Alþýðublaðið - 30.01.1964, Page 2
aitstjórsr: Gylfi Gröndal (áb. og Benedikt Gröndal — Fréttastjórl:
. Ámi Gunnarsson. — Ritstjórnarfulltrúi: Eiður Guðnason. — Símar:
14900 14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við
Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskriftargjald
kr. 80.00. — í lausasölu kr. 4.00 elntakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinl
REIKUL ANDSTAÐA
U M ÁRAMÓTIN 1959—60 bjuggu íslending
;iar við margfalt og flók'ið uppbótakerfi til að halda
útflutningsatvinnuvegunum gangandi. Gerðu nú-
verandi stjórnarflokkar það að sínu fyrsta verki,
að undirbúa nýja efnahagsstefnu, vílðreisnina. Voru
uppbætumar afnumdar með því að breyta gengi
(krónunnar, nema hivað togaraútgerðin 'hélt áfram
tað njóta aðstoðar og útflutt kjöt naut enn styrkja.
Þegar þetta gerðist, snerust Framsóknarflokk
urilnn og kommúnistar öndverðir gegn hinni nýju
stefnu. Þeir vildu sýnilega hafa uppbótakerfið á-
fram og 'töldu það mesta afturháld að farga því
Viðreisnin hefur staðið í fjögur ár og hefur ver
ið rammi um mestu velmegun og framfarir í sögu
þjóðarinnar, auk þess sem hagur hennar gagnlvart
umheiminum hefur aldrei betrj verið. Því miður
fór svo árið 1963, að ríkisstjómíin fékk ekki ráðið
við verðbólguna innanlands, en iverðlag og kaup-
'gjald hækkuðu hröðum skrefum. Ríkisstjómin
varaði aðila vinnumarkaðs’lns við þessari þróun og
skýrði afdráttarlaust frá því fyrir jól, hvaða dilk
isamhingamir þá mundu draga á eftir sér.
Nú hefur ríkisstjómin neyðzt til að flyja frum
varp um aðstoð við sjávarútveginn, þar sem farið
er aftur :lnn á uppbótaleið.
En hvað gerist?
Framsóknarmenn pg kommúnistar, sem fylgdu
uppbótaleiðinni 1960 og haf a fylgt 'henni æ síðan —
greiða atkvæði á móti fmmvarpi ríkisstjómarinn-
iar.
Með öðmm orðum: Stjórnaranídstaðan befur
enga stefnu í efnahagsmálum —- aðra en að vera á
,móti ríkisstjórninnil, hvað isem hún gerir.
OLYMPÍUÁR
OLYMPÍUÁR er hafið. Vetrarleikar hófust í
gær í Innsbmck í Austurríki, en sumarleikar verða
haldnir í Tokio í Japan á sumri komanda. Hin
mikla hátíð iþróttamanna, sem haldin er eftir hin-
um göfugustu fyrilrmyndum frá blómaskeiði Fom-
Grikkja, mun á þessu ári draga til sín athygli mann
kynsins og sýna því, hvemig æskumenn allra þjóða
geta mætzt í drengilegri keppni, hviersu róstusamt
sem er á landamæmm eða í höfuðborgum ríkjanna.
íþróttir geta aukið friðsamleg isamskipti þjóða
og eytt tortryggni, sem er eldlviður haturs og ó-
friðar. Fyrir hið mikla uppeldis- og heilsugildi
íþróttanna er þetta hinn þýðingarmesti skerfur
þeirra til samtíðarinnar.
HÚSBYGGJENDUR
í TVIILLIVEGGINA: VIÐURKENNDASTA OG ÓDÝRASTA MILLIVEGGJAEFNIÐ:
PLÖTUR: 50x50 cm 5 og 7 og 10 cm þykkar úr Seyðishólarauðamölinni.
50x50 cm 5 og 7 og 10 cm þyklcar úr Snæfellsvikrinum.
í EINANGRUNINA: SNÆFELLSVIKURPLÖT UR PLÚS PLAST: BEZTA EINANGR-
UNIN PLÖTUR 50x50 cm 5 og 7 og 10 cm þykkar úr Snæfellsvikrinum.
PLAST: 100x50 1” og V/z“ og 2“ HLÝPLAST OG VARMAPLAST.
í INNRÉTTINGAR: HVERS KONAR ÞILPLÖ TUR HARÐVIÐUR OG SPÓNN:
PLÖTUR: 122x244 cm 12 og 15 og 18 mm LIGNA SPÓNAPLÖTUR.
122x244 cm 16 og 19 og 22 mm LI GNA GABOONPLÖTUR.
122x244 cm 9 og 16 og 19 mm LIGNA HÖRPLÖTUR.
TEAKSPÓNN — EIKARSPÓNN — FURUSPÓNN-BRENNISPÓNN — BIRKISPÓNN.
