Alþýðublaðið - 22.09.1964, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 22.09.1964, Blaðsíða 5
BSRB krefst kjara- bóta og leiðréttinga Kristján Thorlacíus endurkjörinn formaður Reykjavík, 21. sept. — HP. 23. þingi BSRB lauk kl. 5 síð- degis í gær, en það hófst síð- astliðinn fimmtudag. Þingið sam- þykkti ýmsar tillögur og ályktan- ir um hagsmunamál opinberra starfsmanna, þ. á. m. tillögur um Iaunamál, samningsrétt og skatta- mál. Kristján Thorlacius var end- urkjörinn formaður bandalagsins, fyrsti varaformaður varð sjálf- björinn, Júlíus Björnsson'" frá Starfsmannafélagi Reykjavíkur- borgar, en annar varaformaður var kjörinn Haraldur Steinþórs- son frá Landssambandi framhalds Bkólakennara. Þingfundur hófst kl. 1,30 á laug ardag og stóð til kl. 8 um kvöldið. Voru þá rædd nefndarálit, en kl. 3,30 sátu þingfulltrúar kaffiboð Reykjavíkurborgar. Umræðum um nefndarálit var haldið áfram í gær og stóð til kl. 5, en þá sleit fyrsti forseti, Júlíus Björnsson, þinginu. í þinglok flutti Kristján Thorla- cius stutt ávarp, en norski full- trúinn, Björn Björnsson, hafði orð fyrir norrænu gestunum, sem boðið var til þingsins, og þakkaði móttökurnar á íslandi. í gær- kvöldi hafði fjármálaráðherra, Gunnar Thoroddsen, boð inni í Ráðlierrabústaðnum fyrir þing- fulltrúa. Við stjórnarkjör : í : gær var Kristján Thorlacius- frá Félagi starfsmanna stjórnarráðsins end- urkjörinn formaður BSRB með 64 atkvæðum. Ólafur E. Einars- eon frá LandsSambandi framhalds Bkólakennara hlaut 51 atkvæði, en einn seðill var ógildur. Júlíus' Bjömsson frá Stárfsmannafélagi Reykjavíkurbórgar varð sjálf- kjörinn fyrsti varaformaður banda STRÍÐ Framhald af síða 7. til að lesa þær! Og baksíðan, sem yfirleitt er helguð íþróttum brezkum blöðum, er í Sólinni helg Uð sjónvarps- og útvarpsefni og grein, sem einkum er ætluð kven- fólki, — en í Skotlandsútgáfunni eru íþróttirnar þó á „bakinu“, _ l>ví að talið er, að skozkir lesend- Wr séu svo óhaldsamir, að ekki sé þorandi að reyna að bjóða þeim upp á svona róttækar nýjungar. ★ Sólarupprás? Hvort Sólin á raunverulega eft- ir að rísa í Fleet Street óg boða nýjan sið, mun tíminn leiða í ljós. En að minnsta kosti er þetta stórárás i stríði allra við alla, — sem enginn sér enn fyrir endann á. Sólin er fyrsta brezka lýðblaðið, eem hefur göngu sína í meira en mannsaldur. Ef tilraunin mistekst vlta allir, að enginn þorir að gera aðra tilraun á okkar tímum. , (BT). lagsins, en ' Haraldur Steinþórs- son frá Landssambandi framhalds skólakennara var kjörinn annar varaformaður með 61 atkvæði. Ól- afur E. Einarsson hlaut 34 atkv., en einn seðill var auður. Aðrir í stjórn voru kjörin: Anna Lofts- dóttir, forttiaður Hjúkrunarfélags -íslands, Ágúst Geirsson, formaður Félags islérizkra • símamanna, Síra Bjarni Sigurðssón frá Prestafélagi íslarids, Eiriar Ólafssón frá Stárfs mannafélagi ríkisstarfsmanna, Guðjón B. Baldvinsson frá Starfs- mannafélagi ríkisstofnana, Magn- ús Eggertsson frá Lögreglufélagi Reykjavíkur, Teitur Þörleifsson frá Sambandi íslenzkra barnakenn- ara og Valdimar Ólafsson frá Fé- lagi flugmálastarfsmanna ríkis- ins. í varastjórn voru kjörnir: — Þorsteinn Óskarsson frá Félagi íslenzkra símamanna, Sigurður Sigurðsson frá Starfsmannafélagi ríkisútvarpsins, séra Jakob Jóns- son frá Prestafélagi íslands, Sig- urður Ingason frá Póstmannafé- lagi íslands og Ingibergur Sæ- mundsson frá Starfsmannafélagi Kópavogs. Þegar helztu tillögurnar, sem