Alþýðublaðið - 07.06.1964, Qupperneq 5
Thor Vilhjálmsson
Reykjavík, 5. júní - HKG
KJARVAL, bók um Jóhannes Itjar
val eftir Thor Vilhjálmsson, og; síð-
ara bindi Shakespearsþýffinga
Belga Bálfdánarsonar koma út á
opnunardegi . listahátíffarinnar,
opnunardegi listahátíðarinnar Bók
Thors um Kjarval er gefin út af
Helgafelli, en Mái og Menning
gefur út Shakespearsþýffingarnar.
Blaðamenn ræddu í gær við
Thor Vilhjálmsson um bók hans
um listamanninn. Aðspurður
sagði Thor, að hann hefði verið
nokkuð lengi að búa sig Undir að
skrifa þessa bók, en sjálft verkið,
að skrifa bókina, hefði ekki tekið
svo langan tíma, — mest af því
hefði verið unnið í fyrrasumar.
Thor sagði, að hér væri ekki um
að ræða viðtalsbók né ævisögu í
venjulegri merkingu þess orðs,
heldur væru þetta „mjög persónu-
legar hugleiðingar um Kjarval,
list hans og feril”.
Höfundur bókarinnar og efni-
viðurinn munu hafa þekkzt lengi
og ferðazt talsvert saman um
ísland. Kjarval mun ekki hafa séð
I bókina um sjálfan sig, — en um
I helgina ætlar hann austur til Borg
arfjarðar og mun þá fá bókina í
nesti. Sama daginn og opnuð verð
ur listahátíð í Reykjavík taka mó-
fuglarnir eystra á móti meistaran-
um með samsöng.
100 myndir prýða bókina, þar af
eru 25 litmyndir af málverkum
Kjarvals en 75 svart-hvítar. Þess-
(Framhald á 2. síSu).
HMtMMHMMMHMUMMMUMMMUUMMMUUMMHMMMM
The Lyric Trio
FIMMTU tónleikar Tónlistar-
félagsins á þessum veti'i voru
í síðustu viku og komu þar
fram bandar,ískir listamenn er
nefna sig The Lyric Trio. Tríó
þetta samanstendur af Robert
Mann, fiðmleikari, Leonld Ham
bro, pianó og Lucy Rowan,
leikkona. Robert Mann er með-
limur í emum fremsta strengja
kvartett heimsins í dag. The
JuiIIiard Quartel.
Fyrsta verkefnið á efnis-
skránni var fiðlusónata eftir
Mozart. Tækni fiðluleikarans
er afar góð en það virðist oft
vera emhver illskýranlegur
munur á miklum sólista og
kvartettleikara óg kom það
einkar vel fram á þessum tón-
leikum. Samleikur listamann-
anna í sónötu Mózarts einkenn
ist af sjaldheyrðri rhythmiskri
nákvæmni og samvizkusemi, en
þó skorti eitthvað á að hér
væri um sannfærandi túlkun
að ræða. Annað atriðið á tón-
leikunum var upplestur á þrem
ævintýrum eftir H. C. Ander-
sen og Rudyard Kipling með
tónlist eftir Robert Mann. Fram
sögn leikkonunnar var sérlega
hrífandi; biæbrigðarík og hnit
miðuð, en tónlistin, sem var
hlaðin fiðlu „effektum” er sjald
an virtust í nokkru samhengi
við viðkomandi ævintýri, hefði
alveg mátt missa sig. Tínlistin
var fremur úl truflunar en að-
stoðar. Setaasta verkið var
Kreutzer sónata Beethovens.
Um flutninginn er svipaða sögu
að segja og um Mozart sónöt-
una; leiftrandi samleikur — en
eitthvað skorti.
Jón S. Jónsson
Kiarvalsbók eftir
FRÍMERKI FRÍMERKI m FRÍMERKI
PÓSTSTJÓRN Bandaríkjanna ætl-
ar að halda upp á afmæli Nevada-
fylkis, m. a. með því að gefa út
nýtt frfmerki þann 22. júlí 1964.
Þetta er aldar-afmæli fylkisins.