Greiðsluskilmálar eftir samkomulagi miöað við magn.
JÓN LOFTSSON H.F.
vm
ALDAMÓTABARN skrifar mér:
„Mig langar að gera smávegls at-
hug-asemd við grein „Andvara" í
Alþýðublaðinu 16. janúar. Börnin
fara of snemma í skólann. Það er
náttúrunnar eðli að taka daginn
snemma og fara snemma í háttinn.
Börnin myndu bara drolla þess
lengur á kvöldin, ef þau mættu
sofa lengur á morgnana. Flestir
foreldrar þurfa nú orðið, endi-
lega að þeim finnst, að fara út
að skemmta sér á kvöldin, fara í
bíó, i Klúbbinn til að dansa og
stundum líka til að borða, eða á
einhverja aðra staði. T. d. í sauma
klúbb eða spilaklúbb. En þá sjald
an þau eru lieima, eru gestir. í-
búðin glymur af hlátrum og sköll-
um, full af tóbaksreyk, og stund-
um er líka skálað.
„HLUSTIÐ Á ÚTVARPIÐ,
krakkar eða horfið í sjónvarpið
og verið þið svo liáttuð kl. 10. Þið
skuluð ekkert vera að hlusta á há-
vaðann í okkur innan úr stofunni,
það er ekkert fyrir böm, sem við
erum að hlæja að“ Og svo um 11
eða hálf tólfieytið rekast mamma
eða pabbi inn til þeirra. „Hvað?
eruð þið ennþá á löppum, svika-
hrapparnir ykkar? Snáfið undir
eins í bælið, þið verðið ■ skemmti
leg í fyrnamálið". „Við gátum ekki
farið að sofa, það var svo gaman
að hlusta á útvarpið, það var ver
ið að herma eftir kennaranum okk
ar og líka prestinum". „Svona, í
bælið með ykkur, eða ég slekk
ljósið“.
HVERS VEGNA ERU HJÓN að
eiga börn, sem ekki nenna að
sinna þeim fyrir skemmtanafýsn
í sjálfum sér? Af hverju er orðið
svona mikið af taugaveikluðum
Pressa fötin
meðan þér bíöið.
Eatapressun A. Kúld
Vesturgötu 2S.
I a
'j Undirrót vandræðanna- |
■Jc Börnin og heimiiin.
Jr Skemmtanafýsn hinna fullorSnu.
■Jc Ein og vegalaus lokuS inni. |
»«mmimmiimmtimmmmitmmmiimim*'mmim.**i*mimmmmmm*m****iimm**im**,,m>*>*****>mmnimi
börnum? Hver á sökina? Af hverju
hafa foreldrar ekki lengur gaman
af að segja börnum sínum fallegar
sögur, kenna þeim falleg kvæði,
raula með þeim sálma, fara með
þau í kirkju á sunnudögum, og
síðast en ekki sízt, að kenna þeim
vers og bænir og signa þau á kvöld
in?“
BÖRNIN ERU DAUÐHRÆDD
þegar þau eru skilin eftir ein
heima á kvöldin, eða þau eru að ríf
ast óg enginn fullorðinn til að
skakka leikinn. Fullorðna fólkið
virðist ekki hugsa um annað en
hvernig það geti skemmt sér fyr
ir peningana, sem það hefur kann
ski þurft að vinna fyrir í eftir-
vinnu, og svo fer þetta í skapið á
því, og það lendir svo aftur á börn
unum. Og svo er fólk að furða
sig á, hvernig börnin og imgling
arnir séu orðin, og að kennarinn
skuli ekki geta haldið aga í tím-
anum, þegar þau geta ekki haldið
sér vakandi nema með því að láta
illa, allt vegna þess, að enginn var
heima til að sjá um að þau færu
snemma að sofa.
ÉG VILDI ÓSKA að Bamavemd
arráð kynni einhver ráð til úr-
bóta. En á meðan við höfum ekkl
fengið siðferðisþroska jafnhiiða
velgengninni.' þá er ég því miður
vondaufur um iað úr rætist“.
_______________________________
I
Hjólbarðavi&gerðir
Fljótt og örugg bjónusta. Hjólbarðinn til-
búinn innan 30 mínútna. Sérstök tæki fyrir
slöngulausa hjólbarða Felgur í flestar teg-
undir.
Réynið víðskiptin-
OpiS frá kl. 8 árd.
til 11 s.d. alla daga
vikunnar.
Þverholti 6
(Á horni Stórholts og
Þverholts'
Starfsstúlkur óskasí
Tvær istúlkur ivantar í eldhús Kópavogshæl-’
is. Hálfidiags vinna kemur til greilnia. Upplýs-
inigar hjá miatráðskonunni í síma 41502.
Reykjavík, 28. janúar 1964. j
Skrifstofa ríkisspítalaima.
2 30. jan. 1964 — ALÞÝÐUBLA0IÐ