Alþýðublaðið - 26.05.1964, Síða 6

Alþýðublaðið - 26.05.1964, Síða 6
/ Viöskiptalífi Asíu hefur Jbrefaldast á tíu árum Þrátt fyrir áframhaldandi og ó- rofna aukningu á útfiutningi síð- an 1953 hefur viðskiptahalii land- anna í Asíu þrefaldazc og nam 1963 2.700 milljónum dollara. Útreikn- ingar fyrir árið 1930 leiða í ljós, að hallinn muni halda áfram að aukast. Þetta kemur fram í árlegu efna hagsyfirliti frá Efnahagsnefnd SÞ fyrir Asíu (ECAFE), „Econom- ic Survey of Asia and the Far East 1963“. ECAFE hefur sleppt meginlandi Kína, Mongólíu, Norð íur-Káreu og Norður-Vietnam í yfirliti sínu. Hinn mikli halli hefuir hingað til einkum verið jafnaður með fjár framiögum ríkisins og erlendum lánum, en einnig hafa komið til fjármagn í einkaeign og samdrátt ur á erlendum atvinnurekstri í hverju landi. Erlendur atvinnu- rekstur er þó þegar orðinn mjög óverulegur í flestum löndum Asíu og fjárfesting erlends fjármagns minnkaði 1961 og 1962. í fyrsta hluta yfirlitsins, sem fjallar um sérstaka rannsókn ECAFE á reynslu umræddra landa í viðleitninni við að framleiða vör- ur sem komið geti í staðinn fyrir innfluttar vörur og við að gera útflucningsframleiðsluna fjöl- breytta-ri, er einkum lögð áherzla á erfiðleikana sem hindra frekari aukningu á útflutningi hráefna Meðal þess sem nefnt er í því sam bandi ek sívaxandi framleiðsla iðnaðarmanna á hráefnum, tækni legar framfarir sem draga úr notk un hráefna í iðnaðarframleiðsl- unni, framleiðsla gerviefna og loks tollar og innflutningshöft. Kaupmanrjahafnarbúi einn var að fá sér ferskt loft í Iung- un snemma að morgni dags á Löngulínu fyrir nokkru síðan. Þegar hann gekk fram hjá Gefjunargosbrunninum, glennti hanu upp skjáina. Niðri á vatnsbotninum sá hann glytta í brons- litt kvenmannshöfuð. Honum datt þegar í hug að þarna væri komið liafmeyjarhöfuðið horfna og kallaði lögreglu á vettvang. Höfðinu var bjargað úr brunninum og reyndist vera bronsað gipshöfuð, sem einhver gamansamur náungi hafði komið þar fyrir. !Hún heitir Peta, þessi svarta ungfrú á myndinni, og myndin er tekin af henni uppi á skrif ig borði í innanríkisráðuneytinu JJ brezka. Hún nýtur þess óbland- fj na heiðurs, að vera eini köttur jj inn á launalistanum í White- U hall. Hún kom í staðinn fyrir jj músaveiðarann Pétur, sem dó Q í marz síðastliðnum eftir sext- K án ára dygga þjónustu í krók- jj um og kimum innanríkisráðu- H neytisins. g Vikulaun Petu nema 5 shiil- ingum, sem er helmingi hærra en Pétur fékk. Peta er upp- runninn á eyjunni Mön, og er gjöf til ráðuneytisins frá stjórn eyjarinnar. Hún kom með flug véi til Lundúna og var afhent ráðuneytisstjóranum við há- tíðlega athöfn á skrifstofu hans. Henni var klappað og hamp- að og hún var ljósmynduð í bak og fyrir, en ekkert raskaði ró hennar. Lævisleg gildra var lögð fyrir hana með gervimús, en hún sparn aðeins fyrilitiega B fæti við henni. Ráðuneytisstjór 1 inn, sem er mikill kattaaðdá- s andi, heilsaði henni með SV9- 1 felldum orðum: „Kaniss Thes- 1 hoo, en það merkir „Sæl vertu“ i á máli Manarbúa. Peta svaraði I því engu. Athafnasvæði hennar verð- | ur mjög mikið, hún hefur ekki jj færri en tvö hundruö herbergi jj og fjölda ganga til að hafa eft | irlit með. gmiiiiiminininiimiiiniiiiniiiiiiiiiiiiiuHniiiinniiiinniiHiniiiniiiiiiiiiiiimiiiiuumiiiiiiiiniiiiBiiiiiinniTiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinnniiiiiiii ^inimiuyiuiuuiiiuiiiiiiniiiinuiiiiiimiuniniiiiimiiiniiiiiiimmmifflmmimiiuuinitiiiiiiiniiiiimimHniiniiiuHiiiiiiiinininnimiiiiiiii Bandarískur líffræðingur hefur spáð því, að í lok þessarar aldar muni barnaframleiðsla á tiirauna stofum verða vel gerleg. Hún verði hluti af mikilli byltingu í vísindum og læknisfræði, sem búast megi við frá vorum dögum fram til árs ins 2000. í fyririestri, sem undirbúinn var í Georgetownháskóianum í Was- hington, telur dr. H. Bentley, Grass prófessor við John Hopkins háskólann, að á þeim 36 árum, sem eftir eru til aldamóta, muni mönn um takast að búa til einföldustu tegundir lífvera, af svipuðu tagi og vírusa. Hann telur, að jafnvel megi tak ast að fram.e.ða frumur til endur nýjunar á glötuðum líkamsfrum- um, jafnvel að búa til og þroska heil líffæri. Einnig telur hann, að mönnum muni lærast að hafa á- hrif til góðs á galiaða erfðabera og Iiann lýsir heimi þar sem smitandi sjúkdómar yrðu reknir í útlegð að fullu og öllu og líf manna myndi bæði lengjast og þeir hald ast lengur í fullu fjöri. í þessum nýja heimi yrðu menn búnir að leysa gátuna um vinnslu orku úr sólarljósinu, en þegar hún er leyst er talið, að ekki þurfi fram- ar að óttast fæðuskort handa mann kyninu. Grass lætur í ljós þá von, að aukinn skilningur á kynþátta- og þróunarvandamálum, sem nú þeg ar er mjög tekið að bera á, muni gera manninum fært að haga sér skynsamlegar í framtíðinni en hann liefur gert hingað ti). Þó megi ekki einblína á vísindin, hversu þau þroskist, því að háþró- uð vísindi þurfi ekki nauðsyn'ega að hafa í för með sér aukna ham- ingju. Hann horfist í augu við þá stað reynd, að þessi reikisstjarna hefur ekki landrými fyrir mannkyn, sem vex hömlulaust. Hinar stórstígu framfarir hafa í för með 'sér, að þekking, sem er ef til vill ekki nema nokkurra ára gömul, er orðin úrelt og stenzt ekki lengur. Senn.lega verður al- gengt eftir allangan tíma, að nátt úrufræðikennararnir eyði þriðja hverju ári í að afla sér nýrrar þekkingar og leiðrétta úreltar hug myndir, segir dr. Grass. § 26. maí 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.