Alþýðublaðið - 04.04.1964, Blaðsíða 1
iWWWWWMWWMWtWMHMM»MWMMWM%MWW*WWWWW%»t*WMiWMWWWHMl
EBÉSttl)
45. árg. — Laugardagur 4. apríl 1964 — 76. tbl-
UNGLINGAR STELA
ÁFENGIOG SELJA
Reykjavík, 3. apríl - KG
MIKLAR annir hafa verið' hjá lög-
reglunni í Vestmannaeyjum und-»
anfarna daga. í dag voru teknir
4 fijórtán ára pii'tar og hafa þeir
játað að hafa bratizt inn á 9
staði og stolið þar ýmsum verð-
mætum. I>á var stúlka á sextánda
ári nýlega tekin fyrir að stela 14
flöskum af áfengi, tveir menn
voru teknir fyrir ólöglega áfengis-
sölu, töluvert hefur einnig veriö
um þjófnaöarkærur og svo liefur
töluvert verið um slagsmál og einn
maður viöbeinsbrotnað, auk þess
sem margir hafa orðið fyrir tanna-
missi.
í dag tók lögreglan 4 fjórtán ára
drengi og hafa þeir játað að hafa
Krústjov
móðgaður
Búdapest, 3. apríl
(NTB-Reuter)
Hermálafulltrúi Kína í Úng-
verjalandi heil'saði ekki I dag
Krústjov forsætisráðherra að
hermannasið þegar forsætis-
ráðherrann hafði lagt blómsveig
að ungversku minnismerki í
Búdapes'.
Aðrir einkennisklæddir her-
málafulltrúar kommúnistalanda
tóku sér stöðu og lieilsuðu að
hermannasið þegar Krústjov
gekk fram hjá þeini á leiöinni
til bifreiðar sinnar. En kín-
verski ful'trúinn stóð kyrr með
hendur fyrir aftan bak.
Krús’jov, sem var dökkklædd
ur svaraði kveðjunum með
brosi en virtist ekki taka eftir
framferði Kínverjans.
Aftm- á móti heilsaði full'rú- fl
inn meðan á athöfninni stóð.
Fyrr í dag var lagðm- blóm-
sveigur að sovézku minnis-
merki í höfuðborginni og við
þaö tækifæri heilsaði Krúsl-
jov öllum hermálafulltrúunum,
þar á meðal' þeim kínverska.
Áður en athöfnin hófst við
ungverska minnismerkið rabb-
aði Krústjov við nókkra ung-
verska flokksforingja. Ung-
verski varaforsætisráðlierrann,
Gyula Kallia, vakti atliygli hans
á bandarísku sendiráðsbygg-
ingunni handan götunnar og
nefndi Mindzenty kardinála á
nafn.
Krús’jov lcit snöggvast yfir
götuna, en sagði ekkert. Ilundr
uð manna voru viðstödd at-
'hafnirnar báðar.
broúzt inn á 9 stöðum og stolið
einhverju í flestum þeirra.
Meðal þess, sem piltar þessir
stálu, var nokkuð af áfengi og
voru þeir byrjaðir að selja það
þegar þeir voru gripnir.. Þessir
sömu drengir hafa einnig játað að
hafa fyrir skömmu stolið bifreið
og ekið henni um eyjuna allir
til skiptis.
Þá tók lögreglan stúlku á sex-
tánda óri úr Reykjavík, og var liún
að selja áfengi í einni verbúðinni.
Áfengi þessu hafði stúlkan stolið
úr hótelherbergi og var það eign
tveggja sjómanna, sem þar bjuggu.
Voru þetta 14 flöskur og liugðist
stúlkan selja þær, en var gripin.
Einnig stal stúlkan útvarpstæki á
sama stað.
Þá hafa Vestmannaeyjalög-
reglunni borizt margar þjófnaðar-
kærur. Meðal annars kærði einn
félaga sinn fyrir að hafa stolið af
sér 5000 krónum. Var. félaginn
handtekinn og játaði hann þegar
að hafa stolið peningunum og gat
skilað þeim aftur. Tveir menn
voru nýlega teknir fyrir ólöglega
áfengissölu og var annar þeirra
skipverji á erlendu skipi en hinn
aðkomumaður, sem vann á vertíð-
inni.
Einnig voru tveir menn á báti
rétt við Heimaklett og skutu þeir
úr bátnum á fugl á klettinum, en
bannað er að skjóta innan tveggja
kílómetra frá eyjunni. Nokkur
(Framliald á 13. siðu).