samþykktar voru á þessu 23. þingi BSRB fjölluðu um launamál, samn ingsrétt og skattamál, en auk þeirra samþykkti þingið m. a. til- lögur um samstarf við erlend stéttarsambönd starfsmanna. — Verða tillögurnar birtar í heild hér í blaðinu síðar, en í tillög- unni um launamál segir, að þingið telji, að nota beri laga- og reglu- gerðarákvæði frá 1962 um uppsögn kjarasamninga og beinir því til kröfugerð í væntanlegum samn- bándalagsfélaga og stjórnar aS hefja nú þegar undirbúning að kröfugerð í væntanlegum samn- ingum, þar sem m. a. verði lögð áherzla á, að opinberir starfsmenn fái að fullu bætta þá liækkun verðlags, sem átt Lefur sér stað frá. gildistöku núgildandi launa- stiga, en einnig verði höfð hlið- sjón af því, áð i dómsorði Kjara- dóms var ekki gengið nægilega til móts við réttmætar kröfur op- inberrá starfsmantta. Einnig verði gerðar leiðréttingar á skipun í launaflokka, öllum slarfsmörinum tryggður a.m.k. einn frídagur á viku o.fl. krafizt styttingar vinnu tíma fyrir alla þá, sem nú hafa yfir 40 stunda vinnuviku o. fl, í ályktun um samningsrétt er fyrri stefna bandalagsins og samþykktir um, að opinberir starfsmenn njóti sams konar samningsréttar og aðr- ir launþegar búa við, ítrekað, sér- staklega þar sem reynsla opin- berra starfsmanna af dómsorði Kjaradóms 31. marz 1963 og fjöl- mörgum úrskurðum meirihluta kjaranefndar sýni, að hinn tak- markaði samningsréttur sé ófull- nægjandi til frambúðar. Þá skoraði þingið á ríkisstjórh og Alþingi að breyta gildandi skattalögum og framkvæmd skatt- heimtu á þann veg, er tryggi fullt réttlæti í þeim málum og benti í því sambandi á eftirfarandi atr- iði: Tekjuskattur og útsvar verði sameinað í einn skatt, er verði innheimtur um lei.ð og tekna er aflað, persónufrádráttur verði störhækkaður og hækki Frh. á 14. síðu. mWWWWWMWMMMWMW FÉKK EKKI SKRÁMU í NAUÐLENDINGUNNI Reykjavík, 21. sept. — GO. M O O D Y, sá seni á sjónum lenti, hafði nóg að gera í dag, Hann var eltur af blaðamönn- um v og flugumferðastjórnin vildi ná tali af honum til að fá skýrslu hans um ferðalagið. Við náðum í hann þegar hann kom út frá yfirflugumferðastjóran- um seinni partinn í dag. Þetta er þrekinn maður, tekinn að nálgast miðjan aldur og sköll- óttur. Hann lét hið bezta af sér: —;Ég fékk ekki svo mikið sem skrámu í Iendingunni,' sagði Iiann. Þetta var eins og manni væri klappað dálítið liarkalega á bakið. Meira var höggið ekki. Svo komst ég út á vænginn og blés út bátinn og 10 mínútum seinna var ég kominn í þyrluna á leiff til lands. Þetta var allt einstak- lega snaggaralega af hendi leyst hjá björgunarmönnunum. Moody sagðist vera frá Midd- Iesex í New Jersey. Hann er atvinnuflugmaður og hefur flog ið síðan fyrir stríð. Hann hef- ur aldrei áffur flogið svona lít- illi vél yfir Atlantshafiff, en hann átti aff skila vélinni til Parísar, þar sem annar maður tæki við henni og flygi til Þýzkalands. Hann sagðist liafa verið orðinn mjög syf jaður þeg ar hann fannst, enda búinn aff vera á lofti í meira en 20 klst., eða 22V* í allt. Hann blotnaði í sjónum og skalf eins og hrísla nokkra stund eftir að honum var bjargað, eri heilsufariff hef- ur ekki beðiff neinn hnekki viff baðið. Sjórinn var kyrr, þegar hann Ienti. Viff fórum í flugskýliff hjá Flugsýn, þar sem veriff var aff taka flugvélina £ sundur til stff hreinsa hana og ná úr henni seltunni. Hann virti hana fyrir sér, án þess að séð yrði á svip hans aff 24 stundum fyrr