Alþýðublaðið - 11.09.1964, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 11.09.1964, Blaðsíða 16
RÁÐUNEYTIÐ STAÐFESTI ÚRSKURÐ BÆJARFÓGETA wmmmmmmammammaamtammammmmammmmz Reykjavík, 10. sept. — KG. DÓMSMÁLARÁBTJNEYTIÐ hefur nú fallizt á lagatíilkun bæjarfóget- ans í Kópavogi vegna kjörbúöar- vagnsins, sem KRON tók í notkun fyfir réttum hálfum mánuði. Taldi bæjarfógeti aS notkun bílsins bryti meðal annars í bága Við 13. grein lögreglusamþykktarinnar, en í henni i er fjallað um alls konar verzlup. Bað; fógeti siðan um umsögn dómsmálaráðuneytisins, og kom Framhald á 13 síðu VEL SÖTT KJÖR' DÆMISÞING KJÖRDÆMISRÁÐ Alþýðu- flokksins í Vestfjarðakjördæmi efndi til kjördæmisþings, er háð var á ísafirði síðastl. sunnudag. Fund þennan sátu Emil Jónsson, form. Alþýðuflokksins, Birgir Finnsson alþingismaður og Jón Sigurðsson, form. Verkalýðsmála- nefndar Alþýðuflokksins. Fluttu þeir allir framsöguræöur. Kjördæmisþingið var afar vel sótt. Mun láta nærri að um 40 manns hvaðanæfa að af Vestfjþrð- um hafi sótt þingið. Miklar um- ræður urðu þar og tóku til máls, auk framsögumanna: Björgvin Sighvatsson, ísafirði, Bjarni FriðriksSon, Suðureyri, Kolbeinn Guðmundsson, Flateyri, Ágúst H. Pétursson, Patreksfirði, Kristján Kristjánsson, ísafirði, Marías Þ. Guðmundsson, ísafirði, Eyjólfur Bjarnason, Suðureyri, Sigurður Jóhannesson, ísafirði, Umræður allar mótuðust mjög af áhuga fyr- ir framgangi Alþýðuflokksins og voru í alla staði hinar ánægju- legustu. Þingið stóð milii kl, 14-19,30. Ný stjórn var kjörin fýrir Kjör- dæmisráðið á þinginu og var hin sáma stjórn endurkjörirt, að öðru leýti en því, að Pétur Sigurðsson vélstjóri var kosinn formaður þess í stað Jóns H. Guðmundsson- ar er flutzt hefur búferlum úr kjördæminu. Brotnaöi á báöum fótum Reykjavík, 10. sept. — KG. ÞAÐ slys varð á Suðurlands- brautinni gegnt Múla, í nótt, að kona varð fyrir bifreið og fót- brotnaði á báðum fótum auk ann- arra meiðsla. Slysið varð með þeim hætti, að leigubifreið var á leið austur Suðurlandsbraut milli klukkan 1 og 2. Telur bifreiðarstjórinn, að hann hafi ekki séð konuna á götunni fyrr en það seint, að ekki var tími til þess að hemla. Lenti kon- an því fyrir bifreiðinni og féll í götuná. Var hún flutt á sjúkra- hús og reyndist vera fótbrotin á báðum fótúin. Konan, serri fýrir bifreiðinni varð, e’r 42 ára gömul og er talin hafa verið töluvert undir áhrifum víns, þegar slysið varð. Fulltrúar símamanna ó þingi BSRB: Kommar fengu aðeins 1 mann Reykjavík, 10. sept. — ÁG. FULLTRÚAR Félags íslenzkra símamanna á þingi BSRB hafa nú •verið kosnir. Á félagið rétt á áð sénda 12 fulltrúa, og voru þeir ýmist kosnir á fundum eða að við- Iiafðri allsherjaratkvæðagreiðslu. 4 þessum hópi mun aðeins vera einn kommúnisti, en enginn fram- soknarmaður hlaut kosningu. Er þetta glæsilegur sigur fyrir lýð- jræðissinna í félaginu. . . í félagi íslenzkra símamanna eru 11 deildir, 6 í Reykjavík og 5 úti á landi. Á hver deild rétt á ein- um fulltrúa, en formaður félags- áns er sjálfkjörinn fulltrúi á þing- ,ið. í þrem deildum i Reykjavík fór kosning fulltrúanna fram á fundum, en í hinum þrem með allsherjaratkvæðagreiðslu. Fulltrúarnir eru þessir: Úr Reykjavík: Ágúst Geirsson, formað ur félagsins, Andrés G. Þormar, Hulda B. Lárusdóttir, Bjarni Ólafs fscm, Hörður Bjamason, Jónas Guð imundsson og Haukur Jóliannes- son. Utan af landi: Karl Helgason, Akranesi, Erling Sörensen, ísa- firði, Þorvaldur Jónsson, Akur- í.'yri, Halla Árnadóttir, Akranesi, Og