Alþýðublaðið - 29.05.1964, Blaðsíða 2
jaitstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjóri:
Arm Gunnarsson. — Ritstjómarfulitrúi: Eiður Guðnason. — Símar:
14900-14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við
Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskriftargjald
Jir. 80.00. — í lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Ferðamannalartd
NÚ FER sá tími í hönd, að erlendir ferða-
imenn fara að streyma til landsins. Undanfarin ár
haí'a vinsældir Íslands, sem ferðamannalands, far-
ið hraðvaxandi og sá hópur útlendinga, sem 'hing-
að leggur leið sína til að kynnast landi og þjóð,
vex ört.
Ferðamennimfr færa o'kkur drjúgar gjaldeyr-
'istekjur og skapa hér fjölda manns atvinnu. Ná-
tgrannalönd okkar hafa þó mörg hyer enn meiri
igjaldeyristekjur af heimsókmun ferðamanna, enda
:hafa þau. ef til ivill lagt í meiri kostnað, en við ís-
'lendingar, til að laða að sér ferðamenn.
En það er ekki nóg að auglýsa Island
isem ferðamannaland, það verður að skapa ferða
mönnum þá aðbúð hér, að hinir vandlátustu hafi
ekki yfir neiínu að kvarta. Ánægðir ferðamenn eru
Ibezta landkynning, sem völ er á.
Ýmis fyrirtæki hafa auk Ferðaskrifstofu rík-
'isins nnnið dyggilega að kynningu lands og þjóðar
•á undanfömum árum, og munu flugfélögin mest
ihafa unnið á þeim vettvangi, að öðrum ólöstuðum.
Flugfélögin þyggja rekstur sinn að nokkru leyti á
erlendum ferðamönnum, en til þess að ísland geti
orðið vinsælt ferðamannaland, þurfa flugsamgöng-
úr að vera tíðar við næstu nágrannalönd. Án góðra
og greiðra fiugsamgangna er óhugsandi að erlend-
ir ferðamenn heimsæki ísland í ríkum mæli.
Á Alþingi voru í ivetur sett lög um ferðamál.
Slíka löggjöf hefur lengi vantað hér á landi, en lög
um þetta malasvið er að fitnna í löggjöf velflestra
Evrópuþjóða.
Ferðamálalögin gera ráð fyrir, að komið iverði
á fót hér á landi ferðamálaráði, skipuðu níu mönn-
um. S'kai ráðið vera Alþingi og ríkisstjórn til
ráðuneytis um allt, 'er að. ferðamálum á íslandi
llýtur. Þá skal ráðið gera tiillögur um skipan gisti-
húsamála í landinu og inna af hendi ýmis önnur
istörf tengd ferðamálum.
Þá er ráð fyrir því gert í lögunum, að stofn-
taður verði sérstakur ferðamálasjóður. Hlutverk
hans er að stuðla að byggingu gisti- og veitinga-
húsa i landinu, þannig að skapa megi sem bezt
móttökuskiiyrðil fyrir innlent og erlent ferðafólk.
Árlegt framlag ríkisins til ferðamálasjóðs má eigi
ivera lægra en ein milljón króna. Loks er að finna
í lögum þessum ákvæði um almennar ferðaskrif-
■stofur og Férðaskrifstofu ríkisins.-
Að beztu manna yfirsýn á ísland sér, mikla
framtíð sem ferðamannaland, því náttúra landsiíns
ihefur upp a ýmislegt að ‘bjóða, sem einstætt er
og hvergi er annars staðar að finna. Væntanlega
iverða hin nýju ferðamálalög til þess að styrkja
aðstöðu landsins á þessu sviði verulega, og hjálpa
til við að aíla þjóðinni gjaldeyristekna.
^ Þefta eiiia rakblað hafa þessir 15 rakarar notað
--------með Schick ryðfría rakblaðinu með langvarandi egginni
fengu þcir allir þann mýksta og þægilegasta rakstur, sem þeir
höfðu nokkru sinni upplifað.
Hvert blað gefur sömu þægindin dag eftir dag í 10 — 15 — 20
rakstra og jafnvel enn fleiri.
Við auglýsum sjaldan. Schick blaðið gerir það sjálft, og þar af
leiðandi er verðið lágt 3 blöð í pakka kr. 19,85.
5 blöð í hylki kr. 32,95.
GumæliuQ
Passar í ailar
rakvélar.
Heildv. Péturs Péturssonar, Suðurgötu 14, síiui I9Ö62
Forsmán að horfa tippá
?
ÞAÐ ER ÓGEÐFELLT að sjá
listamenn og listunnendur japla á
hvers annars mannorði. Undanfar-
ið hafa biöðin keppzt við að segja
frá málaferium, sem nú standa
milli tveggja kunnra rithöfunda
og viröist tuggan vera gómsæt í
volgum blaðamunnum — loks-
ins fékk lýðurinn eitthvað til að
smjatta á. — Það er margt, sem
mióur fer í fari okkar mannanna
og margvísleg eru mistökin, sem
okkur verða á. En ég hélt að það
ætti að vera einkamál svo lengi,
sem mistökin skaða ekki almenn-
ing eða þjóðfélagið.
arinn væri í heilögu stríði gegn
ægilegri hættu. Vopnaskak heyrð-
ist úr hverri einustu línu. Hvað á
þetta að þýða? Hvers vegna öll
þessi læti. Ef máiararn-
ir, sem að þessari sýningu stóðu,
eru svona léiegir, þurfti þá allt
þetta vopnaskak?
