Alþýðublaðið - 14.01.1964, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 14.01.1964, Blaðsíða 10
Trésmiðadeilan Framli. af 7. síðn unj, hefur lækkað um 20—30% en þessi vinna er verulegur hluti þeirrar vinnu sem skylt er a'ð vinna í uppmælingu og unnin hef- ur verið síðastliðið hálft annað ár. Þá er það einnig staðreynd að á sama tíma kröfðust meistarar og fengu fram, 50% hækkun á álagn- ingu sinni á ákvæðisvinnu, einn- ig að þegar þeir semja við okkur sveina 1962 eftir hörð átök um 8—17% kauphækkun, skammta þeir sjálfum sér kauphækkun upp á 20-40%. Ótalmargt fleira má nefna sem sýnir hug þeirra í garð húsbyggj- andans. * . Að öll deilumál séu útkljáð með gerðardómi er furðuleg fullyrðing að afloknum víðtækustu verkföll- um í sögu þjóðarinnar. Að okkar sveinum hafi alltaf staðið til boða 15% kauphækkun ei^s og öQrum, ^r vissulega hraustlega mælt af fulltrúum fél- ágs, sem daginn áður felldi að gera samning þar um. En það ; hinsvegar kennir okkur sveinum enn betur að meta orð og athafn- ir meistara. Trésmiffafélag Reykjavíkur Svo sem kunnugt er liefir ákvæð 1 isvinna trésmiða farið mjög í vöxt j hin síðari ár og eftir kaup- og i' kjarasamninga þá, er gerðir voru i sl. sumar mun láta nærri að 60% allra starfandi trésmiða vinni skv. jákvæðisjvinnutöxtiþn. Sk^. gUd- andi málefnasamningi milli Tré- I smiðafélags Reykjavíkur og Meist arafélags húsasmiða í Reykjavík skulu eftirfarandi verk unnin í ákvæðisvinnu: ^ * „Öll trésmiðavinna í nýbygging um fyrir ofan neðstu plötu við uppsteypu húsa ( að fokheldu á- standi) þar með talið glerglugga- rammar og lögn á þakefni sem á- . kvæðisvinnutaxtinn nær yfir skal unnin samkv. þeim taxta, og skal þá semja við sveina áður en vinna hefst um stærð hvers verks og . um hve margir skuli vera í því.“ Taka verður fram að litil reynsla . hefir skapazt í sambandi við margs , konar verk í ákvæðisvinnu og þurfa því ákvæðistaxtamir endur skoðunar við. Textanefnd skipa sex fulltrúar, þrír frá sveinum og þrír frá meisturum. Tillögur til breytinga á töxtunum geta því skv. framansögðu fallið á jöfnum atkvæðum og hefur reynslan orð- ið sú f nefndinni, að flestar til- ■ lögur til breytinga á ákvæðis- -vinnutaxtanum hafa fallið á jöfn- um atkvæðum, a.m.k. ef um hefir i verið að ræða að lækka taxta, sem meistarar töldu óeðlilega háan. Það að núverandi taxtanefnd vill nær aldrei lækka kaupiaxtann, hversu ósanngjarnlega hár, sem hann hefir reynzt í framkvæmd. Ástand þetta hefur nú varað svo lengi að ekki verður við unað, hvorki af hendi meistara eða hús byggjenda. Hafa meistarar því sett fram sem áfrávíkjanlega kröfu við núv. samningsgerð að óhlutdræg- ur aðiíi fengi oddaaðstöðu til að ráða til lykta þeim ágreiningsefn- um um upphæð ákvæðisvinnutaxt ans, sem ekki fæst samkomulag um í taxtanefndinni. Lagði meist- arafélagið í því sambandi fram eft irfarandi tillögu á síðasta sátta- fundi aðfaranótt 8. janúar sl. „Samningsaðilar, komi sér sam- an um að skípa nú þegar nefrul í sambandi við ákvæðisvinnu. Nefnd in skal skipuð einum manni frá hvoru félagi og hlautlausum aðila. tilnefndum af Iðnaðarmálastofn- un íslands. Verksvið nefndarinnar er að taka við kvörtunum og úrskurða í sambandi við verk er þykja koma út óeðlilega há eða óeðlilega lág. Kæruaðild hafa sveinar, meistarar og verkkaupi. Nefndin skal rannsaka sambæri leg verk, sem unnin hafa verið við breytilegar kringumstæður. Full- trúar félaganna í nefndinni geta hvor um sig krafizt þess að allt að 15 verk séu rannsökuð. Skylt skal svelnum að skila meistara vikulega tímaskýrslu er greini unninn tíma hvers dags. Meistari skal skila tímaskýrslum yfir verkið, er hann biður um mælingu, og er óheimiit að fram kvæma hana, nema tímaskýrsla liggi fyrir, og skal nefndin hafa aðgang að þeim áaamt öllum upp lýsingum er hún óskar. Nefndin ieggur niðurstóður sínar fyrir verðskrárnefndir félaganna, og skulu þær þá skila endaniegu áliti innan viku, annars gildir úrskurð ur þriggja manna nefndarinnar.