Alþýðublaðið - 13.12.1964, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 13.12.1964, Blaðsíða 13
A5 gefa.. Framh. af bls. 3. Sumir eru börn, þó að þeir séu orðnir fullorðnir, og vantar ein- hvern gamlan og traustan pabba til þess að leita ráð hjá. Suma vant- ar í einstæðingsskap shjum bróð- ur til þess að tala við — mann, sem þeir þekkja svo vel, að þeir þurfa ekki að hafa neina afsökun fyrir því að koma og heimsækja hann, — mann, sem er sama þótt þeir séu leiðinlegir og í slæmu skapi, þegar þeir koma í heim- sókn. Þannig er nóg að gera fyrir þá, | sem hafa svolítinn tíma, sem þeir vita ekki hvað þeir eiga að gera við,.og svolítið af peningum, sem þeir vita ekki, hvernig þeir eiga að nota. ' Sennilega er almennasta orsök liinna álgengustu mannlífsmeina það, að menn hugsa of mikið um sjáifa . sig. Og auðveldasta lækn- ingin einnig hitt .að fá áhuga á hág annarra manna. Orðið bróðurþel er fagurt orð, cn mikið misnotað. Menn taka oft það að vilja eiga sér bróður fyrir það að vera bróðir. Til skýringar þessu er stutt saga, sönn saga, sem gerðist í hinni stóru heimsborg, Lundúnum. Og hún er betri fyrir það, að þar kem- ur bíll við sögu, og nú vilja allir eignast bíl. Bíll er eiginlega orð- inn partur af persónuleika nútíma mannsins. Bíllinn er nú orðinn það sama og bindið og flibbaskyrt- an var einu sinni, skilyrði þess, að maður geti sýnt það svart á hvítu, að hann sé maður með mönnum. En þetta ér ságan: Maður nokkur, sem söguna seg ir, átti ríkan bróður og þessi ríki bróðir gaf honum bíl í afmælis- gjöf. Ég held það hafi verið á afmælisdaginn eð!a skömmu seinna, að hann rakst á piltung nokkurn, sem við hér á landi, mundum kalla á fermingaraldri vera að skoða bílinn. Maðurinn var nógu hreykinn af bílnum og nógu lítillátur til þess að ávai'pa drenginn 'og spyrja hann, hvort honum þæ.tti þetta ekki fallegur bíll. — Jú, svaraði drepgurinn. —Og bróðír minn gaf mér hann í aímælisgjöf, sagði maðurinn. Yið þessi tíðindi vaknaði áhugi drengsins fyx’ir alvöru, og hann sagði. — Ep hvað það væri gaman. . . En svo Sa£ði hann ekki neitt en horfði stöðugt á bílinn, og maðurinn bjóst við að liann hefði ætlað að segja að það væri gaman að eiga slíkan bróður, og ætlaði að samsinna því afdráttarlaust, því að liann hafði reynsluna. En drengurinn hafði ekki þetta í huga, Hann endurtók setninguna og gagð.i: En hváð það væri gaman að vera slíkur bróðir. Drengurinn átti nefnilega lam aðan bróður, gem hann hugsaði til Þessi saga er merkileg af því að hún upplýsir glögglega skilin á miili tveggja viðhoi-fa í lífinu Annað er fólgið í því að ásælast hitt í því að gefa. Það er hér, sem skilur á milli feigs og ófeigs. Hin fyrrnefnda gerir allsnægt- ^IIIIIIIIIIIIIIIHIIII .................................................................................% FYRIR JÓLIN VASALJÓS VASALJÓS ALLAR STÆRÐIR WINTHER ÞRIHJÓL 3 GERÐIR Sérstaklega sterkbyggð ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI BATTERI ALLAR STÆRÐIR FYRIR Transistor-útvarpstæki. FYRIR Transistor-segulbandstæki. FYRIR Myndavéla-f 1 ask, vasaljós, alls konar leikföng o. m. fl. Ávallt fyrirliggjandi. Þá eru japönsku batteríin Reiðhj ólaverzlunin ÖRNINN Spítalastíg 8. — Sími 14661. Stmrise mt ALLAR STÆRÐIR OG GERÐIR VASALJÓS ALLAR STÆRÐIR \ .................................Illllllllllllll...•IIHIIIIIIIIIIIII.II"M,»,m........ ...........................................................................iiiiiiiiiiii«ii"""*" miiiiiiiinuiiiiiimiiiiiiiiini,i|",,,,,,,,,n,,‘'** ir og það, sem þar er fram yfir að böli, hin síðarnefnda að mik- illi gæfu. Konunglundaðir menn bei'a hai'ma í hljóði, en gleðjast í hópi góðra vina( af þvi að þeir vilja ekki lýta heiminn með hryggð sinni, en kjóSa hins vegar að hann verði fegurri af gleði þeii’ra. Það er stórmannlegt. Rauði kross íslands hafði fyrir nokkru í undirbúningi að koma upp sjóði, sem nota á til að veita hjálp, þegar til hans er leitað. Og það kemur oft fyrir. Venjulega er hjálpar vant þeg ar í stað. Það er ekki gott að þurfa að bíða. Og það er nú einu sinni staðreynd, að í dag eru tveir þríðjungar mannkynsins fjarri því að hafa nóg-til hnífs og skeiðai'. Rauði krossinn þarf að eiga þennan sjóð til þess að geta svar að hjálparbeiðnum þegar í stað, því að það er of seint að gefa barni mat á morgun, ef það er hungrað í dag. í dag er það sem sagt ekki við þótt afar okkar og ömmur, lang- afar og langömmur þyrftu stund um að horfast í augu við skortinn. En hvernig væri þá að heiðra minningu þeirra og hreystileg af- rek í harðri baráttu við erfið skil yrði um leið og við gefum öðrum hlutdeild í gleði okkar, með því að styðja Rauða krossinn myndar- lega við að koma upp þessum sjóði. Til þess gefast alltaf færi. Það þarf ekki endilega að efna til almennrar söfnunar. Það er alltaf hálfleiðinlegt að þurfa að skipuleggja greiðasemi, þótt hjá því verði víst ekki komizt enn. , Og nú fyrir jólin þurfa íslenzk ir heimilisfeður naumast að kvíða harðindum á sama hátt og for- feður þeirra, því að nýju húsin eru hlý og nýju mublurnar mjúk ar, auk þess sem náttúran ei’ blíð og gjöful. En þeir eiga að kvíða því, ef þeim skyldi vei’ða það á að sleppa tækifærum til þess að leyfa öðrum að eiga hlutdeild í gleði sinni. ☆ ALÞÝDUBLAÐIB — 13. des. 1964 13

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.