Alþýðublaðið - 17.06.1964, Page 5

Alþýðublaðið - 17.06.1964, Page 5
20 ÞÚSUND TILISLANDSIFYRRA Reykjavík, 13. júní — KG RÚMLEGA 20 þúsund ferðamenn komu til íslands á síðasta ári ogr er áætlað að þeir hafi greitt 170 milljónir fyrir ferðir og þjónustu. Og til þess að auðvelda móttöku ferðamanna í sumar hafa nú verið teknir í notkun 6 heimavistarskól ar .Þetta og ýmislegt fleira kom fram á fnndi, sem Þorleifur Þórð- arson, forstjóri Ferðaskrifstofu Ríkisins hélt með fréttamönnum í gær. Verður hér á eftir rakið nokk «ir af þeim upplýsingum sem Þor leifur Iét í íé um Ferðaskrifstof- una. * LANDKYNNING Landkynningarstarfið hefur frá upphafi verið eitt aðalverk- efni Ferðaskrifstofunnar. Er það unnið á h,nn margvíslegasta hátt, með útgáfu upplýsingarita, með því að greiða fyrir ri,höfundum, blaðamönnum, kvikmyndatöku- mönnum og ljósmyndurum og að ild að upplýsingaskrifstofum er- lendis. Upplýsingaritin eru gefin út á mörgum tungumálum og dreift víða um heim .Þá sendir skrif- Btofan einnig erlendum ferðaskrif stofum'mikið af fjölrituðum til- kynningum og upplýsingum. Þar sem góð kvikmynd er senni lega bez,a kynningartækið hefur Ekrifstofan gert sér far um að greiða fyrir því, að hingað komi góðir kvikmyndatökumenn frá þekktum fyrirtækjum. Hafa kvik- myndir þessara gesta síðan verið eýndar í kvikmyndahúsum og sjón varpi víða um lieim. Þá hefur Ferðaskrifstofan liaft samvinnu við hin Norðurlöndin um rekstur upplýsinga- og kynningar skrifstofa, í Frankfurt og Ztirich síðan árið 1961 og er góðs árang- urs að vænta frá því samstarfi. Til merkra atriða á sviði land- kynningar á síðasta ári má t.d. nefna heimsókn Frakkans Sami- vel. Samdi hann bók um ísland, sem fékk mjög góðar viðtökur og einnig gerði hann kvikmynd, sem byrjað var að sýna í febrúar síð- astliðnum. Þá kom hingað hópur brezkra sjónv.manna. Tóku þeir sérstaka mynd fyrir sjónvarpið og svo gerðu þeir litmynd, sem Ferða skrifstofan mun fá til eignar og afnota. Frá Bretlandi kom einnig útvarpsmaðurinn Mr. Bidson, en hann tók hér saman framhalds- þætti um ísland „í fótspor Willi- ams Morris“, en Morris ferðaðist hér á iandi skömmu fyrir aldamót. Auk þessa komu svo sjónvarps menn frá Japan, Bandaríkjunum og ítalíu. ★ FYRIRGREIÐSLA Landkynning og upplýsinga- þjónusta byggist einnig mikið á skriflegri þjónustu. Bréf berast víða að og eru þar settar fram fjarskyldustu óskir um upplýsing ar og fyrirgreiðslu. Og er undan far, komu erlendra ferðamanna oft miklar bréfaskriftir og skipta dag legar bréfa- og póstútsendingar ,ugum og oft hundruðum Qg þurfti 5 manns til þess að annast það starf að jafnaði í vetur. in hefst alla föstudaga frá og með 3. júlí. Sex daga ferð til Norður- og Austurlands. Þessi ferð hefst alla þriðjudaga frá og með 7. júlí. Þriggja daga ferð um Rangár- valla- og V-Skaf.afellssýslur. Ferð in hefst alla þriðjudaga frá og með 7. júlí. ' ★ LEEÐARLYSINGAR Unnið hefur verið að útgáfu á leiðarlýsingum fyrir þá, sem ferðast með bílum í alfaraleið. Vegna fjárskorts hefur þessi út- gáfustarfsemi ekki gengið eins ört og skyldi. Hafa þegar verið gefnar út þrjár leiðarlýsingar. Að Gullfossi og Geysi. Við þjóðveginn Reykjavík Akureyri og Reykjavík Þingvellir — Borgarfjarðarhérað. í prentun eru leiðarlýsingar: Akureyri - Mývatn - Húsavík - Akureyri, Reykjavík - Hafnarfjörð ur - Krísuvík -Selvogur - Hvera- gerði og Reykjavík Suðurnes . Skoðum og stillum bílana Fljótt og vel. BlLASKOÐUN