1000. TEIKNING HUSNÆÐIS-
MÁLASTOFNUNARINNAR AFHEHT
Reykjavík, 3. apríl - AG
TEIKNISTOFA Húsnæðismála-
stofnunar ríkisins tók til starfa
árið 1955, og þá samkvæmt lög-
um frá 1. júní það ár. Fyrir
skömmu var afhent frá teikni-
stofunni 1000. teikningin, og af
því tilefni var hún ásamt vinnu-
tcikningum afhent þeim lijón-
um Rannvcigu Kristjánsdóttur
og Kristjáni Þorkelssyni, Víði-
hvammi 14. Kópavogi, sem gjöf
frá Húsnæðismálastofnuninni.
Fréttamenn voru í dag boð-
aðir á fund með Halldóri Hall-
dórssyni, arkitekt, framkvæmda
stjóra Húsnæðismálastofnunar-
innar og Eggerti Þorsteinssyni,
formanni Húsnæðismálastjórn-
ar. Sagði Halldór, að þegar
teiknistofan hefði tekið til
starfa hefði verið vitað að veru-
legur hluti íbúðabygginga í
bæjum og þorpum úti um land
hefði verið gerður eftir teikn-
ingum, svo ófullkomnum, að
vart væri hægt að nefna því
nafni. Byggingar eftir slíkum
teikningum væru oft mun dýr-
ari en hús gerð eftir vönduð-
um og vel hugsuðum teikning
um. Þarna væri því um stór-
kostlega sóun verðmæta að
ræða.
Teiknistofunni var frá byrj-
un ætlað að veita þjónustu, er
réði bót á framangreindu ó-
fremdarástandi. Teikningum
Á myndinni: 1000. teikn-
ingin afhent, frá vinstri: Hall
dór Halldórsson, Kristján
jÞorkelsson og Rannvcig
Kristjánsdóttir.
stofnunarinnar fylgja jafnan
nauðsynlegar sérteiknin.'ar,
verkfræðilegar teikningar af
burðarþolsútreikningum, bita-
lögn, raflögn, frágangi á þökum
og stigum. Auk þess allar nauð
synlegar teikningar af eldhús-
um, skápum, gluggum og liurð-
um. Á siðasta ári var haíinn
útreikningur efnisþarfar íneð
hverri teikningu.
Nú eru til 24 gerðir tvíbýlis-
(Framhald á 4. s«ðu).
USSARÆ
ALLRA K0
Moskvu, 3. apríl
(NTB - Reuter)
RÚSSAR rufu í dag sex mánaða
þögn í liugmyndadeilunum við
Kínverja og svöruðu með harðri
árás á Mao Tse-tung og kínverska
kommúnistaflokkinn í yfirlýsingu,
sem er 30 þús. orð.
Árásin var í rauninni gerð á
fundi liáttsettra flokksmanna í
Moskvu í febrúar, en ekki birt
fyrr en í flokksmálgagninu „Prav-
da” i dag. Það var ritari flokksins,
Mihail Suslov, liclzti sérfræðing-
ur Rússa í hugmyndafræði, sem
setti ofan i við kínverska komm-
i únistaleiðtoga, sem hann sakaði
um nokkra glæpi gegn alþjóða-
hreyfingu kommúnista. Jafnframt
hvatti hann til þess, að efnt yrði
til ráðstefnu kommúnistaforingja
allra landa.
Hann sagði, að á þessari ráð-
stefnu skyldi skipzt á skoðunum á
breiðum grundvelli í því skyni að
vinna sigur á erfiðleikunum, sem
hreyfing kommúnista á við að
stríða.
í Moskvu er talið, að tengsl
tveggja stærstu kommúnistaflokka
heims séu nú að bresta. Aldrei áð-
ur í hugmyndadeilunni hafa verið
bornar fram eins þungar og bitrar
ásakanir.
Ráðastheiftarlega á Maó
Suslov sakaði Kínverja um að
reyna að reka fleyg milli sovézku
þjóðarinnar og Krústjovs forsætis-
ráðherra og gera Mao Tse-tung að
nýjum Stalín. Að sögn Suslovs
vilja Kínverjar einnig segja allri
alþjóðahreyfingu kommúnista fyr-
ir verkum, reka flokka og menn úr
herbúðum sósíalista og heimila
öðrum inngöngu, allt eftir eigin
hentugleika.
Varðandi heimkvaðningu sov-
ézkra sérfræðinga frá Kína sagði
Suslov, að þótt Rússar hefðu fall-
izt á að þeir yrðu um kyrrt í Kína
eftir 1958/hefðu kínversk yíirvöld
haldið uppteknum hætti og unnið
marvisst að því að láta þá sæta
verri meðferð en áður. Þetta heíði
haft slæm áhrif á sambúð þjóð-
anna.
Þegar Kínverjar stukku „stóra
stökkið áfram” í viðreisn iðnaðar-
ins vöruðu sovézkir sérfræðingar
kínversk yfirvöld við tæknilegum
göllum kerfisins. En ráðum Rússa
hefði ekki verið hlýtt. Afluðing-
(Framhald á 13. síSu).