BFÖ-blaðið - 01.07.1986, Qupperneq 10

BFÖ-blaðið - 01.07.1986, Qupperneq 10
wi » ■ * í* a jrm -m Jákvædur líismáti Erindi frá ráðstefnu Ábyrgðar hf. í vor Sr. Birgir Ásgeirsson: Kristin trú og heil- brigðar lífsvenjur I. Skynsemi - trú - tilfinningar Margir ætla að trú hafi lítið með almennt heilbrigði að gera, ég tala nú ekki um, ef talað er um trúarviðhorf og heilbrigða skynsemi. í því sambandi má nefna sem dæmi afstöðu manna til sköpunarsögunnar, annars vegar hinnar Biblíulegu og hins vegar hinnar líf- fræðilegu. Líffræðingurinn skoðar vélverk náttúrunnar og dregur sínar ályktanir, og guðfræðingurinn skoðar ljóðverk Biblíunnar og dregur sínar ályktanir. Báðir fjalla þeir um sköpun Guðs, en út frá gjörólíkum forsendum. Annar skoðar meistaraverkið út frá áþreifan- legum líffræðilegum staðreyndum, hinn út frá því hvernig höfundurinn eða listamaður- inn tjáir sig frammi fyrir hinum líffræðilegu staðreyndum. í öðru tilvikinu er því verið að fást við hluti, en í hinu við tilflnningar. Hér má þó ljóst vera að dregin er mjög afgerandi lína milli þessara tveggja heima, hins líkam- lega og hins andlega. Biblían er ákaflega furðuleg bók. Hún er ljóðræn í þeim skilningi að margir kaflar hennar eru fyrst og fremst túlkun á mannleg- um kenndum gagnvart því sem maðurinn sér og skynjar og upplifir í lífi sínu. En Biblían er einnig ákaflega raunsæ á mannlegar hliðar, í víðri merkingu þess orðs. Hún gerir jafnt ráð fyrir hinu líkamlega sem hinu andlega. í seinni sköpunarsögu 1. Mósebókar er manninum lýst t.a.m. á þrennan hátt. Hann er gerður af leiri jarðar, sem vísar þá til hins jarðneska í verund hans, hann er blásinn anda Guðs, sem höfðar þá til hugsunar hans og vilja - og þar sem ekki þótti gott að hafa 10 hann einan, fékk karlinn konuna að félaga (maður eru þau eftir sem áður), sem minnir á að maðurinn er félagsvera. I öllu þessu taka nú að hrannast upp atriði í frásögninni, sem vísa til tilfinninga. Eru það líkamlegar til- finningar eins og hungur, kuldi og sársauki, andlegar tilfinningar eins og forvitni, ágirnd, ótti og félagslegar tilfinningar eins og blygðun, ásökun, hatur. Orðin sem valin voru eru öll neikvæð og tákn um ófullkomleika mannsins, en andhverfa þeirra eru þá jákvæð og það sem maðurinn keppir eftir. Þessi tog- streita tilfinninga er ekki bundin einhverri einni hlið mannsins, heldur er hana að finna í öllu fari hans, andlegu sem líkamlegu. Rask- ist jafnvægið í þessari togstreitu (baráttu), verður maðurinn ekki í jafnvægi. Heilbrigði hans felst þá í því að hann geti háð hina eðli- legu baráttu á öllum sviðum lífs síns og náð árangri. Það hefur í för með sér farsæld, vel- líðan, hamingju. Brýnt er þá einnig að líta á manninn í heild sinni, þegar rætt er um heil- brigði hans eða veikindi. II. Heilbrigði í trúnni Á lífsbraut sinni er maðurinn sífellt að tak- ast á við tilfmningar sínar, líkamlegar og andlegar, og smátt og smátt öðlast hann reyn- slu, sem er honum til leiðbeiningar, hjálpar og stuðnings. Slíka alhliða reynslu er manninum nauð- synlegt að öðlast til að hann geti lifað af þau tilfinningalegu átök, sem lífið færir honum. Slíka reynslu getur maðurinn enda varla tileinkað sér sjálfur á einni mannsævi. Mannkynið hefur hins vegar aflað sér ærið mikillar reynslu í gegnum tíðina og reynir að skila henni til næstu kynslóðar. Samhljómur við þessa lífsreynslu eða undirtektir við meginreglurnar er því það sem kalla má heilbrigðar lífsvenjur og heil- brigð lífsafstaða. Séra Birgir Ásgeirsson er sóknarprestur að Mosfelli.

x

BFÖ-blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.