Alþýðublaðið - 25.07.1964, Side 5
SKELJAKALKIÐ
BÆTIR TÖÐUNA
DE GAXJLLE forseta ákaft fagnaS af miklum mannfjölda á Place de L‘Etoile á hersýningu á
Bastilludeginum 14. júlí, þjóðhátíð'ardag Frakka.
AmtWWWWWWWWWWOWWWWWWrtWWMMWWtMWWWWtMðWtMWMWWli
ifnahagsþensla Austur- og Vestur Evrópu
Reykjavík, 23. júlí - HP
UNDANFARIN tvö smnur hefur
verið unnið mikið að áburðartil-
raunum á Hvanneyri, og einn lið-
urinn í þeim hefur verið að gera
tilraunir með slteljakalk, þar eð
lítið sem ekkert kalk er í Kjarna,
sem mest hefur verið' notaður hér
Herhlaup í
N-Víetnam?
SAIGON, 23. júlí (NTM-
Reuter). — Landvarnaráðu-
neyti Suður-Víetnam neitaði
í dag þeim ummælum yfir-
manns flughers Iandsins frá
f gær, að flugmenn hans
æfðu sig nú fyrir hugsan-
iega árás á Norður-Víetnam.
En ekki var minnzt á önnuf
ummæli flughersliöfðingjans
þess efnis, að suður vítn-
nömskum hermönnum liefði
verið varpa'ð niður í fallhlíf
um í Norður-Víetnam.
Blaðið „Saigon Post“, sem
kemur út á cnsku, skýrir svo
frá, að mikilvæg iðjuver og
hafnarmannvirki í Norður-
Vietnam hafi verið sprengd í
Ioft upp síðan 10. júlí með
aðstoð suður-víetnamskra
hermanna.
í dag bárust fréttir af bar
dögum í nágrenni Trung Lap,
um 30 km. vestur af Saigon.
Heil herdeild úr Vietcong-
sveitum kommúnista mun
hafa tekið þátt í bardögun-
um. Sautján menn úr liöi
stjórnarinnar munu hafa fall
ið en 34 særzt.
allra áburðartegunda undanfarin
14 ár eða eftir að Áburðarverk-
smiðjan tók að framleiða hann.
Tilraunirnar hafa Ieitt í ljós, að ef
þess er gætt að bera malað'an
skeljasand í jarðveginn með
Itjarnanum, fæst kalkauðugra fóð-
ur og oft talsvert meiri uppskera,
þó að áhrif kalksins á sprettuna
séu mjög mismunandi eftir stöð-
um o. fl.
Eins og fyrr segir, verður minna
kalkmagn í -töðunni af svæðum,
þar sem eingöngu er borinn á
Kjarni, en þar sem notaður er
kalksaltpétur, sem fyrr á árum var
algengasta áburðartegundin hér,
en er nú talsvert dýrari en Kjarni.
Úr þessum kalkskorti fóðursins má
bæta með því að gefa skepnunum
kalk eða bera á malaðan skelja-
sand, svo að uppskeran verði kalk
auðugri. Allmargar tilraunir hafa
verið gerðar með þetta á Hvann-
eyri undanfarið, einkum tvö síð-
ustu sumrin, svo og á sex bæjum
á ýmsum stöðum í Borgarfirði. —
Hefur Sementsverksmiðjan lagt til
malaðan skeljasand endurgjalds-
laust til tilraunanna og ennfremur
veitt til þeirra nokkurn fjárstyrk
og sýnt á þeim mikinn áhuga.
Að meðaltali mun kalkskammt-
urinn, sem dreift hefur verið í alla
reiti á Hvanneyri sl. ár hafa
gefið 4-14 hestburðum meiri upp-
skeru en þar sem ekki var borið á
kalk, og hefur kalkið að meðaltali
aukið uppskeruna um 10-20%. Á
Akureyri og Sámsstöðum hefur
kalkið aftur á móti ekkert aukið
uppskeruna, en kalkinnihald töð- ;
unnar hefur hins vegar aukizt þar ;
um helming. Svipað er að segja um
niðurstöður tilrauna, sem gerðar
hafa verið með kalksaltpétur ann-
ars vegar og Kjarna liins vegar.