Skúlasrötn 32. Sfml 13-100. Grensásvegr 18, sími 1-99-45 Ryðvcrjum bflana meÖ Tecty B. «IIU(llllllim«llllllllimMMIIItll<ll?IM> • I IIIUMMMH«MMMIIHIIIHMIMMMMMMHMMIMIIIMMIIIIMMMMMIMIMUIIMMMHIMUMMMMUMIIIimiMIMIMMMIMimMI«MMMMIMMUIUMMMI W Þorleifur Þórðarson Þá hpfur verið reynt að vanda sem bezt fyrirgreiðslu þeirra ferða manna, sem hingað hafa komið, því á henni veltur viðhorf ferða- mannsins til lands og þjóðar og, hvort hann verður síðar málsvari hennar erlendis eða ekki. ★ LEHTSÖGUMENN Ekkert ferðalag tekst vel und ir lélegri fararstjórn og hefur því frá upphcifi verið lagt allt kapp á að ná til menntáðs fólks og þeim öðrum kostum búið, sem góður fararstjóri verður að ráða yfir. Hefur þetta tekizt og ágætir menn og konur gefið kost á sér til þessa starfs. Hefur Ferðaskrifstofan gengizt fyrir sérsúikum námsskeiðum fyr ir fararstjóra og fengið sérfróða menn til þess að halda þar fyrir lestra. Hefur þetta leitt til þess að nú er fjöldi ágætra fararstjóra í starfi. ★ SKEMMTI OG ORLOFS- FEHÐIR INNANLANDS Eins og á undanförnum árum mun Ferðaskrifstofan skipuleggja skemmti- og orlofsferðir fyrir ís- lendinga innanlands. í sumar mun verða unnið að þessum málum á enn breiðara grundvelli en nokkru sinni áður og eru það fyrst og fremst heimavistarskólarnir, sem gera það kleift. Er hér um að ræða fjórar leið- ir og lagt af stað í ferðirnar viku- lega og er hægt að tengja þær hverja við aðra. Þær 4 ferðir sem ákveðið hefur verið að efna til eru: Fimm daga ferð um Dali og Barðaströnd til Vestfjarða. Ferðin hefst alla fimmtudaga frá og með 25. júní Fjögurra daga ferð um Kaldadal Borgarfjörð og Snæfellsnes. Ferð MUSICA NOVA tí HLUTUR Musica Nova í ýf irstandandi Listahátíð var af- greiddur áð Hótel Borg s. '1. sunnudag. Á efnisskránni kenndi margra ólíkra grasa. Pólýfónkórinn, undir stjórn Ingólfs Guðbrandssonar söng íslenzk og ensk lög sem Gunn- ar R. Sveinsson hefur radd- sett. Raddsetningar þessar eru allar vel unnar og bregða ný- stárlegum og persónulegum svip yfir þessi lög. Söngur kórs ins hefur oftast verið betri en nú, og cr mér kunnugt að þar er öðru fremur um að kenna ónógum æfingatíma. Trió fyrir píanó, fiðlu og sello eftir Sveinbjörn Sveinbjörns- son, sem einhver hafði dottið niður á í hirzlum Landsbóka- safnsins, var hér flutt í fyrsta sinn að því er ég bezt veit. Það var fróðlegt að hlýða á þessa tónsmíð eftir tónskáld, sem við fyrst og fremst þekkj um sem sönglagasmið. Af hin- um fjórum þáttum verksins er sá fyrsti heilsteyptastur. Flytj endur voru Ingvar Jónasson, Einar Vigfússon og Þorkell Sigurbjörnsson og skiluðu þeir hlutum sínum ágætlega. For- vitnilegasta verkið á éfnis- skránni var Hringspil fyrir fiðlu, víólu, klarinet og fagott eftir Pál Pampichler. Páll er okkur kunnari fyrir ágætan hljóðfæraleik og hljómsveita stjórn en sem tónskáld. Ein á- heyrn að verki sem þessu er ó- fullnægjandi, jafnt fyrir gagn rýnendur sem aðra, en í því er greinilega ýmislegt sem vert er að kynnast nánar. Helzti gallinn á verkinu við fyrstu áheyrn, virðist vera ofnotkun á strengja-effektum, þeir eru ávallt varasamir og virðast oft út í hött, ekki fremur í þessu verki en svo mörgum öðrum núímatónsmíðum. Verkið Son orities fyrir píanó eftir Magnús Bl. Jóhannsson hafði upp á að bjóða aragrúa af hljóðum sem framleiða má á strengi slag hröpunnar, ekki aðeins á þenn an gamaldags hátt, að styðja á pfanólyklana, heldur einnig með ótal verkfærum. Þorkell