Alþýðublaðið - 26.05.1964, Blaðsíða 9
greinilega að þarflausu fullyrti,
að vestur-þýzka stjórnin væri eina
mögulega þýzka stjórnin. Einnig
var stefnan um endursamein-
ingu á grundvelli sjálfsákvörðun-
arréttarins ótvírætt staðfest.
Schröder utanríkisráðherra fylg
ir Bandaríkjamönnum eindregið
að málum og er vantrúaður á
stefnu de Gaulles. En hann hefur
átt í erfiðleikum heima fyrir vegna
árása Strauss, fyrrum landvarnar
ráðherra, og andstöðunnar af
hálfu Adenauers, en á henni ber
minna.
Þeir halda því fram, að minnk
andi spenna í sambúð Bandarikj-
anna og Sovétríkjanna leiði Þýzka
landsmálið inn á blindgötu. Minnk
andi spenna eigi sér stað á grund
velli hins óbreytta ástands (status
quo), Skipting Þýzkalands verði
viðurkennd staðreynd, sem einnig
verði formlega staðfest með tím-
anum.
Þeir segja, að slíkt form minnk
andi spennu sé ekki í þágu Þýzka-
lands, og þeir veitast gegn Schröd
er fyrir að fórna þjóðarhagsmun-
um Þýzkalands á altari hinnar
minnkandi spennu. Þeir telja ósk
hans um sveigjanlegri utanríkis-
stefnu fela í sér hættu.
að var til þess að styrkja stöðu
Schröders heima fyrir, að
í NATO-tilkynningunni var
Iýst yfir svona eindregnum stuðn
ingi við vestur-þýzku afstöðuna.
Vestur-Þjóðverjar vildu að geng
ið yrði enn lengra og stungið upp
á samningaumieitunum við Rússa
um sameiningu Þýzkalands. En á
þetta neituðu hinir að fa'last.
Slíkt skref, sem yrði ekki til neins
annars en að sýnast, mundi alger
lega ganga í berhögg við stefnu
Bandaríkjanna um að draga úr
spennunni.
Það var því látið nægja að ítreka
grundval'arviðhorf vestrænna
ríkja í Þýzkaíandsmálinu. En einn
ig þetta hefur gildi fyrir Vestur-
Þýzkaland. Þróunin í átt til ,,de
facto“ viðurkenningar á skipting
unni var stöðvuð.
Schröder hefur sem sé borið
eitthvað úr þýtum fyrir fylgi sitt
við Bandaríkjamenn. Og ráðamenn
í Bonn þurfa ekki að fara til Par
ísar til þess að sjá um að hagsmun
um þeirra verði borgið. (Arbeider
bladet: Jakob Sverdrup).
— Fjörutíu þúsund bílar af
gerðinni Hillman Imp hafa nú ver-
ið framleiddir í nýju Rootes verk-
smiðjunni í Skotlandi. Til útlanda
eru nú seldir um það bil 1000
Hillman Imp bílar á hverri viku.
★ Fáir vita sennilega að áætl-
unarbílar ganga milli Englands og
Indlands. Á þessa leið hefur ný-
lega verið bætt tveim mjög fnll-
komnum og að sjálfsögðu rándýr-
um bílum. Ekki vitum vér hve
langan tíma ferðalagið tekur, en
það er ekið um 14 lönd.
FRÍMERKI FRÍMERKI m FRÍMERKI
NÝTT frímerki verður gefið út
í Bandaríkjunum hinn 29. þ. m. til
minningar um John F. Kennedy,
fyrrum forseta. Á meðfylgjandi
mynd sést frímerkið og til hægri
ljósmyndin, sem merkið er gert
eftir. Ljósmyndarinn Bill Murphy
lijá blaðinu Los Angeles Times
tók myndina árið 1958 meðan
Kennedy var enn öldungadeild-
arþingmaður, og vissi ekkert um
áð hún hafði verið valin fyrr en
sl. fimmtudag. — Það var Jac-
queline Kennedy, ekkja forsetans,
sem valdi myndina.