Hin efnahagslega útþensla í
Austur-Evrópu að meðtöldum Sov
étríkjunum var hæg árið
1933, en iðnaðarlönd Vestur-Ev-
rópu juku útþenslu sína með
sama hraða og árið 1962, og nam
aukningin 3,5 af hundraði. Þess-
ar upplýsingar eru gefnar í „Ec-
onomic Survey of Enrope in 1963"
sem gefin er út af Efnahagsnefnd
SÞ fyrir Evrópu (ECE).
Þegar litið er á löndin í Aust-
ur-Evrópu í heild jukust þjóðar-
tekjurnar u. þ. b. jafnmikið og
árið 1962, þ. e. a. s. kringum 3 af
hundraði, en á árunum 1960 og
1961 nam aukningin þar hins veg-
ar 6 af hundraði. í Rúmeníu og
Albaníu nam aukningin 7-8 af
hundraði, í Ungverjalandi 5 af
hundraði, og í Austur-Þýzkalandi
er talið að hún hafi verið undir
3 af hundraði. í Tékkóslóvakíu
minnkuðu þjóðartekjurnar um 4
af hundraði, en höfðu aukizt um
1 af hundraði árið 1962. í fyrsta
sinn í mörg ár voru ekki í skýrslu
Sovétríkjanna um ársáætlunina i
neinar tölur um aukningu þjóðar-
tekna. ECE gerir ráð fyrir þvi
að hún hafi numið 4 af hundraði
og hafi allavega verið minni en ár
ið 1962, en þá nam hún 6 af hundr
aði.
Að því er varðar Vestur-Ev-
rópu, upplýsir ECE að útþensla x
iðnaði hafi minnkað í lcVidura
Efnahagsbandalagsins (EEC), era.
aukizt á fríverzlunarsvæðiim
(EFTA), enkum vegna mikillar
aukningar í Bretlandi. Þrátt fyrir
Framhald á síðu 10.
□ □□□□□
„Ymislegt bendir til þess, að
íislenzka þjóðin standi innan
tíðar á krossgötum varðandi
flokkaskipun í landinu.
Það cr opinbert leyndarmál,
að Þjóðvarnarflokkstilraunin
hefur beðið algert skipbrot.
Hitt veit almenningur ekki enn,
að Sósíalistaflokkurinn er að
brotna upp, en fær þó I sífellu
ýmis augljós dæmi um þetta
upp í hendurnar.
Um þetta farast Jóni Bald-
vini Hannibalssyni, scm fyllti
flokk kommúnista um skeið, en
var fljótur a'ð átta sig á því,
að hann var þar í dauðra manna
húsi, m. a. svo að orði í Frjálsri
þjóð 3. júlí S.I.:
„Sameiningarflokkur alþýðu
er einfaldlega ekki það, sem
hann segist vera og verður ekki
úr þessu. Hafi hann einhvern
tíma átt að sameina íslenzka al-
þýðu, þá er það fyrir löngu
sannanlega borin von. Flokkur,
sem ekki getur sameinað' sjálf-
an sig, sameinar ekki aðra“.
Um brotafylgi þessara tveggja
flokka verður barizt á næstunni,
og það verður örlagaríkt fyrir
íslenzka þjóð, Iivernig sú bar-
átta fer.
