Tveir menn, sinn í hvorum bjrgð-
ai* hluta tóku að sér að finna þá,
senT Anderson gat ekki fundið.
Voröld flytur Argyle-búum bezta
þakklæti fyrir þann höfðinglega
þátt sem þeir hafa tekið í því að
trTgg:ja framtíð Voraldar. Bráð-
lega verður farið um aðrar bygðir
í sömu erindum; og væntum vér að
viðtökur og undirtektir fari þar á
svipaðan hátt. Argyle er fyrsta
bygðin sem farið er um í haust til
þess að selja hluti- í Hecla Press,
og gángi það erindi jafnvel ann-
arsstaðar, þa er Voröld vel borgið.
Blaðið hefir reynt að fylgja fram
málum fólksins og andæfa hnefa-
retti i öllum myndum, og fáum
ver sönnun þess með hverjum deg-
inum sem líður, að sú stefna er
metin.
Sigfús Benediktson frá Lang-
ruth er nýkominn til bæjarins og
dvelur hér vetrarlangt.
------o------
Jón Hjálmarsson að Kandahar,
andaðist J9. okt. að heimili Torfa
Steinsonar kaupmanns tengdarson-
ar síns eftir langvarandi veikindi.
Hann var 74 ára gamall. Hann
var merkur maður og vel látinn.
Ungfrú Sigrún Hallgrímsson
frá Argyle yar á ferð í bænum í
vikuun sem leið á mentamálaþing-
ósæmilegt opinberu blaði, að neitn
um rúm þegar um opinber mál er
að ræða. Og sanngimi er það að
leyfa báðum hliðum jafnt frelsi.
Ritstj.
mu.
Ef þið vitið ekki hvemig þið
eigið að komast til hans Hjálmars
Gíslascnar að 506 Newton Ave. í
Elmwood þá er leiðbeiningin hér:
Farið með Sargent vagninum alla
lleið niður til ^'Park línunnar”
skiftið þar um og farið með Elm-
wood vagninum eins langt og
hann fer; þaðan er Newton Ave á
hægri hönd.
Skýring
f ——
þegar verið var að byrja á prent
un Voraldar, barst oss í hendur
Heimskringla, og er þar skýrt frá
málsókn gegn blaðinu. pað er
jafnframt gefið 1 skyn að ritstjóri
jVoraldar eigi upp tök að því. Mál-
ið verður skýrt í næsta blaði, en
til bráðbyrgða skal því lýst yfir,
að Voröld eða aðstandendur henn-
ar eiiga engan þátt í upptöku máls-
ins eins og ritstjóri Heimskringlu
veit, nú, þó honum væri það ekki
kunnugt þegar hann reit grein
sína. — Var honum þar nokkur
vorkun vegna skorts á réttum upp-
lýsingum.
Munið eftir því, að í Lýðkirkj-
unni á sunnudaginn verður talað
um bæjarstjórnar kosningamar.
Ræðumenn þar verða S. J. Farmer
borgarstjóraefni, J. J. Samson,
bæjarful 1 trúaefni og Dr. Sig. Júl.
Jóhannesson. Fundurinn byrjar
kl. 7 e.h.
þau Jakob Helgason frá Kanda-
har og ungfrú Carry Hallgrímsson
frá ArgyJe voru gefin saman í
hjónaband í vikunni sem leið.
Brúðurirr er dóttir þeirra Bærings
Hallgrímssonár_og konu hans, en
brviðguminn er einn hinna myndar
legustu bænda í Kandaharbygð-
inni.
LEIÐRETTING
í 25. tölublaði Voraldar, er grein
sem okkur undirrituðum langar til
að gera athugasemd við. Fyrir-
sögn greinarinnar er: “Svona
gengur það er hún undir skrif-
uð af “Annar ferðalangur”. Á sú
grein að vera leiðrétting og skýr-
ing á grein sem stóð í Voröld í
næsta blaði þar á undan með sömvi
fyrirsögn, og undirskrifuð af
Ferðalang." En af því nöfn okkar
liafa verið birt í grein Ferðalangs
nr. 2, langar okkur til að leiðrétta
það sem' þar er rangt frá skýrt og
okkur er viðkomandi, og tökum
því upp það sem hann segir.
Á Gimli er tveir kjötsalar, J.
Sólmundsson og (Ásbjörn), Egg-
ertsson & Stevens. Stúlkurnar
komu inn í kjötverzlun Eggerts-
ertsson & Stevens og báðu Eggerts
son um fé. þetta var á laugardegi
og miklar annir við verzlun, Egg-
ertsson lcvaðst skyldi hafa þetta í
huga, en sanngjarnlega var tæp-
ast æt.last til að hann tæki fé úr
verzluninni til að gefa, án þess að
tala við félaga sinn.