— Merkið verður 5 centa-merki
með mynd af Virginia-borg. í
horni merkisins til hægri á ljósum
grunnl stendur: „Nevada State-
hood 1864—1964”. — Litir merk-
isins eru eðlilegir. — Nevada er
á vestari hluta hásléttunnar miklu
milli Klettafjallanna að vestan og
Utah-fylkis að austan. - Það hefur
verið kallað silfur-ríkið, vegna
þess að eitt sinn voru þar góðar
silfurnámur. — Nevada, sem er 7.
stærsta ríki Bandaríkjanna, er
þó, ef Alaska er undanskilið, fá-
mennasta ríkið, fbúar þess eru að-
eins um 285 þús.
Árið 1859 fundu Peter O’Riley
Og Patrick Mc Laughlin mjög auð-
ugar gullnámur þar sem nú er
Virginia í Nevada. Borgin Virginia
þaut upp og urðu íbúar hennar
brátt rúmlega 10 þúsund að tölu
og höfðu allir á einn eða annan
hátt atvinnu af leitinni að auðæf-
um fjaUanna. í 16 ár létu fjöllin
nálægt Virginia í té ótrúlega mik-
inn auð í gulli og silfri, en svo,
allt í einu, eins og það hefði skeð
á einni nóttu, var ævintýrið á
enda.
Þá varð Virginia að „drauga-
borg”. — Þegar allur málmur hafði
verið unninn úr jörðinni, fluttu
námumennirnir og fjölskyldur
þeirra burtu. — Þeir skyldu aðeins
eftir sig tómar og draugalegar
byggingar, gapandi gíga og himin
háa grjóthauga sem einu minnis-
merkin um tilvist þeirra. á þess-
um slóðum. — Á víð og dreif um
gömlu námuhéruðin standa
„draugabæirnir” - leifar auðugra
borga, sem spruttu upp skyndilega
f nágrenni við námur, sem gáfu af
sér ótrúleg auðæfi, sem voru svo
skyndilega uppurin. — Borg var
nefnd Rhyolite nálægt Dauða-
dalnum. — Hún rann lífsskeið sitt
á einum 4 árum, frá því að námu-
gröftur hófst og blómlegt athafna-
líf gerði innreið sína svo að segja*
á einum degi, unz námurnar von»»
orðnar tómar af góðmálmum og
hvert mannsbarn hafði yfirgefitf
borgina. — Járnbrautarstöðin þar
var eitt sinn hin stærsta og glæsi»
legasta í öllu Nevadafylki, en ntý
liggja ekki einu sinni brautarsper
lengur að henni! ....
Myndin á þessu frímerki sýniK
eina af þessum „draugaborgum’%
Virginia-City. — Þessar gömlt#-
auðu borgir hafa mikið aðdráttar-
afl fyrir ferðamenn. Mikill fjöl'di-
þeirra streymir þangað árlega: tf*
þess að sjá og skoða bústaði gull-
grafaranna gömlu. — Einnig er
það svo í Nevada, að fjárhættu#
spil eru leyfð. Einnig það dreginf
margann ferðalanginn þangað. —■
Kunnustu spilavítin eru í borgui*.
um Reno og Las Vegas. — Á hin-
um víðáttumiklu hásléttum lands-
ins er einnig paradís veiði- spect-
og fiskimanna. — Frímerkið kem-
ur út eins og áður er sagt, 22,7«,
1964.
EKKI ER ÞETTA AFTURHALD!
JÚNÍ-áAMKOMULAGIÐ hefur
fengið mjög góðar móttökur hjá
þjóðinhi. Þetta var sú lausn, sem
mikill meirihluti þjóðarinnar
vildi: vinnufriður, stöðvun verð-
bólgu og kjarabætur fyrir laun-
þega eins og framast er unnt að
veita, án þess að dýrtíðarhjólið
fcaldi áfram að snúast.
Ríkisstjórnin hefur með sam-
komulaginu skuldbundið sig til að
beita sér fyrir sex nýjum laga-
bálkum. Þeir eru þessir:
1) Lög um verðtryggingu kaup-
gjalds.
