Alþýðublaðið - 04.04.1964, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 04.04.1964, Qupperneq 7
Minnirigarorð: Gubmundur Bjarnason frá Mosvöllum Guðmundur Bjarnason var fæddur 24. marz 1877 á Saurum f Álftafirði við ísafjarðardjdp og var því fullra 87 ára gamall, er hann lézt í Landakotsspítala 26. marz s.l. Foreldrar Guðmundar voru Bjarni Jónsson síðar hrepp- Stjóri í Tröð í Álftafirði og Guð- rún Jónsdóttir kona hans. Voru þau hjóniiv dugnaðarfólk og vel látin. Ættuð voru þau úr ísa- fjarðardjúpi beggja megin og norðan af Ströndum. Er margt af tápmiklu fólki í þeim ættbálki. Átján vikna gamail var Guð- mundur fluttur yfir Álftafjarðar- heiði í fóstur að Mosvöllum í Ön- undarfirði. Þar bjó þá Gils Bjarnason (afi Gils Guðmunds- sonar rithöfundar), en Halldóra systir hans var fyrir framan stokk hjá honum. Ári síðar gift- ist Gils Guðmundínu Jónsdótt- ur. Ólst Guðmundur Bjarnason upp hjá þessu fólki og tók þar við búi, er þau Gils létu af bú- skap. Var hann þá giftur heima- sætu af næsta bæ, Guðrúnu dótt- ur Guðmundar Pálssonar og Ingi- leifar Ólafsdóttur, er lengi bjuggu á Vöðlum, en síðan á Kirkjubóli í Bjarnardal; þau giftust 2. des. 1901. Guðmundur tók ungur að stunda sjó, eins og títt var um vestfirzka menn um þær mund- ir. Hélt hann og þeim hætti eftir að hann reisti bú, að hann var við sjó á vorin. Var hann meðal annars á hákarlaveiðum á Gretti með Páli Rósinkranssyni fyrir og um aldamótin og stýrimaður hjá honum um skeið, en Páll var hörkuduglegur skipstióri, svo sem kunnugt er, og hafði oft gott mannval á skipi sínu, en fáa mun hann hafi haft þar betri verk- menn en Guðmund Bjarnason, handlagnari, skjótráðari og djarf- ari. Oft var Guðmundur á ferð á sjó á opnum báti, bæði við veiði- skap og í kaupstaðarferðum, og var þá stundum einn á. Þótti j honum þá ekki verra, að vindur I létti ferðina. Má nota um hann sömu orð og hann hafði eitt sinn I um skipstjóra, sem ekki þótti . ’-ifa segl fyrr en nauðsynlegt var, I að honum þótti gaman að sigla. Hygg ég, að fátt muni háfa feng- ið Guðmundi meiri skemmtunar en sitja við stýri á siglingu í hæfilega hvössu — og jafnvel þótt einhverjir teldu fullhvasst. Mátti hann það og vel, því að hann var ágætur stjórnari, glögg- ur og djarfur og viðbragðs- skjótur. Snemma tók Guðmundur að stunda smíðar, ekki aðeins fyrir heimili sitt, heldur gerði hann og margt viðvik fyrir nágranna sína, hjálpaði þeim jafnvel við viðgerðir á húsum eða smíð nýrra húsa. Einkenndi hann mjög hugkvæmni við verkið, þótt að- stæður væru stundum slæmar eða efniviður af skornum skammti. Var verkhyggni hans á fleiri sviðum aðdáanleg. Eg, sem þess- ar línur skrifa, ólst upp á næsta bæ við Guðmund, átti mikið sam- an við hann að sælda (hann var kvæntur föðursystur minni), var | oft með honum í ýmisskonar störf- ! um eða á ferðalögum, og þykist ég I ekki mæla um of, þegar ég segij ' að ég hef fáum eða engum mönn- um kynnzt, sem gæddir hafa ver- ið betra verksviti en Guðmundur á Mosvöllum. Marga ferð áttu nágyannar Guðmundar til hans með hesta sína, sem járna þurfti. Lagði __________ hann slika alúð við járningar, að : starfið varð að íþrótt í höndum I hans. Hefur Guðmundur Ingi I bróðir minn ort skemmtilegt smá- ! kvæði um þetta. Þar fer hann þessum orðum um verk Guð- mundar Bjarnasonar. Er sem þrautreynd augu vaki yfir hverju minnsta taki, verður aldrei fum né fip. Og enn segir skáldið, að þar hafi verið „hugur viss og hendi snör.” FFÚMÍRKI m FRÍMERKI FRÍMERKI á FRÍMERKI GLIMUMERKIN (framh.). HÓFST nú glíman, en