En sannleikurinn er, að þegar
við komum inn í kjötverzlunina,
eins og framan er frá skýrt,, stóð
svo á, að þar var aðeins ein kona
í búðinni að verzla, og biðum við
þar til búið var að afgreiða hgna,
og þegar hún var* gengin út,, bár-
um við mál okkar upp við þá fé-
laga, Eggertson og Stevens, því
þeir voru þar báðir viðstacídir og
engir aðrir í búðinni.
Eggertson varð fyrir svH’rum, og
sagði undireins: “Eg held við get-
um ekkert átt við þetta, það er
svo mikið á ferðinni af þessháttar’
Af hvaða ástæðu að ferðalangur
nr. 2, hefir haft til að skýra svo
rangt, frá, eins og nú er frá skýrt,
látum við ósagt. En þar sem við
höfum heyrt því fleygt, að Ferða-
langur nr. 1, hafi átt að hafa sína
sögu frá okkur, þá finnum við okk
ur knúðar til að birta sannleik-
ann,í og leiðrétta það sem Ferða-
langur nr. 2, fer rangt með ; enda
gætu þeir bezt, Eggertsson & Stev-
ens, borið sannleikanpm vitni um
það framanskrifaða, að með því
er af okkur ekki einu orði hallað
frá því rétta.
Lára B. Thordarson
Louisa Freemanson
Athugascmd .
það er illa farið, að þessi deila
skyldi hefjast milli fólksins á
Gimli. Vér þekkjum báða parta
og þykr ilt að Vorökl skuli vera
ræðupallur þeirrar deilu sem un>
er að íæða; en hins vegar er það
Aldraður maður eða unglingur
j getur fengið atvinnn í vetur á
góðu sveitaheimili. Vopöld vísár
Bræðrakvöld verður haldið í st.
“Heklu” á föstudaginn. þar fara
fram allskonar skemtanir, svo sem
Jræðuhökl, söngvar, hljómleikar og
fleira. Auk þess ágætt kaffi og sæl
gæti með.
Glenboro Gazette tekur í sama
strenginn og Voröld, að því er
snertir dýramorð. það er ánægju-
legt að einn ritstjóri er nógu djarf
ur til þess að kveða við annan tón
en hinir í þessu efni meðal ensku-
ritándi manna. þótt naddirnar séu
stakar í eyðimörkinni, getur þeim
fjölgað
24. október voru gefin saman í
hjónaband ungfrú Sigríður Bjöms
son Riverton, Man. og Valdimar
Gíslason frá Gerald, Sask. Næsta
dag fóru brúðhjónin til Riverton
og búast við að dvelja þar um tíma
hjá móður brúðurinnar sorn þar
býr, en framtíðarheímili þeirra
verður að Genald, Sask., þar sem
faðir brúðgumans býr. Systir
brúðftrinnar, frú Ingibjörg Sveins-
son frá Glenboro, tengdadóttir
Árna Sveinssonar, kom til horgar-
innar til að vera við giftinguna
og fylgja ungu hjónunum til River
ton og um leið að sjá móður sína
og vinafólk; býst við að koma til
baka þann 27. þ.m. Hjónavígsl-
una framkvæmdi séra Rögnvi&ldur
Pétursson.
þau Sveinbj. J Sveinbjörhsson
frá Kandahar og kona hans ásamt
börnum sínum, komu vestan frá
Argyle á mánúdaginn, á heimleið,
eftir nokkurra vikna dvöl þar.
Hjón geta fengið atvinnu og gott
heimili í íslenzkri bygð í vetur.
ITæsta kaup, sérstákt, hús. Voröld
vísar á.
TJngfrú Jófríður Mýrman leggur
af stað vestur til Argyle á laugar-
daginn.
Munið eftir því, að hann TTjálm
ar Gíslason að 506 Newton ave.
Elmwood, hefir fengið heilmikið
upplag af allskonar ágætis bók-
um frá íslandi. Talsími hans er
St, Johns 724.
Jóh. Stephansson frá Kandáhar
kom til bæjarins 28. okt. í verzlun-
arerindum.
GísÍi Friðgeirsson frá Árborg
kom til borgarinnar 27. okt,. og
verður hér í vetur við nám á
verzhmarskóla.
Ritstjóri Voraldar. fór vestur
til Saskatehewan í vikunni sem
leið og kom aftur á mánudaginn.
Hann heimsótti íslendinga á Ant-
j ler og Sinclair bygðum og átti góð
!um viðfökum að mæta,
Snorri Johnson frá Tantallon
jkom til bæjarins um helgina og
j fór heimleiðis aftur þann 28.
GOÐAR BÚJARDIR
Vér getum selt yður bújarðlr smáar
og stórar eftir J>ví sem yður hentar,
hvar sem er í Vestur Canda. péi
getið fengið hvort sem þér viljið
ræktað land eða óræktað. Vér höf
um margar bújarðir með allri áhöfn,
hestum, vélum, fóðri og útsæði. paif
ekkert annað en að flytja pangað.
pægiúig borgunarskilyrði. Segið osf
hvers þérj>arfnist og skulum vér bæta
rtr pörfum yðar.
