Alþýðublaðið - 22.09.1964, Blaðsíða 13
Dansskóli Heiöars Ástvaldssonar
Kennsla hefst mánudaginn 5. október.
Samkvæmisdansar (nýju- og gömlu dansarnir) og barnadansar. Flokkar fyrir börn (4—12 ára),
unglinga (13—16 ára) og fullorðna (einstaklinga og lijón). Byrjenda- og framhaldsflokkar.
Reykjavík:
Innritun daglega frá 2—7 í síma 1-01-18 og 3-35-09.
Kennt verður í nýjum, glæsilegum húsakynnum skólans að
Brautarholti 4. *ÍllM
Kópavogur:
Innritun daglega frá 10 f. h. til 2 e. h. og
20—22 í síma 1-01-18.
Hafnarfjörður:
Innritun daglega frá 10 f. h. til 2 e. h. og
20—22 í síma 1-01-18.
Keflavík:
Innritun daglega frá 3—7 í síma 2097.
Nemendur þjálfaðir til að taka
heimsmerkið í dáhsi.
Kennslugjöld verffa hin sömu og s.l. vetur.
BÓKASAFN
Framhald úr opnu
Stjórn safnsins skipa Ásgeir
Blöndal Magnússon, Frímann Jón
asson og Guffmundur Þorsteins-
son. Útlánstímar eru á þriðjudög-
um, miðvikudögum, fimmtudögum.
og föstudögum kl. 4.30-6., fyrir
börn og kl. 8.15-10 fyrir fullorðna,
auk þess er barnabókaútlán í Kárs
nesskóla yfir vetrarmánuðina.
Deila harf
Framhald úr opnu.
Natalie Wood, Steve McQeen,
Frank Sinatra, Peter Lawford,
Sammy Davis, Nat King Cole,
Milton Berle, Harry Belafonte,
Eddie Fisher, Shelly Winters,
George Jessel, Henry Fonda,
Danny Thpmas, Connie Stevens
yngri Steve Allen og Barry Sulj
van.
Margar hinna stærri stjarna
forðast að taka nokkra opin-
bera afstöðu. Telja það ekki
skynsamlegt fyrir fólk í
skemmtiiðnaði að taka ákveðna
afstöðu í stjórnmálum.
Bob Hope, Bing Crospy og
Cary Grant eru meðal þeirra,
sem kjósa að láta ekkert uppi
um skoðanir sínar.
Hope segir svo: Ég fæ fólk
til að hlægja á kostnað beggja
flokkanna, og mér dytti aldrei
í hug að fara að móðga fólk,
sem hlær!
Einangrunargler
Framleítt elnungls úr Arralt
rlerl. — 8 ára ábyrg-S.
Pantiff tímanlega.
Korkiðjan
3 flugvélar
Framh. af 1. síffu.
anna. Klukkan 8,55 í gærmorgun
nær sv.o brezk farþegavél sam-
bandi við D-EHNI, þá vélina, sem
síðar týndist. Flugmaðurinn taldi
sig þá vera á réttri leið og rétt
ókominn til íslands. Síðar rofnaði
sambandið og ekkert spurðist til
vélarinnar 1 bráð. Leit var hafin
klukkan 10 um morguninn og kl.
10,17 fór önnur flugvél til leitar
og loks vél af geröinni Electra
kl. 12,48. Allar vélarnar fóru frá
Keflavik. Electra vélin náði sam-
bandi við hina týndu flugvél um
svipað leyti og flugstjórnin á
Reykjavíkurflugvelli. Síðan náðl
flugmaðurinn míðunargeisla frá
Keflavfk. Hann var þá í stefnu
SSV frá Keflavík í 2500 feta hæð
og hafðí 25 mínútna flugþol, en
var óviss um fjarlægð frá vellin-
um. Þetta gerðist um klukkan
14,15 í gærdag. Strax og vitað var
um stefnu á vélina fór orrugtu-
þota fró Keflavík til móts við hana
■ásamt DC-3 björgunarvél. Þær
fundu vélina án erfiðleika, en kl.
15,25 var eldsneytisforðinn þrotinn
og ílugmaðurinn nauðlenti far-
kosti sínum á sjónúm um 34 míl-
ur SSV frá Keflavík í augsýn á-
hafna 4 flugvéla. Lendingin tókst
giftusamlega og maðurinn fór í
gúmmíbjörgunarbát. — Klukkan
15,54 var hann svo tekinn um borð
í þyrlu frá Keflavík og fluttur með
henni til lands og siðan í sjúkra-
hús hersins þar á vellinum. Mað-
urinn var ómeiddur og yfirgaf
sjúkrahúsið í morgun.
Um afdrif þriðju vélarinnar er
ekkert vitað. Aðfaranótt sunnu-
dags sáSt þó óþekktur fljúgandí
hlutur í ratsjá hersins á Græh-
landsjökli. Hlutur þessi flaug yfir
miðjan jökulinn með u. þ. b. 100
mílna hraða, en ekki er enn vitað
hvort flugvélin var þar á ferð. Þá
sá maður sem var á ferð í gær-
kvöldi í Eldborgarhrauni sunnan
á Reykjanesskaga skammt frá
Krýsuvík, ókennilegt rekald í
sjónum þar suður af. Maðurinn
var viss um að hér var ekki um
bát að ræða, tunglsljósið glampaði
á hlutnum, sem var ekki ósvip-
aður flugvél á hvolfi. Leitað var
á þessu svæði í alla nótt, en án
árangurs. Þá var leitað frá Ný-
fundnalandi og Grænlandi á haf-
inu þar á milli án árangurs og
loks fóru tvær flugvélar í dag frá
Keflavík, önnur í áttina til Kuhi-
suk á Grænlandi og hin í áttina
til Hvarfs. Þær komu aftur án
þess að verða nokkurs varar.