voru dagar hans nærri taldir í þessu sama farartæki. Moody sagðist vera sérstak- Iega hrifinn af því, hvað allt gekk snurðulaust og vel viff björgunina, allt frá að flugvél- arnar af Keflavíkurflugvelli fundu hann og þangað til hann var dreginn upp úr sjónum. iMWWMMWMMMMMMWWMWWWWWWWWMWWWMWMMtWWWWWMMMWMMWWWWWIt Landbúnaðarvörur Framh. af 1. síðu. á milli kindakjöts og nautakjöts annars vegar og mjólkuf hins veg ar. Af þessum tveim ástæðum hækkar því kjötverð til bænda hlutfallslega meira eri mjólkur- verð. Verð' til bænda á 1. og 2. gæðaflokki kindakjöts er ákveð- Ið 46.15 pr. kg. og verð mjólk-' ur til bænda kr. 7.42 pr. ltr. í sambandi við þessa sariininga hefur ríkisstjórnin gert samkomu: lag við fulltrúa bænda í sex- manna-nefnd, sem felst í eftir- farandi -yfirlýsingu landbúnaðar- ráðherra: ,„I. — Afurðalán landbúnaðar- ins úr Seðlabankanum miðast við sama hundraðshluta og afurða- lán sjávatútvegsins. Lári frá við- skiptabönkunum verði að hundr- aðshluta sambærileg út á land- búnaðárafurðii- og sjávarafurðir. II. — Ríkisstjórnin leggúr fýrir næsta Alþingi frumvörp að búfjár ræktarlögum og jarðræktarlögum, sem feli í sér að jarðræktarfram- lög hækki á næsta ári um allt að 30% í heild miðað við sömu Cramkvæmdir og 1963. Jarðrækt- arstyrkurinn verði greiddur sam- kvæmt sérstakri vísitölu, sem miðast við framkvæmdakostnað. Bráðabirgðaákvæði við jarðrækt- arlögin tryggi bændum fjárfram- lag til uppsetningar á súgþurrk- unartækjum með mótor og blós- ara, er nemi að meðtöldum jarð- ræktarstyrk 1/3 kostnaðar. Sé um færanlega vél að ræða skal styrk-- urinn miffast við hæfilega stóran rafmagnsmótor. • Bráðabirgða- ákvæði þetta gildir næstu 5 ár. -III. — Verja skal árlega næstu 5 ár allt að kr. 5 milljónum til aðstoðar þeim bændum, sem.verst eru settir, eftir nánari ákvæðum og í samráði við Búnaðarfélag ís- lands, landnámsstjóra og stjórn Stéttarsambands bænda.” Fulltrúar bænda' í sex-manna- nefndinni gera ráð fyrir að aukn- ing afurðalánanna geri sláturleyf- ishöfum og mjólkurbúum fært að hækka fyrstu útborgun til bænda um 10%. ~ ■ Vegna samkomulags ríkisstjórn- ar, verkalýðsféiaganna og atvinnu- rekenda frá 5. júní sl. koma verð hækkanir á landbúnaðarvörum fram í hækkuðu kaupi miðað við kaupgreiðsluvísitölu nóvember- máriaðar, nema til komi auknar niðurgreiðslur. Ekki er búið að á- kveða hverjar verða niðurgreiðsfcr- ur úr ríkissjóði og er því eftir a(f"" ljúka útreikningi útsöluverðs eil>» stakra vörutegunda. Lokið verður við þá útreikninga og nýtt verðlag landbúnaðarvar* auglýst næstu daga. . • Lét lífið ... krh. MÍ 16 afða. ið, er hánn heytði hróp og ke* frá drengjum þar skammt frá. -r-i Hann fór i síma óg fékk leyfl tiF- ■ að fara til drengjanna og vita hvað væri að. f Þegar hann kom til þeirra, s4 hann að einn drengjanna var kom- inn á flot á heimasmíðuðum fléká og bar hratt frá landi. Drerigurttu* var með baridarískum skátadreng^. um af Keflavíkurflugvellí, ses* höfðu verið þarna í tjöldum 1t$"''' því á föstudagskvöld. Rodney E. Taylor fór úr mestw- - af fötum sínum. og kastaði sér Itt—c sunds. Þegar hann náði flekanunv - var hann örmagna af kulda Oíf - þreytu og lézt hann þar. Þyrh* bjargaði síðan drengnum innaa stundar. Minningarathöfn verður haldin um Rodney E. Taylor á Keflavlk- urflugvelli á morgún. , ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 22. sept. 1964 §

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.