DOMINION FARM EXCHANGE.
StS Somerset block, - Winnlpeg
f
Lagarfoss er nýkominn til New
York. Með homim komu 19 far-
þegar; komu sextán þeirra hingað
til Winnipeg; hinir nrðu eftir
syðra. Meðal þeirra sem hingað
komu var séra Kjiartan prófastur
Helgason frá Hruna, Friðrik Guð-
mundsson frá Mozart og tveir syn
ir hans (Jón og Jóhann), Loftur
Johnson n fl.
Wynyard Advance segir að hús-
frú Jónína Eyjólfsson hafi farið
til Park River í vikunni sem leið,
og ætli að dvelja þar vetrarlangt.
Skrifstofa og starfstofa
verkamannaflokksins til bæjarstjórnarkosninga verður á skrifstofu
Voraldar að 637 Sargent Avenue. — þar fást allar upplýsingar við-
víkjandi kosningunum. Gætið þess að korna þangað sem fyrst og
fkoða kjörskrámaar, til þess að vera vissir um að nafn yðar sé þar.
KOL! KOL!
Vér getum afgreitt fljótt og vel bæði HÖRÐ og LIN kol.
Beztu tegundir. Ef þér hafið ekki byrgt yður upp nú þegar,
þá komið og sjáið oss. Vér getum gert yður ánægða.
Talsími Garry 2620
D.D.Wood & Sons Ltd.
Office og Yards: Ross Ave., horni Arlington Str.
Láttu ekki Sigurláns Bréf fyrir hálfvirdi.
Ef þú verður að selja þau þá sendu mér þau eða komdu
með þau; trygðu bréfið sem þau eru send í. Eg læt þig hafa
fult verð fyrir þau í peningum. Skrifið á ensku.
J. B. MARTIN 704 Mclntyre Block, Winnipeg.
(í viðskiftafélagi Winnipegborgar)
Séra Kjartan kemur hingað í
þjóðrækniserindum og hjóðum1 vér
hann einlæglega velkomirm.
Heill hópur af mönnum kom
vestan frá Argyle á mánudaginn
voru þeir nær 20 alls. Fjórtán
manns höfðu farið þangað frá
Minnesota og keypt sínar fjórar
hú.jarðimar hver fyrir $40.00 ekr-
una að meðaltali. þessir landar
voru í förinni: Bjöm Gíslason Iög-
maður, John A. Westdal, Halldór
Johnson, Á. Ó. Björnsson, Sveinn
Gunnlaugsson, A. S. Jósephson, W.
Reese og Pétur Anderson; með
þeim í förinni var Jósef Skafta-
son.
W. G. Simmons, kona hiams og
dóttir frá Argyle, voru á ferð í
bænum í vikunni sem leið.
H. J. Magnússon frá T'antallon
kom til bæjarins á mánudagiun og
fór heim aftur næsta dag. *
ISLENZKAR HLJOMPLOTUR
Sungið af E. HjaltesteS:
ólafur reið með björgum fraín og Vorgyðjan
Björt mey og hrein og Rósin
Fiolin Solo: Sólskrxkjan, Jón Laxdal (Sú rödd var svo fbgm
Samspil.- Jeg vil fá mér kærustu. (Söngur Skfifta-Hans)
SUNGIÐ Á DÖNSKU:
Hvað er svo glatt, og Den gang jeg drog af sted
VERÐ 90 CENTS
Swan Manufacturing Co.»
H. METHUSALEMS
Phone: Sherbrook 805 676 Sargent Ave.
NAIÐ I D0LLARANA
“1
Oss vantar allar tegundir af loðskinnum, og vér borgum
hæðsta verð fyrir. Verðlistar og spjöld fyrir nöfn ykkar
ókeypis.
Skrifið eftir yðar nú.
H. YEWDALL, Rádsmadnr
273 Alexander Avenue,
Winnipeg.
Albert Herskovits & Son, 44-50 W. 28th St., New York Oity.
The Clearing House of the Fur Trade.
References: Any Bank or Mercantile Agency.
London. Paris. Moscow.
1 ,
London.
ommO'mim-oimm-O'mm+u.mm’V
1 ni söii I '
Mjólkur-bú rétt hjá Winnipeg með öllu tilheyrandi úthaMii; einnig byggingum og landi, með mjög lágu verði. sernjið við
G. J. < Qoodmur ídsson
Garry 2205 696 Simcoe sferætó ♦
Walters Losmyndastofa
i
Sérstakt fyrir Islendinga
Walters ljósmyndastofa gefur öllum viðskíftavinum sínum
sem koma á Islendingadaginn, ljómandi fallega, stóra my»d,
fyrir alls ekki neitt.
NOTIÐ þETTA TÆKIFÆRI
GLEYMID EKKI WALTERS STUDIÖ
Walters Ljósmyndastofa, 290 Portage Ave.
Talsimi Main 4725