Sigurðbjörnsson fór höndum og handabökum um hljoðfær ið í verki þessu, grafalvarlegur á svip. Ég hélt að fullorðnir menn væru hættir þessum sam kvæmisleik, sem er þegar orð inn hálfrar aldar gamall. Sein asta atriðið á tónleikum þess- um var Fönsun eftir Atla Heimi Sveinsson. Ég hafði bú- izt við að geta litið á og fjall- að um þetta nýja verk lista- mannsins sem grínstykki, en þar skjátlaðist mér hrapallega. Eg verð því að setja upp hátíð svip og biðja til Guðs, að mér megi takast að innblása þess- ar línum með þeim alvarleg- heitum sem þetta listaverk á svo réttilega skilið. Nafnið á crp Lrnu listaverkinu er afar frumlegt eins og hver óvitlaus maður hlýtur að sjá, en ég veit því miður .ekkert um uppruna þess cða merkingu. Verkið er skráð fyrir 6 hljóðfæraleikara sem leika á 5 hljóðfæri. Þar sem gera má ráð fyrir þvi að tón- skáldið gjörþekki samvinnu- þýðni íslendinga, verður það að kallast fífldirfska að skella . tveim hljóðfæraleikurum á sama hljóðfærið. Það hafa orð- ið blóðug slagsmál út af minna tilefni en því, að einn sé að gramsa í strengjum flygils með an annar er að föndra við píanó lyklana. Listaverk þetta er að mörgu leyíi vanþroskað og fjarska ófrumlegt og er það furðulegt, að félag sem kennir sig við nútíma tónlist skuli vinna að því að flytja okkur tónverk, sem er cins íhaldsamt og gamaldags og Fönsun. Þetta mun ég nú leitast við að sanna. Tónskáldið telst til hóps þeirra* listamanna sem álíta að allt sem þeim dettur í hug sé stór kostlegt og guðdómlegt og sömuleiðis að það sé lífsnauð- synlegt að brjótast undan oki einræðisherranna á sviði tón- sköpunar seinustu 10 aldirnar. Ég get af handahófi tínt til nokkur tónskáld sem þar er við átt: Bach, Beethoven og Brahms. Það skal tekið fram hér að það er fjarri því að all ir þeir sem bendlaðir eru við áðurnefndan hóp, séu eins heittrúaðir á lífsspeki hins þýzka Stockhausens, eins og höfundurinn að Fönsun. Hinir heittrúuðu þykjast ekkert geta notfært sér af reynslu forfeðr anna. Allt sem þér lesandi góð ur, gæti dottið í hug að væri einhvers virði fyrir þá sem tónsmiði, mundu þeir óðar flokka undir F.iötra. „Listin á að vera friáls“ mundu þeir segja bér, „og við áskiljum okk ur rétt til að setja okkur eigin reglur um listsköpun." Þetta er óneitanlega fögur hugsjón en því miður á hún sér ekki, og getur alls ekki átt sér stað í veruleikanum. Hver einasta á- kvörðun sem tónskáld tekur er umvafin fjötrum sem hann hef ir engin tök á að losna undan. Ekki er rúm hér til að ræða þetta fyrirbrigði nánar að sinni. Það einasta sem hinn heittrúaði getur víðurkcnnt af efnivið forfeðranna eru fyrir- brigði scm heimspekilega og vfs indalega séð hafa hvorki upp haf né endi: Tími og hljóð. Það sem er undirrót tónsköpun ar hjá mörgum postulunum í dag er fyrst og fremst: að skapa eitthvað nýtt, óþekkt og sér í lagi frumlegt. Ef við lít- um á Fönsun frá þessum sjón- arhóli, komumst við að þeirri niðurstöðu að frumlcgheitin I verkin eiga að opinberast þrennu: a) Hljóðfæraleikararnir taka sér sæti á mismunandi tíma. Ég hefi einhvers staðar heyrt Frh. á 14. síðu. 5« .-tMMIMMMMIIMMMMMMIMIIIMMMMMMMIIMMMMMMMMMMMIMIMMIMIM' IIIIHMIIIIIHMMIMIIIIMMIIIIIIMIIIHMIMIIIMMIMMMMMMIMMIII l»:l •«<» II llllll IIIIIII Mll IIIMI Mll llllllk ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 17. júní 1964 S ítttífittfíhmíttfttíttrtftftítTtrtHMt

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.