Reynir Sigurþórsson, Gufu- Skálum, Sandi. Eins og kunnugt er af fréttum, var haldinn fundur hjá Félagi starfsmanna stjórnarráðsins s.l. þriðjudag. Voru þá kosnir þrír full trúar á þ'ngi BSRB. Kosnir voru Gunnar Vagnsson, Hannes Jóns- Sön frá Hvammstanga og Sigurjón Ágústsson, Athygli vakti að Krist MWWWWWWWWMWW' f Kjördæmisþing í Borgarnesi Kjördæmisráð Alþýðu- flokksins í Vesturlands- kjördæmi efnir tii kjördæm- isþings, cr hefst kl. 2 e. h. næstk. laugardag í Borgar- nesi. Á þinginu flytur Bene- dikt Gröndal alþsngismað- ur framsöguræðu um stjórn- máiaástandið. Þingfulltrúar og aðrir, sem boðaðir hafa verið til þingsins, eru hvatt- ir til að sækja fundinn vel og stundvíslega. - Stjórniu. ján Tliorlacius, formaður BSRB, náði ekki kosningu. Mun hann því sitjg þingið sem formaður, en ekki fulltrúi og hefur því ekki at- kvæðisrétt. Engin síld- veiði í gær Reykjavík, 10. sept, — GO, VONIR um síldveiði í dag hafa brugðizt. Sæmilegt veður var á miðunum suðaustur af Dalatanga í morgun, en þar fann Pétur Tliorsteinsson töluverða síld í nótt, en í dag hefur verið að kalda og segja sjómennirnir að ekki megi versna neitt úr þessu til að kastandi sé. Síldin er mjög djúpt, á 100-150 faðma dýpi og gefur sig ekki. Eitt skip fékk 800 tunnur í morgun. Þórður Jónasson RE. Skipin munu flest vera á þessum slóðum. SIGLFIRÐINGAR hafa lít ið orðið varir við síld í sum- ar, nema þá helzt þegar lykt ina frá bræðslunni hefur lag'. yfir bæinn. Lítið sem ekkert var saltað, og það fólk, sem kom til að vinna á söl unar- stöðvunum beið aðgerðar- laust og án árangurs eftir- síldinni. Reyndu menn að stytta sér s'undir með ýmsu móti og var þá margt brall- að. Á söltunarstöðinni Ým- ir tóku piltarnir gúmmí- hanzka og bundu þá framan á vatnsslöngu. Síðan var vatningu hleypt á og það lát- ið renna hægt í hanzkann. Var mesta furða hvað gúmmí ið þoldi og varð hanzkinn á stærð við síldar'unnu áður en hann sprakk. (Ljósm. VM). MMWMMUHHHMHMMHM Viðbúnaöur í Malaysíu (NTB-Reuter). Kuala Lumpur, 10. sept. ÞJÓÐÞINGIÐ í Malaysíu sam- þykkti einróma í dag ákvörðun stjórnarinnar um að lýsa yfir neyð arástandi í öllu sambandsrikinu. Þingið samþykkti þetta þegar Tuuku Abdul Rahmaxl forsætis- ráðherra hafði sakað nokkra flokka, sem hann nefndi ekki, um að veita yfirgaxigsstefnu Indóuesa virkan stuðning. Hann sagði þingheimi, að um 2.500 ungmenni, aðallega Kín Tvö innbrot Reykjavík, 10. septemher. ÁG. í NÓTT var brotizt inn í Kápu- og dömubúðina að Laugavegi 46 og stolið þaðan 120 krónum í skiptimynt. Þá var ■ einnig farið inn í verzlunina Radíóver að Skólavörðustíg 8 og( þaðan stolið einu ferða-útvarpstæki. yerjar, en einnig nokkrir Malayár, hefðu farið til Indónesíu þar sém þeir hefðu fengið fræðslu í und- irróðursstarfsemi og skæruhern- áði. Hann sagði, að augljóst væri að samkomulag hefði náðst með índónesíustjóm, sem vinsamleg væri kommúnistum, og kommún- istum í Malaysíu. Þingið samþykkti einnig með yfix-gnæfandi meirihluta frum- varp, sem veitir stjórninni vald til að stjórna landinu með bráða- birgðalögum. Þessi sérstöku völd miða að því að treysta varnir landsins og auka öryggi almennings. Samkvæmt lög unum verður hægt að fangelsa fólk með tilliti til öryggis ríkisins. Yfir völd fá að handtaka fólk án dóms og laga og leynilegar yfirheyrsl- ur verða leyfðar. Sósíalistaflokk- urinn var eini flokkurinn, sem greiddi atkvæði1 gegn frumvarp- inu. Framhald á síðu 13. t

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.