Alþýðublaðið - 26.05.1964, Side 11
K.R. sigraði „Úrvalið"
5:3 í afmælisleiknum
VORMÓT
(Framhald af 10. síðu).
100 m. hlaup kvenna: •
IXalldóra H. Helgad. KR 13,4
María Hauksd. ÍR 14,1
Soffía Finnsd., ÍR 14jB
Helga ívarsd. HSK 14,7
Xangstökk kvenna:
Maria I-Iauksd. ÍR 4,51
Soffía Finnsd. ÍR 4,19
Kristín Kjartansd., KR 4,1S
Helga ívarsd. HSK 4,09
■ Á
Alls voru keppendur 36 á þessut
fyrsta opinbera frjálsíþróttamóti
ársins í Reykjavík, 17 úr ÍR, Ið
úr KR, og 1 frá Ármanni, HSK og
frá Tý, Vestmannaeyjum. rc,
Örn Steinsen skorar annaff mark KR meff skalla. — Ljósm. J. Vilberg.
Áhorfendur voru fjölmargir
en urðu fyrir vonbrigðum
AFMÆLISLEIKUR KR — 65
ára — við úrval annarra félaga,
bæði úr Reykjavík og annars stað-
ar að af landinu, sem fram fór á
Laugardalsvellinum sl. sunnudags
kvöld, var vel heppnaður, að
minnsta kosti að því er til að-
sóknarinnar tók. Mannfjöldinn
sem leikinn sótti, undirstrikaði
enn einu sinni þau almennu sann-.
indi, sem vitað er, um þá hylli,
sem knattspyrnuíþróttin nýtur. —
Að því viðbættu í þetta skipti,
gátu áhoiúendur lifað í voriinni
um, að sjá til eins afburðamanns
á knattspyrnusviðinu, í hópi leik-
manna. Þórólfur Beck, hinn kunni
atvinnumaður á þessu sviði, korri
gagngert hingað til lands, tíl' að
leika með sínu gamla liði í til-
efni þessara tímamóta.
Þótt Þórólfur legði ekki ýkja mik
ið að sér, að því er virtist, voru
öll hans viðbrögð slík, að það
leyndi sér ekki, að þar fór mað-
Ur, sem kunni hin réttu tök á
leik og tækni. Hann féll aldrei i
freistni einleiks, þótt hann hefði
bæði til þess getu og kunnáttu.
Hann gætti þess vel að vera hluti
af samræmdri heild og féll vel inn
í liðið og hugsaði öðru fremur um
samleikinn og „uppbyggingú”
sóknarinnar hverju sinni, með ná-
kvæmum og öruggum sendingum.
Þótt ekki blési byr'ega fyrir KR
liðinu í upphafi, er það fékk á sig
tvö mörk fljótlega, sem Jón Jó-
hannesson miðherji skoraði, lét
það hvergi deigan síga, en sótti
og varðist af kappi. Loks er 23
mínútur voru liðnar kom þess
fyrsta mark, er Örn Steinsen gerði
með skalla, úr sendingu sem Gunn
ar Felixson lyfti fyrir markið. —
Skömmu síðar jafnaði svo Sigúr-
þór. Og enn stuttu síðar tóku KR-
ingar forystuna með marki Gunn-
ars Felixsonar, eftir hörkuskot
Gunnar Guðmannssonar, þar Helgi
hélt ekki boltanum, en Gunnar
náði til hans og renndi honum
inn. Loks á 45. mín. eða rétt fyr-
ir leikhléj bætti Gunnar Guð-
mannsson ;fjórða markinu við. —
Fyrri hálfleikurinn með sín sex
mörk og oft góð tilþrif á báða
bóga, var skemmtilegasti hluti
leiksins. Síðari hálfleikurinn var
hvergi nærri eins vel leikinn eða
fjörlegur. iEn þeim hluta leiksins
lauk með: jafntefli 1:1. Það var
Jón Jóharinesson, sem fyrst skor-
áði fyrir úrvalið, er um 17 mín.
voru af leik. Markið kom fyrir
næsta klaufaleg viðbrögð eins af
varnarleiksmönnunum, sem skali-
áði knötti.rin fyrir fætur Jóns, á
vítateigi, |en Jón sendi knöttinn
rakleitt tii baka á markið og inn.