29. maí er fæðingardagur J. F.
Kennedys, árið 1917. Hann fædd-
ist í einni af útborgun Boston og
hefði því orðið 47 ára'29. maí nk.
Kennody-ættin er af írskum upp-
runa, eins og nafnið bendir til.
Forfeður hans flúðu írland er
hungursneyð varð í landinu vegna
uppskerubrests á kartöflum á ár-
unum 1840-’50. John Fitzgerald
Kennedy, eins og hann hét fullu
nafni, settist í Harvard-háskóla
árið 1936 og lagði stund á stjórn-
vísindi og alþjóðastjórnmál. —•
Heimsstyrjöldin síðari brýzt út og
fyrsta ár hennar er Kennedy i
Washington D.C., en eftir árás Ja-
pana á flota USA 7. desember
1941, sótti hann um að komast á
vígstöðvarnar á Kyrrahafi. Varð
hann þar liðsforingi og stjórnaði
tundurskeytabát. Hlaut hann marg
vísleg lieiðursmerki vegna hreysti
legrar framgöngu í stríðinu. J. F.
Kennedy hóf afskipti sín af stjórn
málum árið 1946. Bauð hann sig
þá fram til þingsetu í fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings fyrir Mas-
sachusetts; síðar var hann svo kjör
inn forseti Bandaríkjanna, sem
kunnugt er.
í þ.ióðfélagsmálum var Kenn-
edy afkastamikill og sýndi meira
frjálslyndi í þeim, en fyrirrennari
hans, Eisenhower, að því er margir
telja. Eitt af hinum fyrstu málum,
scm forsetinn beitti sér fyrir, og
fékk samþykkt, var veruleg hækk-
un á lágmarkslaunum. Hundruð
þúsunda manna nutu góðs af þess
ari lagasetningu, en Kennedy
taldi mikinn fjölda Bandaríkja-
þegna hafa minni laun, en forsvar-
anlegt væri í auðugu framfara-
ríki. Kennedy var og þeirrar skoð-
unar, að USA ætti að aðstoða fá-
tækar þjóðir til sjálfsbjargar.
Ekkja Kennedys heitir Jac-
queline. Þau giftust 12. septem-
ber 1953, áttu þau 2 börn, en það
þriðja dó nokkurra daga gamalt.
Ekki skulum við rifja upp þann
harmleik, er Kennedy forseti var
myrtur í nóvember sl. Allur heim
ur varð harmi lostinn við þau vá-
legu tíðindi. En minningarnar um
mikilmennin geymast á spjöldum
sögunnar og þá ekki sízt minning-
in um John Fitzgerald Kennedy.
kvenskórnir
þægilegu, fallegu og góðu nýkomnir með
og án innleggs.
Litur: Ljósir og dökkir.
Skóverzlun
Péturs Andréssonar
Laugavegi 17 — Framnesvegi 2.
Jeppaeigendur
Óskum eftir að taka á leigu nokkra jeppabíla í 3—5 mán-
uði frá 1. júní, án bílstjóra. Bílarnir verða notaðir við
mælingar og rannsóknir víðsvegar um landið. Bílarnir
verða að vera í góðu lagi. Tilboð óskast miðuð við að leigu-
taki greiði benzín og olíu, og sé tilgreind dagleiga.
Nánari upplýsingar á skrifstofu vorri. Tilboðin verða opn-
uð kl. 9 f. h. 29. maí n.k.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS,
Ránargötu 18.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 26. maí 1964 9
Heildsölubirgðir:
Kristján Ó. Skagfjörð h.f.
Reykjavík.
Aigreiöslustúlka - Saumastúlka
Stúlka óskast á saumastofu, helzt vön, einnig afgreiðslu-
stúlka. Upplýsingar á skrifstofunni kl. 4 — 6.
Grettisgötu 3