Alþýðublaðið - 24.09.1964, Page 7
SAMBAND starfsmanna í bandaríska bílaiðnað-
inum, UAW, gerði nýlega kjarasamning við Chrysler
fyrirtækið, sem markar tímamót í sögu sambandsins.
Aldrei fyrr hafa í einum og sama samningi náðst
fram jafn mörg hagsmunaatriði verkamanna. Til-
kynnt var, að samningar hefðu tekizt skammri
stundu áður en verkfall átti að hefjast. Tölufróðir
menn segja, að kostnaður fyrirtækisins vegna hinna
nýju kjarabóta verði 57 sent, (um 25 íslenzkar krón-
ur) á hverja vinnustund. í eftirfarandi grein er stuðzt
við frásögn bandaríska vikuritsins Newsweek af
samningunum.
Aðeins o5 mínútum áður en
verkfall skyldi hefjast, náðist
samkomulag milli Crysler fyrir-
tækisins og samninganefnda
UAW. Verkfall var lengi talið
því sem næst óhjákvæmilegt
þar eð mikið bar á milli. Slíkt
verkfall mundi hafa haft geysi-
víðtækar afleiðingar og snert
allt efnahagskerfi landsins. Báðir
aðilar fullyrða, að hið nýja sam-
komulag muni ekki verða til
þess að auka verðbólgu í iand-
inu.
Aðrir eru þó þeirrar skoðunar
að enn sé langt í land með, að
hægt sé að segja fyrir um hverj-
ar afleiðingar samkomulagið
muni hafa á efnahagslíf lands-
ins í heild. Bent er á, að erfitt
sé fyrir önnur stéttarfélagasam-
bönd að leggja fram sams konar
kröfur og UAW gerði í samning-
um við Chrysler, því hér er nær
eingöngu um að ræða aukningu
ýmissa hlunninda, en ekki bein-
ar kauphækkanir.
Megin atriði samkomulagsins eru
sem hér segir:
Eftirlaun: Hækkunin nemur $4,25
(um 180 kr.) á mánuði fyrir hvert
starfsár. Áður var greitt $2,80
(um 120 kr.). Verkamenn sem
þegar eru komnir á eftirlaun
fá $,1,45 (um 65krónur) á mánuði
fyrir hvert starfsár.
Hætta siemma störfum: Verka
menn, sem hætta störfum sex-
tugir fá sérstök mánaðarlaun, allt
að $400 (rúmlega 16.000 kr.) unz
til koma greiðslur frá því opin-
bera. Kostnaður fyrirtækisins af
þessum sökum er talinn nema 18
sentum (um 8kr.) á hverja vinnu-
stund.
Frítími: þeir 20.000 starfsmenn,
sem starfa við færibönd í verk-
smiðjum Chryslers munu fá tólf
mínutna aukafrí á dag til við-
bótar við 24 mínútur, sem þeir
áður höfðu. Kostnaður af þessum |
sökum er talinn 3,25 sent á vinnu
stund (um 40 kr.).
Vísitöluuppbót: Árléga verðilr
kaupið umreiknað og tillit tekið
til hækkana á vísitölu framfær-
slukostnaðar. Áætlaður kostnað-
ur 9 sent (um 3,70 kr.) á vinnu-
stund.
Árleg karphækkun: Næsta ár
munu launin hækka 2,5% og á
þriðja ári héðan í frá mun kaup-
ið hækka um 2,8%. Samanlagður
kostnaður talinn nema 15 sentum
(um 6,45 kr.) á hverja vinnu-
stund.
Orlof: Þeir sem unnið hafa eitt
ár eða lengur fá vikuorlof til
viðbótar venjulegu orlofi á full
um launum. Tveir nýir frídagar
fengust viðurkenndir og verða
greiddir, föstudagurinn langi,
og afmælisdagur hvers verká-
manns. Kostnaður: 8,5 sent (um
4 kr.) á hverja vinnustund.
Tryggingar: Fyrirtækið mun
greiða öll iðgjöld af líftryggingu
veikinda- og slysatryggingu hvers
starfsmanns. Áður greiddi Chrys-
ler aðeins 50% þessara iðgjalda.
Áætlaður kostnaður á vinnustund
er 3 sent (um 1,25 kr.)
Talið er fullvíst að í kjölfar þess-
ara samninga muni fylgja samn-
ingar við Ford og General Motors,
sem varla munu vilja hafa verk-
smiðjur sinar lokaðar vegna verk-
falla, þegar helzti keppinautur
þeirra setur árgerð 1965 á mark-
aðinn.
