Alþýðublaðið - 05.06.1964, Side 9
orðið að lenda aftur á flugvell
inum í Lux vegna sandroks, —
sem sagt undursamiegt! Helzt
segist hún alltaf vilja vera í
loftinu. Arne hefur ráðið sig
hér í eitc ár en segist búast
við að verða lengur. Hér sé
svo indælt að vera. Aðspurð
um það, hvernig vinum' henn
ar og kunningjum heima í
Þýzkalandi hafi geðjazt að
þeirri hugmynd, að hún væri
að fara til íslands segir hún,
að allir hafi talið það h.na
mestu ævintýrferð. Hún gruni
vinkonur sínar um að hafa
öfundað sig ofur’.ítið af því að
fá að sjá sæta ísbirni og Eski-
móa á hverjum degi.
Arne sendi inn umsókn, þeg .
ar Loftleiðir auglýscu eftir
flugfreyjum í Þýzkalandi. 500
stúlkur sóttu, að því er hún
segir, 50 voru vaídar úr til við-
ræðu, og 15 voru loks valdar
af þessum 50 til þess að fara
á flugfreyjunámskeið hér í
Reykjavík.
Aðspurð um það, hvernig
henni geðjist að íslendingum
segir Arne, að sér geðjist ágæt
lega að þjóðinni í heild, — en
íslenzkir karlmenn drekka of
mikið, grípur sú danska fram
í,— já allíof mikið, taka hinar
undir. Og svo, þegar þeir eru
orðnir fullir fara þeir að tala
ensku, bæta þær við og fitja
upp á sín fögru nef.
Barbara er dökk á bfún og brá,
— alin upp í Hamborg, — en
hefur víða farið. Hún bjó um
tíma í Englandi, þrjú ár í Sví-
þjóð og hálft ár í Frakklandi,
— nú er hún sem sagt komin til
ísiands og er að hvíla sig eftir
sína fyrsm ferð til New York.
Hún segist hafa farið í verzl
anir í New York og skemmt sér
konunglega, þótt ennþá betra
liefði verið, af hún hefði kom-
izt eitthvað út að skemmta sér,
en nú var stuttur stanz og veúti'
ekki af tímanum til hvíldar,
þegar búðarápinu var lokið.
Stúlkurnar eru á einu máli
um það, að þeim líki ágætlega
við land og þjóð hér nyrðra,
— nema þeita, — að karlmenn
irnir drekka og mikið, — og
kannski þess vegna eða af ein
hverjum öðrum orsökum segj-
ast þær ekki vi’du setjast hér
að fyrir fullt og ailt, — Við
erum ekki gerðar fyrir ísland,
ssgir Barbara. Hún segir, að
sér finnist íslendingar suð-
rænni, — líkari Spánverjum,
— en Svíar, — þeir virðist lifa
mjög heilbrigðu og góðu lífi,
— en þeir vinni of mikið. —
Já, — þeir vinna of mikið, berg
máluðu hinar tvær. — Þegar
þær voru komnar að þeirri nið
urstöðu ,að Reykjavík væri
eins og Jítið spánskt þorp fór-
um við út í aðra sálma .
En fyrr en varði barst talið að
Reykjavík og skemmtanalífinu
þar. Þessum erlendu gestum
kom öllum saman um það, að
þær hefðu lítið kynnzt skemmt
analífinu hér, því að þær gætu
ekki hugsað sér að fara út ein-
ar síns liðs, slíkt tíðkaðisc ekki
í Þýzkalandi. — Eg finn, að ég
er hrædd við þetta frjálsa iíf,
segir Arne, — og hún bætir
því við, að hún sé alin upp við
strangar siðareglur. — Hinar
taka í sama streng. — Varaðu
þig, — gættu þín, -— segja þær
að h.afi jafnan verið viðkvæðið
í föðurhúsum. Og hér, þar sem
dyrnar standa opnar upp á gáct
út á dansleik lífsins, — segjast
þær hika við að kasta sér út
i hringiðuna.
Barbara hefur verið gift, —
en er nú fráskilin. Hún segir,
að fráskildar konur búi við
ýmiss konar erfiðieika í Þýzka
landi. Þær geti ekki fengið,
hvaðá störf sem er, og almenn
ingur líti þær að nokkru leyti
hornauga. Okkur kemur saman
um, að þetca muni eiga rætur
sínar að rekja til trúarbragð-
anna, — jafnvel þótt Arne og
Barbara séu báðar mótmælend
ur og því ekki háðar lögum og
lofum katólsku kirkjunnar.
Svo fáum við okkur aftur í
bollana, og Barbara hættir við
að fara aftur að sofa. Það er
komið sólskin og Sundlaug Vest
urbæjar á næsta leiti.
. ☆
=
Anna Marie, Arne og Barbara (mynd: J. V.) §
>iiiiiii>iiiiiiiiiiiiiiiiiii(tiiiiiiiiiiiiiii.iiiiiiiiiiiiiiiiiiii(iil(ii«iiiivlii«iiiiiiiiiiiiiiiiit(iaiiiiIBiiiiii,atii,(kt,iViii,li,,liiaiaiiii,iiiiiiii,iiliiBiiitliiaiil(, , •miiniiiiiiiiii,,,,uiiiii,
ENSKAR og HOLLENZKAR
Vor- og sumarkápur
SVAMPFÓÐRAÐAR
Kápur og dragtir .
Kápu- og Dömubúðín.
Laugavegi 46.
VERKAFÓLK
SÍLDARVINNA
Síldarstúlkur og karlmenn vantar á nýja söltunarstöð á
RAUFARHÖFN.
Nytízku íbúðir og mötuneyti á staðnum.
Upplýsingar í síma í 36, Raufarhöfn, og 50165, Hafnarfirði.
Viljum ráða síldarstúlkur til Siglufjarðar. — Einnig getur
verið um söltunarpláss að ræða fyrir austan, eftir að sölt-
un lýkur á Siglufirði.
FRÍAR FERÐIR OG HÚSNÆÐI. — KAUTRYGGING.
Uppiýsing-ar gefnar að Hvammsgerði 6, Reykjavík.
Sími 32186.
HaraSdur Bö’övarsson & Co.
AÐVÖRUN
Að gefnu ti'lefni skal einstaklingum og fyrir-
tækðjum bent á, að óheimilt er að láta senda
til land-sins sýnishorn af vörum þeim, er vér
höfum lögum sambvæmt einkaleyíi til inn-
flutnings á, án samráðs við oss.
★
ÁFENGIS- OG
TÓBAKSVERZLUN RÍKISINS
Tilkynning frá landlækni
Þar sem ekki virðist enn lát á sóttinni i Aberdeen, ér
mönnum, sem ætla að hafa viðdvöl í Skotlandi, ráðlagt
að láta bólusetja sig gegn taugaveikí, áður en þcir fara
þangað. Jafnframt er mönnum eindregið ráðið frá að fara
til Aberdeen eða nágrennis og að minnsta kosti alls ekki
án þess að láta bólusetja sig.
Auglýsingasíml
ALÞÝÐUBLAÐSINS
er 14906
ALÞYÐUBLAÐiÐ — 5. júní 1964 $