Loks seini í hálfleiknum jöfnuðu
svo KR-ingar, og leiknum lauk með
sigri þeirra 5 mörk gegn 3. Mið-
framherjar beggja liða, þeir Hörð-
ur Feiixson og Jón Stefánsson,
urðu að yfirgefa völlinn, vegna
meiðsla nokkurra og varamenn
komu inn í þeirra stað.
Ekki verður- annað sagt, en KR-
ingar hafi sýnt betri leik en mót-
herjarnir, einkum þó nýttu þeir
betur völlinn og breidd hans. Út-
herjar þeirra voru sannarlega allt
i af með og Sttu margar fyrirsend-
i ingar. sem sköpuðu mikla hættu,
' auk þess sem vörn mótherjanna
dreifðist. Hins vegar sóttu úrvals
liðarnir yfirleitt upp miðjuna og
lentu þá oft í hörku-harki við
þétta KR-vörnina. Um einstaka
leikmenn »beggja liða, er ekki á-
stæða til að fjölyrða í sambandi
við slíka „kurteisis”-leiki sem
þessa. Þó geta megi þess, að í hópi
úrvalsins, sýndu oft ágæt tilþrif,
miðherjinn Jón Jóhannsson og út-
verðirnir. Matthías Iljartarson og
Jón Leósson. í framlínu KR auk
Þórólfs léku þeir Gunnar Guð-
mannsson, nestor liðsins og Sigur-
þór Jakobsson, af einna mestri
snerpu og öryggi.
Einar Hjartarsson dæmdi leik-
inn, sem yfirleitt var hinn prúð-
asti. — EB.
tMWMMWMMMWMMMMWl
Boston
8, 29m.
Modesto, 24. maí. ntb-afp.
Hinn 24 ára gamli lang-
stökkvari Ralph Boston
stökk 8,29 m. á móti hér um
helgina. Þetta er affeins 2
cm. lakara en heimsmet
Rússans Ovanesjans. Þetta
er bezti árangur Bostons. —
Sería hans var þessi: 8.07 -
8,09, 8,29, 29,8 0,6, 8,14, 12!
Allar affstæffur voru lögleg-
ar.
Bill Baille sigraffi í 2ja
míina hlaupi á 8:37,1 mín.,
en Bruce Kidd hljóp á 8:38-
,1 og Jim Beatty á 8:41,0.
Dyrol Burleson sigraffi í
enskri mílu á 4:00,2 mín. O’- %
Ilara hljóp á 4:00,5 og A1
Oerter kastaffi kringlunni
lengst effa 62,04 m.
rtMUMMWWVMMWWWMW
Þórólfur Beck gengur af leikvangi aff leik loknum.
Fram og Valur berj-
ast í h flokki
REYKJAVIKURMOT 1. flokks í
knattspyrnu hefur staðið yfir und-
anfarnar vikur og keppni verið
mjög skemmtileg og spennandú
Lokið er fimm leikjum af sex ófý
hafa úrslit orðið sem hér segir: „
Þróttur-KR 1-5, ,
Þróttur-Valur 0-3,
KR-Fram 1-4, '
Þróttur-Fram 0-8, ;
Fram-Valur 3-3.
Stigin standa þá þannig, að Frarri
er með 5 stig og hefur lokijí
sínum leikjum, Valur er með 3 ojg
á eftir að leika við KR, KR er méS
2 stig og Þróttur ekkert. Sigri
Valur KR í síðasta leiknum sem
fer fram 30. maí, verða Fram o"
Valur jöfn og þarf aukaleik, eri
verði jafntefli eða tapi Valur, er
Fram sigurvegari.
1*
ALÞYÐUBLAÐIÐ — 26. maí 1964