Jean Paul Weiss hélt ferð sinni
áfram í morgun eins og ekkert
ihefði í skorizt og ætlaði að vera
rúmar 11 klst. tll Frakklands án
viðkomu. Flugmaðurinn sem bjarg
aðist heitir Moody og er banda-
rískur.
Vélbáturinn Ögri frá Hafnar-
firði bjargaði svo flaki flugvélar
innar D-EHNI, þar sem hún mar-
aði í sjónum suður af Grindavík.
Hann kom svo til Reykjavíkur í
nótt.
Hélt áfram
Framhald af 16. síðu.
svæffi og þaffan er hægt aff
leggja upp í flug yfir hafiff á
sVona litlurn vélum. Þaff er
ekki leyft frá kanadískum flug
völlum. Þeir höfffu ákveffiff aff
hafa samflot yfir hafiff, en eih
flugvélin átti aff fara til Finn-
lands, önnur til Þýzkalands og
liin þriffja til Frakklands.
Þessar vélar eru taldar mjög
góðir og öruggir farkostir og
hafa veriff aff vinna sér mark-
að í Évrópu aff undanförnu.
Sambandiff viff vélina, sem
fara átti til Finnlands, rofnaði
skömmu eftir aff þeir komu
norffur fyrir Nýfundnaland, en
í henni var einn maffur, banda-
rískur, aff nafni Wall. Loks
tapaffi Weiss sanibandinu viff
Moody flugmann á vélinni, sem
átti aff fara til Þýzkaiands, þeg-
ar þeir voru suffur af Hvarfi á
Grænlandi. Þar Ientu þeir í
segulstormí og snjókomu. Átta-
vitarnir rugluffust og tók fyrir
radíó. sambandiff milli vélanna
og eftir þaff flaug hann einn
síns liffs. í fyrstu gat hann ekki
miffaff sig viff neitt, en ramb-
affi á veffurskipiff Alfa og tók
stefnuna frá því. Síffan gekk
allt vel til Reykjavíkur, nema
hann var seinna á ferffinni en
hann ætlaffi sér vegna mót-
vinds.
Ekki sagffist Weiss hafa ver-
iff neitt órólegur á ferffalaginu
og engan bObug var á honum
aff finna, þrátt fyrir ófarir fé-
laganna. Klukkan aff ganga 8
gekk hann út aff flugvélinni og
bjó hana til brottferffar. Hon-
um sagffist vera nákvæmlega
sama þót tekin væri mynd af
honum og vélinni fyrir brott-
för. Hann sagffist ekki vera hjá-
trúarfullur.
inninacirAfjjo
rSniöÍcl
2 TEKNIR
Framhald af 16. síðu
út fyrir línu, viðurkenndu þá að
hafa verið innan fiskveiðitakmark-
anna, en skipstjórarnir báru það
fyrir sig, að togararnir hefðu ver-
ið með bilaða vél. Féllust þeir síð-
an á að fylgja Óðni til ísafjarðar,
þangað sem hann kom með þá í
morgun. Kom Wyre Vanguard að
bryggju kl. 6,30, en James Barrie
kl. 7. Skipherra á Óðni er Jón.
Jónsson. Réttarhöld hófust í máli
skipstjóranna hjá bæjarfógetan-
um á ísafirði, Jóhanni Gunnari
Ólafssyni, kl. 4 í dag, og stóðu
þau enn kl. 9 í kvöld, en í fyrra-
málið áttu réttarhöldin að hefjast
aftur kl. 9 f. h. James Barrie, H’
15, er 666 tonn, smíðaður í Aber-
deen 1949, en Wyre Vanguard, FD
36, er 338 tonn að stærð, smíðað-
ur í Selby 1955.
Eins og fyrr segir, er þetta ekki
í fyrsta sinn, sem Richard Taylor,
skipstjóri á James Barrie, á yfir
höfði sér dóm á ísafirði. Hann
var fyrst dæmdur þar fyrir land-
helgisbrot árið 1961, og í desem-
ber sama ár var hann dæmdur
fyrir að berja lögregluþjón á ísa-
firði svo illa, að lögregluþjónninn
var frá vinnu um nokkurt skeið
af þeim sökum. Hafði togarinn
leitað hafnar á ísafirði vegna veð-
urs, og er lögreglan á ísafirði hugð
ist stinga tveimur af áhöfninni,
sem gerzt höfðu sekir um áflog og
ölvun á veitingahúsi þar í bæ, i
steininn, kom Taylor að og réðzt
á lögregluþjóninn. Var skipstjóri;
inn síðan dæmdur í fangelsi og
fluttur að Litla-Hrauni, en sýknað
ur skömmu fyrir jól og leyft að
fara heím. í nóvember í fyrra var
hann enn dæmdur fyrir landhelgis
brot á ísafirði, og veit hann því,
hvers hann má vænta nú, er hann
kemur fyrir dóm þar í fjórða sinn.
&J.MK
vantar unglinga til að bera blaðið til áskrif-
enda í þessum hverfum:
Hverfisgötu
Barónsstíg
Rauðarárholt
Miðbæinn
Laufósveg
Lönguhlíð
Afgretðsla Alþýðublaðslns
Síml 14 900.
tr
ÓSKAST.
Afgreiðsla Alþýðublaðsins. Sími 14 900.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 22. sept. 1964