“ Eiris og fram kemur af tillög- unni gildir álit þriggja manna- nefndarinnar aðeim, þegar á- greiningsatriði hefur tvisvar far- ið fyrr taxtanefnd félaganna, án þess að fá þar afgreiðslu. Sýnist þá óhugsandi annað en úr ágrein- ingnum verði að skera og ætti hiutiaus oddaaðili, þar eins og í öðrum málum, þar sem tveir deila að vera sá, sem úrslitum réði. Þetta fyrirkomulag tiðkast ails staðar, þar sem svipað stendur á, enda óhjákvæmilegt, þar sem lýð- ræðislegar reglur og aðferðir eru í heiðri hafðar. Slíkar reglur virð- ist „núverandi stjórn“ Trésmiða- félags Reykjavikur hins vegar ekki geta sætt sig við og er meir en bágt tii þess að vita. Eins og að Iíkindum lætur verða ósanngjarnir ákvæðisvinnutaxtar ekki tii þess að auka trú almenn- ings á ákvæðisvinnufyrirkomulag- inu yfr höfuð og er illt til þess að vita, ef fáeinum öfga-mönnum tekst að spiila fyrir slíku fyrir- komulagi, sem öllum jafnt laun- þegum og vinnuveitendum og þjóðinni í heild á að geta verið til ómetanlegra hagsbóta. Það skal tekið fram að trésmiða sveinar hafa frá byrjun átt kost á sömu kjarabótum og aðrir laun- þegar fengu með samningunum 21. des. sL, þ.e. 15% kauphækk- un mgð þeim skilyrðum einum, er að framan greinir. Meistarafél. húsasmiffa í Rvík Vinnveitendasamband ísl. Lei khúsumræða Rússar kaupa millj. lestir MOSKVA, 11. jan (NTB-RT). Samningur um sovézk kaup á milljón lestum hveitis í Bandaríkj unum var undirritaður í morgun, að sögn Tass. Hannes á horninu Frh. af 2. síðu. tímann, sem mun óþægiiegt að framkvæma. Enda mest um vert að aftryggja fornsölu £ framtíð- inni.“ Hannes á horninu Framh. af bls 7 unum og skoðun sinni á þeim án nokkurra kennaratilburða og án þess að ætla að skoðun sín sé neinn endanlegur dómur. Og þetta verða lesendur hans að gera sér ljóst eigi þeir að hafa not af skrifum hans. * Á fundinum skaut upp þeirri hugmynd að gagnrýnendur legðu misjafnt mat á starf Þjóð leikhússins og Leikfélags Reykjavíkur, hefðu ólíka „verð mætaskala" á sýningar leikhús- anna eins og Sveinn Einarsson leikhússtjóri komst að orði. Gunnlaugur Þórðarson hreyfði einkum þessu efni, en viðstadd ir gagnrýnendur, við Sigurður A. Magnússon, þrættum harð- lega fyrir, þótt við höfum víst ekki sannfært Gunnlaug. Oft verður vart við þvílíka skoðun en misjafnlega rökstudda; ég hef enn ekki séð það sannað að sýningar Leikfélagsins hljóti að jafnaði betri dóma en Þjóð- leikhússins. Og víst erþað hugs anlegt að Leikfélagið standi framar í list sinni en Þjóðleik- húsið og sýningar þess séu að jafnaði betri, þótt enn erfið- ara verði að vísu að sanna það. En eftir grandgæfilega sam- vizkuskoðun get ég fullyrt fyrir mína parta að ég geri sam- bærilegar kröfur til beggja leikhúsanna, hef engan þann ó- þokka á Þjóðleikhúsinu sem meini mér að njóta sýninga þess né ber þann ástarhug til Leikfélagsins sem vefji það dýrðarljóma fyrir mér; ekki hef ég heldur séð slíka veikleika með öðrum gagnrýnendum. (Það er svo annað mál að oft- lega sætir stjóm Þjóðleikhúss- ins gagnrýni, misiafnlega rök- studdri, en oft verðskuldaðri að minni hyggju.) Á það var bent á fundinum (Lárus Sigurbjörns son og Ólafur Mixa) að leik- húsin starfa við ólík skilyrði, eiea sér ólíka fortíð og arf- leifð og ólíkt andrúmsloft, og að húsin sjálf eru gagnóiík, hlut