Forsvarsmenn annarra bílafram-
leiðenda eru auðvitað ekki sem
ánægðastir með þessa samninga og
finnst Chrysler fyrirtækið hafa rof
ið samstöðu bílaframleiðenda.
Þeir eru einnig þeirrar skoðunar
að kostnáðurinn af hin-
um nýju samningum verði töluvert
meiri en forsvarsmenn Chryslers
vilja vera láta.
Vegna hærri fastakostnaðar hjá
Fordverksmiðjunum telja sérfræð-
ingar, að þar muni kostnaðurinn
[af þessum kjarabótum, ef um semst
verða um 60 sent á hverja vinnu-
stund, en ekki 57 sent eins og for-
svarsmenn Chrysler telja að það
sé hjá sínu fyrirtæki
Það er Walter Reuther, hinn 57
ára gamli formaður sambands
starfsmanna í bílaiðnaðinum, sem
fyrst og fremst á heiðurinn af
þessari samningagerð. í fyrsta
skipti síðan árið 1955 hefur hon-
um nú tekizt að rjúfa samstöðu
bílaframleiðenda.
Bent er á að það hafi verið hyggi
legt kænskubragð hjá honum að
ákveða að verkfallshótun skyldi
fyrst beitt hjá Chrysler, þar sem
það fyrirtæki var veikast fyrir af
hin'um þrem stóru bílaframleið-
endum vestra.
Reuther hafði þau orð um þetta
samkomulag, að það væri sögu-
legasta samningagerð í sögu banda
rískrar verkalýðhreyfingar. Þegar
samninjgar höfðu tekizt hringdi
Reuther til Ujmdon B. Johnson
forseta og tilkynnti honum það.
Eitt af því, sem þessi nýi samn-
ingur hefur í för með sér, er að
nú munu skapast ný störf fyrir
fjölmarga unga mcnn, sem at-
vinnulausir eru. Ástæðan til þess
er að sjálfsögðu sti að samkvæmt
samkomulaginu fara mcnn nú fyrr
á eftirlaun en áður.
Bílafrámleiðendur telja sér nokk
urn akk í þessu, þar eð afkÖst
munu aukast eftir því sem meðál-
aldur starfsmanna lækkar.
Það eitt, að frítíminn frá færi-
böndunum lengist úr 24 mínútum
upp í 36 mínútur, mun hafa það
í för með sér að Chrysler verk-
smiðjurnar verða að ráða að minn-
sta kosti eitt þúsund nýja menn
til starfa.
Og ef sama verður uppi á tén-
ingnum hjá Ford og GM mun
þurfa miklu fleiri nýja menn þvF-
þau fyrirtæki hafa langtum fleirl
starfsmenn en Chrysler.
Samningaviðræðurnar voru að
sjálfsögðu bæði langar og straág-
ar. Þegar tveir dagar voru eítir
til verkfalls' sat Chrysler enn við>
sama keip og í upphafi samninga-
umleitanna, og fjórum stundum
áður en verkfallið skyldi hefj-
ast var mjög tvísýnt um hvört
samningar mundu takast.
Aðalmenn af hálfu Chrysler
verksmiðjanna í þessum samninga-
viðræðum voru John. Leary og
William O'Brien . Viðræðurnar
fóru fram i höfuðstöðvum Chrysíer
verksmiðjanna rétt hjá Detroit.
Þar var mikil þröng á þingi cg
höfðu samninganefndarmenn fá
herbergi til umráða. Stundum ?,á-
ust nefndir á gangi á bílastáeðl
fyrir utan bygginguna, og eín und-
| irnefnd sást halda fund í Chrýsler
jbíl, sem einn af samninganefrídðr-
mönnum UAW áttí Aðalstarfið fór
fram í niu. undirnefndum.
Megin viðurværi nefndarmþifna
meðan. samningaumleitanir stóðti
Framhald á síðu Ifu'1
Walter Reuther formaður sambands verkamanna í bílaiðnaðnum, er til hægri á myndinni. Við hlið
hans stendur Leary, sem var aðalmaðurinn í samningunum af hálfu Chrysler. Myndin er tekin
skömmu eftir að siamningar. tpkust.
AL'þÝÐUBLAÐIÐ - 24. sept. 1964 , T
• j