Framsóknarflokknum er orð-
ið Ijóst, eftir hverju er að slægj
ast: Nái liann þessu fylgi að
meginhluta til sín — en þar
bar hann i fyrstu lotu sigurorð
af Sósíalistaflokknum um Þjóð-
varnarfylgið sbr. síðustu þing-
kosningar — cr hann kominn
með' sterk spil á hendina að
knýja íslenzk stjórnmál inn í
tveggja flokka kerfi likt og í
Bandaríkjum Norður-Ameríku,
þar sem tveir borgaralegir flokk
ar tefla einráðir um öll völd,
hug og háttu fólks í krafti of-
boðslegra fjárráða. Óskum vér
slíkrar flokkaskipunar liér?
Ef vér athugum hugsunarhátt
og lífsskoðun þess fólks, sem
fyllt hefur þá tvo flokka, sem
nú eru að leysast upp, kcmur
strax í ljós, að þar er um menn
og konur að ræða, sem ýmist
eru eða standa mjög nærri jafn
aðarmönnum að' hugsunarhætti.
Þau hafa ýrnist yfirgefið Alþýðu
flokkinn eða aldrei fyllt hann,
af því að þeim hefur verið tal-
in trú um, að hann hafi brugð-
izt sínu sósíal-demókratiska
hlutverki. Þetta fólk allt þráir
innst inni sterkan sósíal-demó-
kratiskan flokk, sem það' geti
fyllt og starfað fyrir, svipaðan
flokk og brezku og norsku
verkalýðsflokkarnir eru í aug-
, um þeirra, og ef það dreymir
um tveggja flokka kerfi, þá
væntir það vinstra flokks gegn
Iiægri, það er tvær andstæður,
en ekki tveggja borgaraflokka
með örlítið tilbrigðilegum í-
haldsblæ.
Það væri því næsta grálegur
örlagaleikur, að þetta fólk yrði
til þess í áttavillu sinni að efla
Framsókn scm leiknaut Sjálf-
stæðisins. Ilér er þa'ð, sem Al-
þýðuflokkurinn á að verða skap
andi afl í rás viðburðanna:
Hann er eini fasti vinstri
kjarninn í Iandinu.
Hann hefur aldrei hvika'ð frá
grundvelli jafnaðarstefnunnar.
Hann á gáfuðu og mikilhæfu
forustuliði á að skipa.
Honum ber því að taka for-
ystu í því að byggja upp sterk-
■an vinstri flokk, sem getur rúm
að allt það fólk, er nú hefur
skilið skipbrot Þjóðvarnar og
SósíaliStaflokksins, cn vill
stuðla að raunhæfri vinstri
pólitík.
AuðVitað verður þessi samein
ing erfitt vandaverk. Mörgu því
fólki, sem nú er á lausum kili
frá Þjóð'vörn og Sósíalista-
flokknum, þykir sú villan sár-
ust, að það hafi ekki dæmt Al-
þýðuflokkinn rétt. Þaö heldur
dauðahaldi í þann fordóminn,
að Alþýðuflokkurinn sé einnig
úr leik. Innst inni dáist það þó
að þreki og festu flokksins að
hafa komizt sterkur og traustur
út úr þeim vopnaburði, sem á
honum hefur staöið allt frá
1930.
Hér verða allir að' skilja, að
mestu máli skiptir að taka raun
liæft á hlutunum, strika yfir
fornar væringar og fordóma og
fylkja liði til sóknar á ný, ná
inn í þá sóknarfylkingu hverj-
um þeim nýtum og gegnum
Þjóðvarnarmanni og Sósíalista-
flokksmanni, sem er sósíaldemó
krati að skoðun og vill þjóð
sinni vel, og setjast niður og
finna, að hverju þessi fylking
getur og vill vinna saman. Hitt
getur beðið um sinn, sem hún
er ekki alveg sammála um, því
■að hitt munu ærin verkefni.
Og þegar þau eru leyst,
munu menn sjá, að ýmis ný
verkefni bíða, sem þeir geta vel
orðið sammála um, livcrnig
leysa skuli. Tortryggnina hefur
tekið' upp í sunnanvindi sam-
vinnunnar".
(Alþýðumaðurinn).
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 25. júlí 1964 ^