föll sviðs og salar og þar með samband áhorfenda og leik- enda. Vert væri að reyna að gera sér grein fyrir og meta Betty Állen Framhald af 4. síffn. einkennandi blæ. Þessu venst hlustandinn furðu fljótt. Á seinni hluta tónleikanna voru lög eftir Grieg, Carl Sinding og þrjú lög eftir bandarísku tónskáldin Virgil Thomson, David Diamond og Ho- ward Swanson. Lögin eftir Norð- mennina voru sérlega vel flutt og á lýtalausri norsku að sögn fróðra : manna. Bandarísku lögin voru einnig mjög áheyrileg og þó sér- staklega Joy eftir Swanson. Þess- um ágætu tónleikum lauk með þrem Negro Spirituals, og er ekki þörf á að fara mörgum orðum um túlkunina; hún var eins áhrifa- mikil og bezt verður á kosið. Söng- konunni var ákaft fagnað að efn- isskránni lokinni og varð hún að syngja nokkur aukalög, þar á með- al Ðraumalandið eftir Sigfús Ein- arsson, — á íslenzku. Þáttur und- irleikarans á þessum fjölbreyttu tónleikum var stór og skilaði Árni Kristjánsson því hlutverki með sinni alkunnú smekkvísi-og ná- kyæmni. Jón S. Jónsson. þessi efni öll og áhrif þeirra. > Þetta er eittr það efni, sem fróðlegt væri að heyra til um- ræðu, störf leikhúsanna og staða þeirra innbyrðis; í því sambandi hlýtur hugur að bein- ást að væntanlegu borgarleik- húSt"og hlutverki þess. Leik- gagnrýninni sjálfri hefði þurft að*ggra miklu betri skil, ræða í /sgjgengi um hlutverk henn- ar og þær kröfur, sem með íiaðSgimi verða gerðar til _la||arýnenda, menntun þeirra -ð^^tarfsskilyrði, samvinnu eða ■sawyinnuleysi við leikhúsin, ipilStinra og leikara. Mér er prifSBnulega alls engin laun- rillg'IS því að mér er þörf miklu ^SWfetri þekkingar á prakt- ;ís»a- ieikhússtarfi; og ég hygg ajjjjjpjna gildi um aðra gagn- "rynendur, alla sem einn. Ein - leíðin tíl slíkrar þekkingar er ■eoSRsIeg samræða við starf- andr leikhúsfólk um hvers kon -MsWidamál leikbúsa, leikhús- miagna og gagnrýnenda; og hvað sem öðru líður sannaði þessi fundur að jarðvegur er ^Jyrir slíka samræðu. En í stað -þess að efna brotalaust til hennar skaut Leikfélagið sér bak við brezkan útvarpsleik, gaf síðan færi á klukkutíma spjalli vítt og breitt um það . sem í hugann kom sem sumt var skrýtið. Það var bágt að _ekki tókst betur til; en þó var þetta betur en ekki. — Ó. J. ///!'/'. S*(U£2. Efnangrunargler Framleitt einungis úr úrvafa* íleri. — 5 ára ábyrgð. Pantiff tímanlega. j Korkiðjan hJF. Snittur Opiff frá U. 9—23.30. Sími 16012 Brauðstofan Vesturgötu 25. Simi 245<>9. Laus staða í Landspítalanum er laus staða fyrir karl eða konu við stjóra á heilaritunartæki spítalans. Æskilegt er, að ura- sækjandi hafi stúdentspróf og er við það miðað, að náms- og æfingartími í meðferð tæfeisins taki 1 til 2 ár. Aðrar upplýsingar um stöðuna, kjör o. fl. verða veittar á Skrif- stofu ríkisspítalanna. Umsóknirmeð með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist til Skrifstofu ríkisspítalanna, Klappar- stíg 29 fyrir 20. febrúar n.k. Reyfejavík, 10. janúar 1964. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA. ÞJÓÐDANSAFÉLAG REYKJAVÍKUR Kennsla í nýjum námskeiðum hefst í kvöld í Breiðfirðinga búð. Fyrir byrjendur í gömlu dönsunum kl. 8.00 og framhalds- flokkur í gömlu dönsunum og léttum þjóðdönsum kl. 9.30. — Innritun á staðnum. Upplýsingar í síma 12507. Móðir mín Elín Jóhannesáóttir Mávablíð 38, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðviicudaginn 15. janúar kl. 13.30. — Blóm afbeðin. Þehn, sem vildu minnast hinn- ar látnu • er vinsamlega bcnt á systrafélsgið Alfa, Ingólfsstræti 19. Sími 16210. Fyrir hönd aðstandenda Helgí Jénsson. X0 Í4. janúar 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.