áhorf- endur, karlar og konur röðuðu sér allt í kringum glímuhringinn. Mátti þegar sjá, sem annars var áður vitað, að metingur mikill og kapp var milli hreppanna. Skorti þar ekki eggjunarorð frá beggja hálfu, en allt fór þó prúðmann- lega fram. — Tókst þegar mikið mannfall í beggja liði, en þó meira af Saurbæingum, og þeg- ar líða tók á glímuna, þótti mörg um sýnt hvernig fara mundi, að hún mundi enda með algerum sigri NeðrLhreppinga. — Varð nú hörð viðureign, en þar kom aS lokum, að eftir stóðu aðeins tveir af Saurbæingum, bóndinn sjálfur, Ólafur frá Rauðhúsum og Jón nokkur framan úr Ilólasókn, ágætur glímumaður. — Af Neðri- hreppingum stóðu eftir bóndinn sjálfur, Jakob á Espihóli og átta aðrir, allt góðir glímumenn. Með al þeirra var Björn „Skrugga", sem margir töldu, eins og sagt var var um Sltarphéðín á Bergþórs hvoli, að eins góð væri hans fylgd og tíu annarra. — Gekk hahn nú fram á völlinn. Varð mörgum star sýnt á manninn og þótti óárenni- legur. — Ólafur bað Jón reyna við Björn, enda væri ekki öðrum á að skipa. Tóku þeir glímutök- um, en jafnskjótt þreif Björn hann með heljarafli sinu, sem barn væri og lagði hann á völlinn, og kom Jón engum Vörnum við. — Lustu Neðri-hreppingar þá upp ópi mildu, er þeir töldu að sig- ur væri fenginn, þar sem víst þótti, að Ólafur mundi ekki glíma. — Björn stóð kyrr á vell- inum og varð nú dálítið hlé, en margir litu til Ólafs ef ske kynni að hann reyndi að hefna ófara Jóns en hann sýndi sig ekki líklegan til þess. — Tók þá Björn til rnáls og spurði með miklum rembingi, hvort svo væri skekinn dugur úr afkomendum Helga magra, að enginn þyrði við sig að glínia, eða hvar væri nú glímukappinn þeirra Saurbæinga, Ólafur frá Rauðhúsum. Þetta stóðst Ólafur ekki, kast aði hann af sér ytri klæðum og gekk fram á völlinn. Sagði hann, að ekki skyldi Björn það þurfa að mæla, að ekki vogaði hann víð hann að fást, þó að hér væri ójafn leikur, er svo mætti segja að hann væri aðeins á öðrum fæti. — Var þá sem nokkurt hik kæmi á Björn, er hann sá að Ól- afi var alvara að glíma við hann. En svo var sem berserksgangur kæmi á hann og þreif hann með miklu afli til Ólafs og hugði að færa hann niður sem Jón stuttu áður, en Ólafur var þyngri, en hann hélt; tókst ekki tilræðið. Dauðakyrrð sló á mannfjöldann, og allra augu störðu á viðureign- ina. Er minnst varði hljóp Ólafur innundir Björn og hóf hann upp á klofbragði og kastaöi honum flötum á völlinn. — Varð af.dynk ur mikill, er hann féll, en mað- urinn var stór og; þungur, _____ Björn stóð seint á fætur, en fór svo þegjandi til sinna rnanna. Við fall Björns hrópuðu Saur- bæringar fagnaðaróp. Gengu nú nokkrir fram og vildu íátá slítá glímúnni, dn Jakob bóndi gaf þess engan kost, nema að Saur- bæingar viðurkenndu sig sigraða, en það vildu þeir með engu móti gera. Varð af þessu nokkurt hark og háreisti. Gekk þá Ólafur frám og kvaðst albúinn að halda glím- unni áfram, þar til yfir lyki, „þar eð mestu skruggunni væri nú af- létt“. — Varð þá hlátur mikill í liði Saurbæinga. — Sendi nú Jak ob fram einn af mönnum sínum, en eftir litla stund lagði Ólafur hann að velli. Kom nú hver af öðrum, en allt fór á sömu leið, að þeir stóðust ekki snarræði ög brögð Ólafs og féllu hver um annan þveran. — Lagði hann þar! að velli í einni lotu þá sjö, er eftir ! stóðu með Jakobi. — Gekk hann | þá fram. allgramur yfir óförum j sinna manna og hugði á hefndir. — Vildu þá sumir hætta glímunni og skildi teljast jafntefli, en svo voru nú áhorfendur æstir, að þeir heimtuðu með ákefð að bændurn