Alþýðublaðið - 13.12.1964, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 13.12.1964, Blaðsíða 5
ÞÚSUNDIR listaverka, sem stol Ið var í Evrópu í síðari heims- styrjöldinni, er enn leitað um all- an heim, segir New York Times. Nálega 20 árum eftir lok styrjald arrnnar starfa sérstakar stofnanir ríkisstjórna Frakklands, Ítalíu, Þýzkalands, Austurríkis, Póllands og Sovétríkjanna að því í kyrr- þey að hafa upp á málverkum, höggmyndum, veggtjöldum, sjald gæfum bókum og fornri mynt, sém eru hundruð milljón dollara virði. Allt frá Grikklandi til Kaliforn íu gæta listfræðingar, safnvei-ð- ir, einka-listfasöfn og löggæzlu- stofnanir, þar á meðal Interpol, að því, hvort, verk, sem stolið hef ur vorið úir söfnum, kirkjum, bókasöfnum, málverkasöfnum og einkasöfnum koma aftur fram í dagsljósið. Á meðal verka þeirra er horf- ið hafa, eru málverk eftir Titan, Raphael, Caravaggio, Tintoretta, Diirer, Fragonard, Hals, Cézanne, Murillo, Reynolds, Van Gogh, Memling, Klee og Veronese. Mestu af verkum þessum stálu nazrstar, sem héldu uppl ein- hverri kerfisbundnustu ránsher- ferð, sem um getur í sögunni. En mörg verk tóku líka rússneskir og bandarískir hermenn, þýzkir verksmiðjuverkamenn, pólskir bændur, ítalskir sveitamenn og aðrir. Ekki alls fyrir löngu fann skemmtiférðamaður einn málverk eftir Monet á bóndabæ í Þýzka- landi. Bóndinn hafði fengíð mál- verkið, sem er mörg þúsund doll ara virði, fyrir pund af smjöri ár ið 1946. í Liibeck í Þýzkalandi játaði maður nokkur, sem handtekinn var fyrir nokkrum mánuðum, að hafa stolið 3000 málverkum úr sprengjuheldum geymslum i Mack mmgfm mmm i,Mynd af ungurn manni“ eftir Raphael, sem stollS var úr Czartorysky- tðfninu í Krakow í Póllandi, einhverju mesta einkasafni í Evrópu, Dwight D. Eisenhower, yfirhershöfðingi bandamanna, skoðar listaverk, sem nazislar höfðu stolið' og fundust í saltnámu í Þýzkalandi. Með honum á myndinni eru hershöfðingjarnir Omar N. Bradlay og' George S. Patton. lenburg og Pommern í lok stríðs ins. Mest af málverkunum hafði þegar fyrir löngu verið selt aðil- um utan landamæra Þýzkalands. Tvö málverk eftir 15. aldar meistarann Antonio Pollaiuolo, sem stolið hafði vcrið úr Uffizi- safninu í Flórens, fundust í fyrra hjá fólki, sem eftir stríð hafði flutzt frá Miinchen til Pasadene í Kaliforníu. í öllum þeim löndum, sem get- ið er um hér að ofan, rannsaka sérstofhanir eða söfn þessa hluti, til dæmis í Bandaríkjunum, þar sem fjármagnið er mest og því mestur möguleiki á að selja vel, fýlgjást bæði opinberir aðilar og einkasöfn mjög vel með þeim listaverkum, sem boðin cru til sölu. Á árunum 1945 til 1962 náð ust t. d. 3.978 stolnir listmunir í Bandaríkjunum fviúr tilstilli utan ríkisráðuneytisins og annarra stofnana, og var skilað til 14 ríkja. Meðal muna, sem þannig var skilað, voru málverk eftir Rubens, Cranach og Monet, sjaldgæf hand rit og koparstungan ..Riddarinn, draugurinn og djöfullinn" eftir Dur er, sem Hitler hafði tekið í einka safn sitt úr þýzka þjóðminjasafn inu í Núrnberg. Koparstungunni var skilað aftur til Núrnberg, Liðs foringi 1 hernum, sem ekki vissi hver hinn löglegi eigandi var, hafði fengið hana; í hendur i Þýzkalandi og þar eð hann vissi ekki, hvað gera skyldi við hana, bafði hann sent hana til Washing- ton með fyrirspurn um, hvað gera skyldi við hana. FRAKKLAND. Fréttamanni blaðsins gekk illa að fá upplýsingar um það hjá við komandi aðilum í Frakklandi hversu gangi að ná aftur listmun- um þeim, sem nazistar stálu í Fralcklandi á str'íðsárunum, en rán in liófust þar nokkrum vikur eftir að Frakkland féll og stóðu þar til innrásin í Normandie hófst. Sú stofnun Þjóðverja, sem stóð fyrir ránunum, gekk undir nafn- inu E. R. R., eftir þrem fyrstu stöfunum í fullu nafni hennar — der Einsatzstab Reichsleiter Ros- enberg.fúr die Besetzten Gebiete — eðá.. starfsnefnd Rosenbergs ríkisleiðtoga í hernumdu löndun- um. Eins og nafnið bendir til réði Alfred Rosenberg ránum þessurn en hafði í vinnu hjá sér fjölda listfræðinga, viðgerðarmanna og matsmanna. Það, sem E.R.R. stal í Frakklandi þar til í júlí 1944, er nefndin flúði, var sem hér seg- ir: 138 hlaðnir járnbrautarvagnar, eða 4.174 kassar með 21.903 listá verkum. Mestu af verkunum, sem stolið'- var handa Göring, Hitler og Ribb entrop, hefur þegar verið skilao til hinna upprunalegu eigenda i Frakklandi. En þjófnaðirnir voru svo margir, að mörg málverk, þar á meðal sjálfsmynd Cézannes, hafa ekki fundizt. Almennt er tal ið í Frakklandi, að litlir mögu- leikar séu á að fá muni aftur úr þessu. Framli. á bls. T Nálega tuttugu árum eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar er enn þá leÉtaö itm allan heim að þúsundum listaverka., sem stolið var í ringulreið styrjaldar- innar. Mestum hluta afverkum þess- um stálu nazistar, sem starfræktu kerf- sshundnar ránsferðir í þessu skyni . . „ ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 13. des. 1964 §

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.