Alþýðublaðið - 30.01.1964, Blaðsíða 5
g^MHUMMii«i«»*Mi«Mu«uiiM««MM*«««MiMriMHHiiiHHUHUUUMMi«iHiHUMiiuuMiuMiuuiUMiHuiuiui«iMMUMHUWUMHiuHHMuuuinuiiiiiuiiiiiimuiiuuiuiiiiuuiiHumuHiiuiiiiiiiiiiiiiiiUHUuiiiuniiiiiiuiiiiHiuiMuiiuuiii»fiiiiiHUiiHiiiuuiiHuiiiuiiiiiiuiiiHiuimiiiuiiiiiiiiiiuniuuiiuiiit
5 ^
AUSTUR-AFRlKU
MÖRGTíM spurningum er enn
ósvarað efcir ólguna, í
fyrrverandi nýlendum Breta í
Austur-Afríku síðustu vikurn-
ar. En atburðirnir hafa svipt
hulunni af miklum andstæðum
og spennu, sem hefur ríkt und-
ir niðri og hið nýfengna sjálf-
stæði hefur ekki getað haldið í
skefjum.
Heimurinn varð vitni að
blóðbaði á Zanzibar þar sem
meirihluti manna af afrísku
bergi brotinn veittist gegn ar-
abískum íbúum eyjunnar. í
Tanganyika var farið ráns-
hendi um indverskar verzlanir
og þóttu það eftirtektarverðar
eftirhreytur uppreisnar her-
manna í höfuðborg landsins.
Óttazt var, að hinir hörmulegu
atburðir í Kongó, sem eru
mönnum í fersku minni,
mundu endurtaka sig, og þár
við bættust tilraunir kommún-
ista til að seilast til áhrifa.
En á sunnudaginn höfðu Bret
ar bælt niður uppreisnirnar í
Dar-es-Salaam og Tabora í
Tanganyika, í Jinja í Uganda
og i Lanat og í Langata-her-
búðunum skammt frá Nairobi í
Kenya. Bretar sendu ekki her-
sveitir sínar á vettvang fyrr en
þeim höfðu borizt skrifleg til-
mæii frá hlutaðeigandi ríkjum,
sem eru öll í brczka samveld-
inu, en þegar tilmælin höfðu
borizt, létu Bretar til skarar
skríða á svipstundu.
★ ÓÁNÆGJA
HERMANNA
Svo virtist sem uppreisnirnar
væru skipulagðar samkvæmt
einni heildaráætlun og að Bret-
ar hefðu tiltæka aðra áætlun á
inóti. En þótt ýmislegt benti til
utanaðkomandi áhrifa, sem
bæði Bretar og afrískir ráða-
menn höfðu áhyggjur af, virðist
einfaidlega hafa verið um
keðjuverkanir að ræða vegna
ólgu undir niðri og óánægju
afrískra hermanna, sem hermt
-hafa hverjir eftir öðrum.
í Tanganyika, Uganda og
Kenya hafa yfirvöldin haldið
vissum fjölda hvítra liðsfor-
ingja til að stjórna hersveitum
imifæddra meðan verið er að
koma upp liðsforingjastétt
hæfra og vel menntaðra inn-
lendra manna. En slík skipan
mála getur valdið árekstrum.
Hermennirnir, sem gerðu upp-
reisn í Tanganyika á mánudag
í síðustu viku kröfðust þess, að
hvítu liðsforingjarnir yrðu
reknir.
Hermennirnir hafa einnig
verið óánægðir með laun sín og
aðbúnað. Þeim finnst þeir vera
vanmetnir og það hefur valdið
þeim vonbrigðum, að þjóðlegt
sjálfstæði hefur ekki veitt þeim
þá stöðu og virðingu, sem
hvítu hermennimir höfðu. Þeg-
ar hermennirnir sjá síðan, að
þeir geta stutt kröfur sínar
með valdi verða þeir hættulegt
afl í stjórnmálunum.
Einnig er ljóst, að stjórn-
málamenn, sem gera bandalag
við hermennina, eða ala á ólg-
unni sem hermannauppreisn-
irnar valda, hafa góða mögu-
leika á að koma sér í mikil-
væga aðstöðu.
★ ZANZIBAR
Atburðirnir í Tanganyika,
Uganda og Kenya undanfarna
daga falla vel inn í þessa mynd.