ir ættust við, svo úr því yrði skor iO, hvor betur mætti. Er þe'ir Ólafur og Jakob höfðu tekið glímu tökum, lagði Ólafur uppáhalds- bragð sitt, klofbragð á Jakob með leifturhraða. — Var bragðið svo snarlega á lagt, að Jakob stóðst það eigi og féll flatur á völlirm. Stóð hann fljótt upp og var all- reiður, sagði hann þetta ómark, því að ekki hefði hann verið bú- inn að ná glímutökunum, er Ól- afur lagði bragðið á. Ólafur hvað það ekki rétt, en vel gæti hann gert hónum það til geðs, að glíma aftur. Byrjuðu þeir nú á nýjan leik, fór sem fyrr, að Óiafur lagði klofbragð mikið ó hann. Jakob (Framhakl á 10, siSu). Sannari lýsing mun varla verðsi gerð á mörgum störfum Guð~ mundar Bjarnasonar. Skíðamaður var Guðmundur góður og hafði bæði gagn cg gaman af þeirri kunnáttu sinni. Á ferðum var hann úrræðagóðut* og ratvís í myrkri og hríður.1, Hann var léttur f göhgu og sfíík ur en svo sporlatur. Hann var klettamaður góður, og gætti þar sömu eiginleika og á sjónum: kjarkurínn geiglaus, viðbrög^ snögg og þó fullrar gætni gætf. Ekki mun þeim Guðmundi cg Guðrúnu hafa safnazt auður í bú- skap sínum á Mosvöllum, eí> veitandi voru þau þó fremur e5» þiggjandi. Þau voru bæði ve> verki farin og atorkusöm og ftl)T sjaldan verk úr hendi. Þcim hjónum varð 7 barna auð- ið. og komust fimm þeirra upj» og eru öll enn á lífi: Ragnlieiður, gift Ólafi Hjálni- arssyni áður bónda á Mosvöllum, nú efnisverði í Reykjavík; Halldóra, formaður Nótar, fé- lags netagerðarstúlkna; Jngileif, gift Óskari Gíslasyni ökukennara í Reykjavík; Ólafur, húsgagnasmiður S Revkiavík, kvæntur Þorbjörgi* Þorvaldsdóttur frá Kroppsstöðum í Önundarfirði; — og Margrét, kona Jóns Jónatans— sonar bónda á Hóli í Önundar- firði. Öll hafa þau systkin reynzt góðfr liðsmenn í lífsbaráttu S*g . framsókn íslenzku þjóðarinnar. Guðmuridur Bjarnason var vél "i-eindur maður. Honum þótti gaman að bókum og mundi vel, Hað sem hann Ias. Hann kur.ni mikið af vísum og kviðlingum cg rat s'álfur gert laglegar stökur, ef honum þótt tilefni til. Hann var orðheppinn og hnytt- ínn í svörum. Hann hafði unun af söng og var sjálfur góð- ur söngmaður. Meðhjálpari vai- hann nm langt skeið í Holtskirkju. Og hiálpsamur var hann á hvaða- sviði sem var. Greiðviknari mað- ur hittist varla. Framkoman. hrein og hispurslaus, glaðvær cgr hressileg. Skemmtilegri maður- varð varla kosinn fyrir starfsfé- laga eða förunaut. Eftir að þau Guðmundur cg" Guðrún hættu búskap á Mosvöil— um. dvöldust þau þar hjá Ragn— heiði dóttur sinni og manni hénn— ar og unnu búi þeirra, unz yngrfr hiónin fluttust til Reykjavíkui— vox-ið 1948. .Þá fóru gömlu hjónifl líka suður og settust að hjá Ól— afi syni sínum og Þorbjörgu koni* hans. Þar áttu þau heimili síðan, en Guðmundur var þó löngunv og löngum fyi-ír vestan, hjá Mar- grétu dóttxxr sinni og mannl> héhnar á Hóli. Var hann ekki ó~ þarfur búi þeirra, þótt tekinm væri að eldast. Guðrún kona Guðmundar lézts sumarið 1959. Guömundui— dvaldist eftir hjá þeim Ölafi cg“ Þorbjörgu. Vann hann hvern dag~ að smíðum, bútaði sundur járn— rör og snittaði endana. Hafðit hann byrjað á því starfi, eítir aðf hann fluttist suður, og náði í þv£ furðu mikilli leikni, svo gamaDE. maður. Verklagni og kjarkui* fylgdi honum til æviloka. Eir.-í var með glaðværð hans og liress— leika í orðum. Það var hluti aí* honum sjálfuiri. Skaphöfn hans vai- Jieil og sjálfri sér samkvæm. Hann var vaskur maður og dreng— ur góður. Ólafur Þ. Kristjánsson, AiMÝÐUBLAÐIÐ — 4. aprí! 196t4 J

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.