2) Lög um lengingu orlofs.
3) Lög um margvíslegar breyting-
ar á húsnæðislánakerfinu.
4) Lög um 1% launaskatt, er at-
vinnurekendur greiði og renni
til íbúðalána.
5) Lög um nýjan skatt á fasteign-
ir til íbúðalána.
6) Lög um vinnuvernd.
í heild er þetta stórátak til
frjálslyndari félagsmálalöggjafar,
aukins öryggis launþega og auk-
innar aðstoðar samfélagsins við
hina efnaminni. Er þetta gjörólíkt
þeim afturhaldsstimpli, sem stjóm
arandstaðan hefur reynt að festa
á ríkisstjórnina.
Flestir munu telja sjálfsagt að
setja bráðabirgðalög um þessi
atriði ölL, þar sem Alþingi hefur
nýlega lokið störfum. Þó má deila
um, hvort heimilt er að leggja
hvaða pólitískar afleiðingar júní-
samkomulagið muni hafa. Eftir-
farandi atriði virðast augljós:
Rikisstjómin styrkist mjög og
réttir sig við eftir hina miklu eri-
iðleika i kjara- og dýrtíðarmálum
síðustu níu mánuði.
Innan Sjálfstæffisflokksins styrk-
ir Bjarni Benediktsson aðstöðu
Benedikt Grðndal
skrifar um helgina
á skatta með bráðabirgðalögum,
en stjórnlagafróðir menn munu
skera úr því atriði. Kjarni málsins
er sá, að um þessi mál ríkir víð-
tækt samkomulag og án efa stuðn-
ingur mikils meirihluta þjóðarinti-
ar.
Freistandi er að velta fyrir sér,
sína verulega. Hann hélt af þolin-
mæði og festu við samningaleiff-
ina, þótt ýmsir teldu hana þýðing-
arlausa og vildu lögfesta Iausn á
málunum
Alþyðuflokkurinn unir vel við,
því ofangreind frumvörp eru öll
gömul baráttumál og enn sérstök
áhugamál flokksins. Emil Jónsson
hefur enn einu sinni sýnt styrk
sinn í vandasömum samningum.
Kommúnistar fá tóm til að reyna
að sameina hina sundruðu fylk-
ingu sína og þeir standa ekki £
verkföllum, þegar kosningar til
Alþýðusambandsþings hefjast i
sumar. Þó fer því fjarri, að ein-
róma ánægja sé í liði þeirra með
lausn málsins.
Fratnsóknarraenn eru algerlega
utan gátta og súrir í broti, eins og
sjá mátti á meðferð Tímans á
fréttinni um samkomulagið. Þeim
fannst ekki um stóran viðburð að
ræða. Þeir hefðu talið sér meiri
pólitískan hag af verkföllum og ó-
friðí, og þeir vita, að það er mikið
veikleikamerki að standa utanvið
einn mesta stjórnmálaviðburð
kjörtímabilsins.
Meira en þriðjungur af starfs-
tíma síðásta þings fór í deilur um
kjara- og dýrtíðarmálin. Ef fram-
kvæmd júní-samkomulagsins geng-
ur að óskum, ætti svo ekki að
verða á næsta þingi.
/s 18 sjómít-
ur frá Horni
ÍSRÖNDIN út af Homi er f
frá 67 gr. 00 N og 23 gr. 20 í
mín. og 67 gr. 17 mín. N og I
22 gr. 40 mín. V. Þaffan aff i
67 gr. 05 og 22 grr. 00 V. Einn i
ig er mikiff ísrek á þessir i
svæffi allt aff 67 gr. 00 N.
íshrafl er á 66 gr. 55 mín i
N og 22 gr. 00 V og 66 gr. e
40 mín. N og 22 gr. 00 V. i
Staffur þessi er 18 sjómíl-
nr, 30 gr,; réttvísandi frá '
Horni. 1
SMUBSTðÐIK
Sæfúni 4 - Sími 16-2-27
BíIIIbb tít smnrðttr fljfftt off reL
MJnm ailaur taffondtr itnimte
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 7. júní 1964 $