Alþýðublaðið - 19.11.1964, Síða 6
iilltil
AIXIR tannlæknar hafa við vandamál að stríða í sambanði
Ji'ö sjúklinga sína, en sennilega enginn eins og' Thcodore Kazimi-
roff, tannlæknir í New York. Hann var um dagrinn kallaður til
að setja hettu yfir tönn í fimm hundruð punda kven-rostungi,
er nefnist „Sapiunik", sem mun vera eskímóíska fyrir i(Peppy“,
hvað sem það svo þýðir. Sá er gallinn við Peppy, að hún liefur
lagt það í- vana sinn að núa tönnum sínum vjð barminn á laug-
inn'i, sem hún býr í í fiskasafninu í kew York. Afleiðingln var
að sjálfsögðu sú, að hún braut glerunginn af, svo að hætta var
á, að tennurnar tækju að skemmast. Var því ekki um anhað að
ræða en kalla á tannlækni, er vildi setja hettu yfir tennurnar.
Hún var svæfð og aðgerðin tók um hálftíma. Hér sést aðstoðar-
maður Kazimiroofs, Joseph Geraci, vera að skoða handarverk-
ALLIR vita, að Frakkar búa til heimsins bezta mat — og
sömuleiðis að þeir hafa hingað til haft stórkostlega ánægju af að
taka vel til sín af honum. En nú virðist hafa orðið hér breyting á,
og hún allróttæk. Nýútkomin skýrsla um neyzlu Frakka sýnir, að
þar sem „ánægja borðsins" nam 49% af eyðslu meðalfjölskyldu
árið 1950, er hún nú aðeins 19% af neyzlunni. Ástæðan til þessa
mun vera sú, að menn eyða nú miklu meira fé í hús og íbúðir, bíla,
sjónvarpstæki, happdrættisspil og í veðmál á veðhlaupavöllum, kvik
myndatökutæki og segulbönd.
Svo merkilegt sem það kann að virðast hefur hundraðshlut-
inn einnig lækkað að því er varðar fatnað, að ekki sé talað um
leikhús, bíó og aðrar skemmtanir.— en hins vegar hafa útgjöld
til ferðalaga fjórfaldazt á tíu árum.
EINS og menn muna kostaði kvikmynd
in „Cleopatra" 20th Century Fox eina
litla 2 milljarða króna — upphæð, sem
enginn bjóst raunverulega við að ná inn
aftur —_ og menn muna líka, að i þessu
sambandi varð Liz TaylQr fyrir margs kon-
ar árásum.
En nú er komið annað hljóð í strokkinn
í Hollywood — hljóð, sem vafalaust ger-
ir Liz glaða.
2 milljarðarnir eru þegar komnir í kassann — og myndin geng
ur enn svo vel víða um heim, að félagið er farið að reikna með því,
að brúttótekjur af myndinni verði yfir 6 milljarðar.
Sjálf segir Liz: — Ef þetta skyldi gerast, geta óvinir mínir ergt
sig yfir því, að ég hafi unnið mestan persónulegan sigur í sögu
kvikmyndanna.
Erkibiskupinn af Kantaraborg er glaðvær maður og hefur sínar
eigin skoðanir á hinum svokölluðu tómstundum. Hann sagði þetta
um þær í skálaræðu nýlega:
„Við höfum aldrei haft það eins gott, en við höfum heldur
aldrei haft það eins flókið. Vissulega hefur húsbóndinn nú fri á
laugardögum, en afi þurfti ekki að þvo og bóna bílinn til að réttlæta
þetta laugardagsfrí og fara með fjölskylduna út á yfirfulla vegi til
einhvers staðar( sem maður þarf svo að yfirgefa, áður en maður
hefur raunverulega notið staðarins, til að komast aftur heim í tæka
tíð til að horfa á sjónvarpsatriði, sem var ekki nærri því eins gott
og laugardaginn á undan.“
M
SONGUR
I AUGLYSINGU í blaði einu í
Bayern í Þýzkalandi voru konur
hvattar til að ganga í kirkjukór-
ana — svo að þær gætu „slankað
sig“. Sagði í auglýsingunni, að
konur, sem syngja í kirkjukórum
tækju að horast eftir eina eða
tvær vikúr. „Vöxtur yðar mun
þakka yður“, sagði í auglýsing-
unni. /
Það er svo sem skiljanlegt, að
auglýsingin vakti nokkra reiði. —
Blaðadeild mótmælendakirkjunn-
ar kallaði auglýsinguna „meira en
vafasama”. Taldi deildin augljóst,
að kirkjukórar skyldu aðeins
syngja guðí lof og 'dýrð, en ekki
verka sem nuddstofur.