Hi'ns vegar er enn lítið um það
vitað hvaða samband er milli
þessara atburða og byltingar-
innar á Zanzibar. Tvær and-
stæðar kenningar eru uppi um
þetta: D að byltingin á Zanzí-
bar og eftirhreytur hennar í
Kenya, Tanganyika og Uganda
séu afleiðing samsæris komm-
únista og jafnvel tilraunar Kin-
verja til þess að ná völdum, og
2) Að þótt kommúnistar og þá
einkum Kínverjar séu athafna-
samir á Zanzibar séu flcstir afr-
ískir þjóðernissinnar í raun og
veru afrískir þjóðernissinnar
eins og þeir segjast vera. Þeir
vilji ekki, að lönd þeirra verði
kínversk leppríki svo stuttu
eftir að þau komust undan yf-
irráðum Breta. Það sé jafnvel
óvíst hvort Kínverjar geti ráð-
lagt Zanzibar í utanríkismálum
á næstu mánuðum eða jafnvel
árum.
Það sem þykir mjög senni-
legt, er, að mikil togstreita eigi
sér stað á Zanzibar og að menn
hlynntir kommúnistum hafi yf-
irtökin í svipinn. í byltingar-
stjórninni á eyjunni eru þrjú
höfuðöfl: 1. John Okello, sem
kallar sig marskálk, og 700 vel-
vopnaðir uppreisnarmenn hans.
2. Hinn nýi utanríkisráðherra,
Mohammed Babu, og lítill
marxktaflokkur, hans, Umma-
flokkurinn, og 3. Nýi forsetinn,
Abeicl Karume og hinn stóri
flokkur hans, Afro-Shirazi-
flokkurinn.
Þótt Karume hafi án efa
mestu fylgi að fagna á Zanzi-
bar (flokkur hans fékk 54%
atkvæða í kosningum í fyrra),
hafi svipaðar skoðanir og ráða
menn í Tanganyika og sé and-
vígur kommúnistum, hafa
lcommúnistar mikil áhrif á
Okello og þau öfl, sem kring-
um hann eru. Bæði Sovétríkin
og Kína flýttu sér að viður-
kenna nýju stjórnina, sem kann
að opna þeim möguleika í ut-
anríkismálum. Margir af nýju
valdhöfunum hafa dvalizt lengi
í Moskvu og Kúbu.
JULIUS NYERE, forseti Tanganyika,
um hermönnum í Dar-Es-Salaam.
fylgd meff hliðholl-
★ OBOTE BRA SKJOTT VIÐ
Þegar hermenn í Tanganyika
gerðu uppreisn hafði Nyerere
forseti sent sveit lögreglu-
manna til Zanzibar og átti hún
að aðstoða við að halda uppi
lögum og reglu að beiðni
byltingarstjórnarinnar. Upp-
reisnarmennirnir höfðu því
frjálsari hendur en ella.
Byltingin á Zanzibar vakti
þegar í stað ugg Nyerere, en
hins vegar var henni fagnað af
Obote, forsætisráðheri'a í U-
ganda, og ýmsum ráðherrum í
stjórn Kenyatta í Kenya, eink-
um Oginga Odinga, hinum
valdamikla innanríkisráðherra.
Byltingin á Zanzibar varð til
þess, að Bretar ákváðu að vera
við öllu búnir. Þeir höfðu þeg-
ar haft uppi viðbúnað og gert
áætlanir um að koma til hjálp-
ar ef þess yrði farið á leit, eink
um í Kenya þar sem aukin
spenna hafði gert vart við sig
eftir að landið öðlaðist sjálf-
stæði í desember. Atvinnuleys-
ingjar héldu mótmælafundi í
Framh. á 10. síffu
111111111111111111111111111
III11111111111111111111111111111111111111111IIII
IIIIIIIIIIIIIIIIMIIII
IIIIII llll 1111111111111111IIIlllillll
11111111111IIIIIIHIIIIH •<!/,■
TÖNLEiKAR SINFONIUHLJOMSVEITARINNAR
ÁTTUNDU tónleikar Sin-
fóníunnar í Háskólabíói 24. jan.
s.l. voru venju fremur eftir-
tektarverðir og ánægjulcgir.
