Alþýðublaðið - 14.01.1964, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 14.01.1964, Blaðsíða 3
WVm%WWWW*WHWWWWWWWiW*MWVW%*VWW%%W%WWWWHHWWWWMWHWWVtWWWWWWWWiWW»WWi%WVmWWW*» „Annar báturinn / ■ «\\ sem eg missi sagöi Helgi Benediktsson Arni Þorkclsson kemur með Hringversmenn til Eyja. Ljm. GO. Rcykjavík, 13. jan. RL. Helgi Benediktsson, eigandi Hringvers, var að sjálfsögðu kominn niður á bryggju þegar Kópur kom með skipbrotsmenn ina af honum. Við náðum tali af Helga. stutta stund. — Þetta er annar báturinn sem ég missi, en hinn var Helgi. Hann var ótryggður og fórst á Faxaskeri. En alls mim ég hafa átt um 30 báta. Hringver var byggður í Svíþjóð, en þá var annar bát- ur smíðaður eftir sömu teikn- ingu, en hún er sænsk. Sá sænski hefur reynzt vel í alla staði og er hið mesta aflaskip. T. d. var aflahluturinn á honum árið 1962 kr. 40.000 sænskar. Hringver hefur aldrei lagzt á hliðina, þó sumir segi svo. Það er ekki rétt. Það kom skvetta inn á hann í fyrra, en ekki var hún meiri en svo að maður sem staddur var á hval- bak, vöknaði ekki einu sinni í fæturna. Hringver var í svokölluðum Veritas klassa A-l-A með stjörnu og styrktur sérstaklega með það fyrir augum að sigla í ís. Skipstjórinn og skipshöfnin sem var á Hringver núna, er samvalið ágætis lið. En síld sem drepst í nótinni skapar þyngsli sem ekkert stendur fyrir, ef hún sekkur Ilelgi Benediktsson útgerðar maður. Ljm. G. O. Guðjón Ólafsson skipstjóri á Ágústu gengur I land úr Kóp. Daníel Traustason, skipstj. á Engey. — Ljm. G. O. Hringver var ekki vel „ballestaöur" sagði Daníel Traustason Reykjavík, 13. jan. RL. Ég tel að Hringver hafi ekki verið nógu vel „ballestað- ur“, sagði Daníel Traustason skipstjóri á Engey, en hann var með Hringver á þriðja ár og sótti liann út til Svíþjóðar. Við hittum Daníel um borð í skipi sínu við bryggju í Eyj- um en hann missti nótina í nótt á svipuðum slóðum og óhöppin áttu sér stað. — Þó var búið að lagfæra „Við réðum ekki við neitt sagði Richard Sighvatsson, skipstjóri á Hringver Reykjavlk, 13. jan. RL. Skipstjórinn á Hringver er ungur maður Ricliard Sighvats son. Hann er innfæddur Vest- mannaeyingur giftur Guðnýju Steinsdóttur sem einnig er’ Vestmannaeyingur og eiga þau þrjú börn 7, 3 og 1 árs. Við bönkuðum upp á hjá þeim hjónum rétt eftir að bóndinn kom heim og fengum smávið- tal. Frúin bauð uþp á kaffi. — Ég er nú 27 ára, en byrj- aði sem skipstjóri þegar ég var tvítugur og hefi verið við það. annað slagið siðan, sagði Ric- hard. Við Hringver tók ég í sept- ember í haust og kunni ágæt- lega við hann. Þetta var í fyrsta sinn sem við fengum síld að ráði, en við vorum komnir með 11-1200 tunnur og vorum að háfa. Það var kvika og nokkuð þung alda. Skyndilega Iagðist báturinn á hliðina bg við réðum ekki við neitt. Það var um kl. 5.30. Ég kallaði strax á hjálp, en skip- in voru þarna allt í kring, í einum hóp. Við settum strax út bát. Fimm mínútum síðar kallaði ég aftur og sagði að við vær- um að fara í bátana, en gaf mér engan tíma til að hlusta, enda var þá kominn sjór inn um allt skip. Þetta hefur tekið á að giska tíu mínútur í allt. Við höfðum engan tíma til að taka með okkur fatnað eða því umlíkt og galla og stígvél tók- um við ekki með í bátinn. Strákarnir stóðu sig vel, en þeir eru allir yngri en ég, nema kokkurinn sem er 52 ára. Það gekk vel að koma bátun- um í sjóinn en þeir voru báð- ir nýskoðaðir. Þetta er í stuttu máli það sem Richard sagði okkur, en hann vildi annars sem minnst segja, sem vonlegt er, þar eð sjópróf standa nú fyrir dyrum. þetta nokkuð, til dæmis var' tekið úr honum afturmastrið í fyrra ðg bætt við hann ballest. — Jú, hann lagðist einu sinni á hliðina þegar ég var með hann. Við vorum þá að háfa og vorum komnir með á að giska 1100 tunnur í lest, en þannig tókst að rétta hann við. Satt að segja var ég alltaf hræddur við þetta skip og vék aldrei frá stýrinu ef nokkuð var að sjó. Hringver var góður á móti, en á lensi var hann varasamur og vakur. En mér finnst ég alltaf eiga eitthvað í bátnum, enda sótti ég hann út og var með hann á þriðja ár. Við hrepptum aftakaveður á leiðinni frá Svíþjóð, 13—14 vindstig og sigldum liæga ferð, eða um það bil 8 mílur. Þá mátti ekki bera undan við stýr- ið enda var lens. Ég þorði ekki að snúa uppí, því að báturinn var svo til tómur. En annars gekk mér vel með Hringver. Það virtist vera mikil síld þarna fyrir austan og yfirleitt hafa bátarnir ekki þurft að kasta nema einu sinni til að fylla sig. Það er frekar að þeir hafi fengið of mikið í kasti, það getur verið nógu slæmt. Við micstum nótina í nótt, vor- um þá að háfa á sextíu faðma dýpi. Nótin sökk með öllu sam- an, blýi og korki og festist í botninum. Nótin er sjötíu og einn faðmur á dýpt. Við vor- um staddir í austurkrikanum Síðugrunni, en þarna voru um 50 skip eða meira. Richard Sighvatsson með konu sinni og 2 börnum. Ljm. G.O. %%%%%%%%%%%ww%%%%%tt%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%ww%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%w%%%%%%%%%%%%%%%%%w%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%w%w ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 14. janúar 1964 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.