HVOltT SEM ÞAÐ VAR ætlun
dómarans eða ekki, þá fékk mað-
ur þá tilfinningu, að dómarinn hat
aðist við listamennina eða minnsta
kosti stefnuna í list þeirra. Það
er slæmt þegar gagnrýni liefur
slík áhrif á almennan lesenda. —.
Ef hér er um að ræða togstreitu
milli hlutlægrar listastefnu og ó-
lilutlægrar, þá var áreiðanlega
hægt að gera grein fyrir því, sem
í raun og veru ber á milli án þess
að kæfa raunverulega greinargerð
í óhljóðum hrossabrestsins.
ÞESSAR TVÆR LISTASTEFN-
UR eiga að þokast og þróast hlið
við hlið. Okkur stafai' engin
hætta frá þeim. Lofum þeim að
vaxa í friði.
Hannes á horninu
ALLA MENN ER HÆGT að
gagnrýna. Verk þeirra hljóta að
veroa dæmd. En er ekki nóg að
„dómararnir“ séu látnir í friði
með álit sitt hvernig svo sem það
er, og að listamennirmr séu ekki
að sletta sér fram í umræðurnar.
Sízt íinst mér ástæða til að lista
menn hagi sér eins og liundarnir,
að bíta þá fyrst þegar einhver hef
ur læst skolti sínum í einn. Eg get
ekki betur séð en að hundseð.ið
sé svo ríkt í mönnum, að ráðizt sé
á mann þegar hann liggur, en ekki
fyrr.
KRISTMANN GUÐMUNDSSON
og Thor Vilhjálmsson eru báðir
merkir rithöfundar. Þeir heyra til
ólíkum kynslóóum. Báðir eru börn
síns tíma, afsprengi ákveðinnar
þróunar og báðir hafa haft hlut-
verki að gegna. Báðum hlýtur að
vera ljóst, að þeir verða dæmdir
fyrir verk sín. Um þá er hægt að
skrifa án þess að til komi'getsak-
ir og rætni. Gagnrýni er því að-
eins til góða að hún sé skýring og
leiðbeining. VAamega getur rit
dómurum skjátlast ekki síður en
höfujidum. En við því er ekkert
að segja.
NÝLEGA SKRIFAÐI Kurt Zier
gagnrýni um málverkasýningu.
Um sjálfa sýninguna get ég ekk-
ert sagt, en ekki varð annað sjá-
anlegt af gagnrýninni en að dóro-
KRABBAMEINSFÉLAG íslands
mun í júní-mánuði opna leitar-
stöð í liúsi sínu við Suðurgötu 22
í þeim tilgangi að hefja allsherj-
arleit að legkrabbameini í kon-
um. Alma Þórarinsson, læknir
hefur verið ráðin yfirlæknir og
mun hún jafnframt veita stöðinni
forstöðu. Tvær stúlkur munu einn
ig starfa þarna að frumurannsókn-
nm.
Þessi krabbameinsleit er fram-
kvæmd með frumurannsóknum
hjá konum á vissum aldri, sérstak
lega 25-50 ára. Slíkar allslierjar-
rannsóknir eru framkvæmdar í
flestum menningarlöndum heims,
og hafa hvarvetna gefizt vel. í ýms
um löndum hefur legkrabbamein-
ið látið undan síga og mörgum til
fellum farið fækkandi.
Bindur Krabbameinsfélagið
miklar vonir við þessa nýju leitar-
stöð, og vonast til að konur fáist
til að mæta. Fyrirhöfnin er lítil
og sársaukinn enginn. Þessi rann-
sókn er mikiö öryggi fyrir kon-
urnar, og auk þess er hún ókeypis.
Félagið hefur fengið ameríska
kvikmynd, sem verður með ís-
lenzku tali, en hún fjallar um slík-
ar-rannsóknir.
Leitarstöð félag.sins í Ifeilsu-
verndarstöðinni, sem rekin hefur
verið frá 1957, mun halda áfrarra
starfsemi sinni, en flytja á sumr-
inu í húsnæði krabbameinsfélag-
anna í Suðurgötu.
Aðalfundur Krabbameinsfélags
íslands var lialdinn nýlega. Þar
kom m. a. fram að fræðslustarf-
semi félagsins hefur verið stórauk-
in. Var Jón Oddgeir Jónsson ráð-
inn til að skipuleggja fræðslu-
starfið. Tvær kvikmyndir um tó-
baksreykingar liafa verið á ferð
um unglingaskólana í Reykjavík
Framliald á síðu 10.
2, 29. maí 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