Alþýðublaðið - 30.01.1964, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 30.01.1964, Blaðsíða 9
Strákúrlnn á myndmni heitir Kristján Valur Guðmundsson og pabbi hans keyrir rútuna. í bak- sýn eru nokkur b.er, sem bætt verð ur við Suðurvararbryg-gju í sum- ar. lykt, sem Kleppsholtsbúar hafa haldið að þeir byggju einir að, — peningalyktinni. Nú er Meitill að vísu einskonar samvinnufyrirtæki, enda er því stjórnað af syni Egils í Sigtúnum. Benedikti Thorarensen. Eina verzl unin á staðnum er útibú Kaupfél- ags Árnesinga, nýtízkuleg verzl- un og traustvekjandi. Mesta hús staðarins er svo fóðurbiöndunar- stöð SÍS, þar er skepnufóður bland að í búpening austurbænda og þefurinn þar inni er aldeilis ind- æll. Hinsvegar er ekki fyrir það að synja að einkafyrirtæki blómg ist í Þorlákshöfn. Skulu nú talin nokkur ný af nálinni: Járnsmiðjan Boði h.f., sem stofn að er af 5 jarnsmiðum frá Selfossi og einum bifvéiavirkja, Trésmiðj- an Tréverk s. f. og nýtt fi kverk- unarfyrirtaeki, Norðurvör h.f., sem er staðsett nyrzt í þorpinu og mun í framtíðinni taka við fiski af bát- um eftir því sem framboð gefst. Þannig mega allir sjá, að Þorláks- höfn er komin í röð gamalgróinna plássa á íslenzkan mælikvaðra. Höfnin sjálf, eins og hún er í dag er að allra dómi ómögu1eg,.en hitt er svo annað mál, að sigling- in er hrein og legan er djúp, þó mönnum hafj funizt hún vera að grynnka upp á síðkastið og þá af því að brimið brýtur niður kamb- inn og hleður honum á hafnar- botninn, svo er það alveg víst til að skila öllu heila gillinu á land aftur einn stormsaman veðurdag og Jhlaða þ-ví þá upp fyrir efstu glugga á næ=tu húsum. Eitthvað því líkt gerðist í haust. Kannski eru til menn, sem halda að Þorlákshöfn eígi enga framtíð fyrir sér, en þrátt fyrir það að ég hef skrifað um staðinn með nokk- urri léttúð er ég ekki einn af þeim. Þar ber margt til, lega stað- arins við fiskimiðum, möguleikum í þessum barnaskóla voru 45 börn í fyrra, nú eru þau 65. Það er alltaf verið að stækka skólann. Hér eru nokkrar nýbyg'ging’anna í Þorlákshöfn. Þessi hús eru langt komin og líklega farið að búa í þeim að einhverju leyti. til uppskipunar fyrir Suðurlands- undirlendi og hugboð. Þeir menn sem hafa byggt sín hús á sandi og afkomu sína á engri höfn eða lé- legri, þráct fyrir að þeir hafi þurft að sækja allt í sjóinn, þeir gefast ekki upp. Ég hef þá trú, að Þor- lákshöfn eigi eftir að vaxa og það mikið. Mér er t. d. sagt að þangað hafi í fyrstu ekki flutzt fólk ann- arsstaðar frá en úr næstu sveitum, en nú flyzt þangað fólk úr öllum landshlutum. Staðurinn hefur sitt aðdráttarafl, sem er atvinnumögu- leikarnir. Þetta verður að nægja að sinni um hafnarborg Suðurlands, en gaman væri að gægjast betur í sögu og erfð staðarins og tíunda það í annarri grein. Við skulum sjá til. Goðanes, áður vs. Gautur, heldur uppi farþega- og póstferðum milli Þorlákshafnar og Vestmanna- eyja, Hér er báturinn við bryggju í Þorlákshöfn. Furukrössviðirr - Harðtex Nýkomið: FURUKROSSVIÐUR: 4-6-8-10-12 m/m. hurðarstærðir. BRENNIKROSSVIÐUR: 3-4-5 m/m. BIRKIKROSSVIÐUR: 3-4-S-6 m/m. HARÐTEX: Vé“ — 4x8‘- 4x9' — 5,7 x 7‘. GABOON: 16-19-22-25 m/m. NOVOPAN: 15-18 m/m. BIPAN: 18-22 m/m. GYPTEX: 10 m/m. EVOPAN-plastplötur á borð. HÖRPUÖTUR: 18 — 20 m/m. HLJÓÐEINANGRUNAR- PLÖTUR: 12 x 12“. Skrifstofa Hallveigarstíg 10. Vörugeymsla v/Shellveg. Sími: 2-44-59. Harötex 120x210 cm, verð aðeins kr. 69,50 platan. Birgðir á þrotum. Mars Trading Company hf. Klapparstíg 20. — Sími 17373. Árnesingamót Átthagafélög Ámesinga í Reykjavík halda 1. febrúar nk. og hefst hátíðin með borðhaldi M. 19. Á dags'kr á verður m.a.: Ræður, fjölbreytt skemmtiatriði og dans. Sala aðgöngumiða er í Bókabúð Lárusar Blöndal á Skólavörðustíg og í Vesturceri. Allir Árnesingar eru velkomnir meðan hús- rúm leyfir og eru þeir vinsamlegast bcðnir að tryggja sér miða sem fyrst. Skemmtinefndin. Orðsending frá Happdrætti Alþýðuflokks- félags Kópavogs. Af óviðráðanlegum ástæðum var ekki hægt að láta drátt fara fram í happdrættinu 15. desember s. 1. eins og upphaflega tvar ákveð- ið. INu hefur með leyfi dómsmálaráðuneytisins drætti verið frestað til 15. desember 1964. Allir þeir. sem hafa í höndurn miða frá happ drættinu eru vinsamlega beðnir að athuga' þetta og geyma miðana þar til dráttur hefur farið fram 15. desember 1964. Stjórn Alþýðuflokksfélags Kóp[avogs. ALÞYÐUBLAÐIÐ — 30. jan. 1964 $

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.