181 GLÆPASÖ
★ Ökumað.ur stóð fyrir rétti í
París um daginn sakaður um að
hafa keyrt yfir þvergötu á rauðu
ljósi. Hann vildi ekki viðurkenna
og sagði: „Það hef ég örugglega
alls ekki gert. í versta falli hef
ég keyrt móti gulu ljósi. Ég man
greinilega eftir appelsínulitnum“.
Því svaraði - lögreglumaðurinn
þurrlega:
„Það hefur þá verið blóðapp-
elsína."
•k Lif rússneskra diplómata í
öðrum löndum er ekki alltaf sæld
arbrauð. Þannig hefur sendiherra
Sovétríkjanna í Bonn, Andrei
Smirnov, orðið að skipta á Sil-
límusínúnni sinni, stóru og
miklu átta gata tryllitæki rússn
esku, og heldur óhentugum Merc
edes-220. Ástæðan er sú, að vest
iir þýzk bilaviðgerðarverkstæði
reyndust ekki geta útvegað vara
hluti í fina „Sil-bílinn“.
B GEORGE Simenon, hinn frægi
g rithöfundur, hefur skrifað 181
§j glæpasögu, sem nú teljast nán-
■ ast klassískar. Hann hefur lát-
B iff binda þær sérstaklega inn
H og hefur þær í sérstakri hillu í
B vinnustofu sinni. En hillan er
affeins hálf af bókum hans.
jg Hinn hlutinn er fylltur upp af
U símaskrám víffs vegar aff úr
gj heiminum.
jj — Þær eru spennandi lesefni,
U segir hann, en annars nota ég
§§ þær til aff finna í þeim hæfileg
H nöfn á þann aragrúa af persón-
jj um, sem koma fyrir í sögum
g mínum. Þaff var eftir aff ég var
t§ búinn að skrifa hundraff bækur,
B sem ég fór aff verffa uppi-
a skroppa meff nöfn — og þá upp-
g götvaffi ég þessa ótæmandi
1 nafnauppsprettu
SORGE ORÐINN
ÞJÓÐHETJA
FORSÆTISNEFND Æðsta ráðs
Sovétríkjanna veitti í byrjun þessa
' mánaðar titilinn „Hetja Sovétríkj-
I anna” rússneskum njósnara, sem
! tekinn var af lífi í Japan í síðustu
heimsstyrjöld. Maðurinn er hinn
frægi njósnari Richard Sorge.
Segir Tass fréttastofan, að Sorge
★ 1 Bandaríkjunum er tekið svo
til orða, að stúlka sé „going ste-
ady“, þegar hún á fastan vin, sem
hún fer alltaf út með. Svo að
þessar fráteknu stúlkur geti feng
ið að vera í friði fyrir pilsaveið
urum, hefur sá siður verið upp
tekinn í Vestur - Virginiu, að
stúlkur, sem eiga einn vissan vin
ganga með eldrauðar rendur á báð
um ermum.'Sé einhver stúlka ekki
alveg „steady“ hefur hún slíkar
rendur aðeins á annari erminni.
hafi verið lýst sem frábærum, sqv-
ézkum njósnara .. föðurlandsvini,
óttalausum kommúnista og hug-
rökkum baráttumanni". Bætir
fréttastofan við, að Sorge, sem
gerði svo mikið fyrir land sitt í
byrjun heimsstyrjaldarinnar, hafi
ekki verið þekktur meðal rúss-
neskrar alþýðu fyrr en nýlega”, í
september sl. birti Pravda lofs-
grein um Sorge, sem gaf Stalín
upplýsingar um yfirvofandi innrás
Þjóðverja árið 1941.
6 19. nóv. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