Bandaríska tónskáldið og hljóm
sveitarstjórinn Gunther Schuli
er ha.fði stjórn með höndum
og einleikari var Gísli Magnús
son, píanóleikari. Efnisskráin
var harla nýstárleg fyrir ís-
lenzka áheyrendur; sex þýzkir
dansar eftir Schubert í hljóm-
sveitarbúningi eftir Anton We-
bern, Sinfónía op. 21 eftir We-
bem og fyrri liluta tónleik-
anna lauk með píanókonsert eft
ir Joseph Haydn.
Anton Webern er það tón-
skáld sem einna mest áhrif hef
ir haft á þróun tónsmíði í hin-
um vestræna heimi síðustu ára-
tugina, og er sinfónía sú er
hér var flutt mcðal merkustu
verka hans. Sinfónían, sem er í
tveim köflum, er skrifuð fyrir
litla samsetningu: 2 kiarinet, 2
liorn, hörpu og strengi, og tek-
ur eitthvað innan við 10 mínút
ur að flytja hana. Hnitmiðaður
arkitektúr einkennir þetta verk
sem önnur eftir Webern og
þrátt fyrir að möguleiki er á
að færa fram all flóknar stærð-
fræðilegar skýringar á vinnu-
aðferðum og efnisnotkun í verk
inu, þá er það í einfaldleik sín
um all rafmagnað og lýriskt,
þ.e.a.s. ef flutningur tekst vel.
En því miður skeði það ekki
hér. Það fer ekki á milli mála
að Schuller veit hvað hann syng
ur, en þar sem hljóðfæraleik-
aramir (margir hverjir) hafa
því miður ekki haft mikil verk-
leg kynni af nútíma tónlist, er
ekki að búast við stórkostleg-
um árangri. Þótt einstakir hljóð
færaleikarar væru afbnagð, svo
sem sólófiðlan og klarinett-
in, þá voru heildaráhrifin lak-
ari en efni stóðu til. Hljóðfæra
leikararnir þurfa að fá tíma
-pr
ÍN
crp
til að „ganga með“ þetta verk,
það leynist margþæt sál á bak
við skrifuffu nóturnar í sin-
fóníunni op. 21. Flutningur
dansanna eftir Schubert tókst
ágætlega, túlkun Schullers hrif
andi. Leikur Gísla Magnússon
ar í fremur léttvægum konsert
eftir Haydn var á köflum með
mestu prýði og aðstoð stjórn-
anda og hljómsveitar ágæt. Á
seinni hluta efnisskrárinnar
voru verk eftir Leif Þórarins-
son og stjórnandann. Sinfónía
eftir Leif var hér frumflutt og
ætla ég mér ekki þá dul að
gagnrýna af nokkru viti frum
flutning á nútímatónsmíð sem
þessari. Sinfónían bar af sér
góðan þokka en risti ekki djúpt
enn sem komið er, en það get-
ur eðlilega breytzt við nánari
kynni. Compostion in three
parts er uppáþrengjandi tón-
smíð, sem kom undirrituðum
ekki á óvart eftir allgóð kynni
af fjrrri verkum tónskáldsins.
Notkun málmblásturshljóðfæra
er sérgrein hornleikarans Sc-
hullers og kom það skemmti-
lega fram i verki þessu. Streng
irnir eru hér iðulega notaðir
sem bakgrunnur fyrir málm-
inn. í verkinu er sláandi rhyt-
misk spenna og blæbrigðaspil,
sem valda því að það heldur at-
hygli áheyrandans óskiptri frá
byrjun til enda. Því miður varð
að fella eitthvað niður af verki
þessu í þessum flutningi hér
og mun það hafa verið vegna
tímaskorts í sambandi við æf-
ingar. Mikil festa og öryggi var
yfir allri stjórn Schullers og
vonandi verður gerð tilraun til
að fá hann hingað síðar. Áheyr
endur og ekki síður hljóðfæra
leikaramir muntíu hafa gott af
að fá meir af nútímatónlist.
Jón S. Jónsson.
i^iltmmmlmmimimmmmtmmmmmiii nmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiininiilliiiiiiiiiiiiimlmiiniiimimmnlimmillimmimmmmiiiinimmiinumnimnimimimiimmmmimmmmmiimiiimmmmimmmimmminninimiimmimmmimmmmimiiiimmmiimitmilir,
ALt>ÝÐUBLAÐID — 30. jan. 1964 5