BFÖ-blaðið - 01.07.1986, Side 11

BFÖ-blaðið - 01.07.1986, Side 11
Páll postuli talar t.d. um heilbrigði í trúnni (Tít. 1:13 og 2:2). Sé það hugtak skoðað í sam- hengi við annað það sem Páll skrifar um, má skilja „heilbrigði í trú“, sem andstöðu við hið ýkta og afskræmda eða afdráttarlausa. Það er t.d. varað við óhófi í öllum nautnum, ofmati á eigið ágæti og hroka í samskiptum við aðra, svo einhver dæmi séu tekin. Páll var líka mjög gagnrýninn á þá stefnu, sem gyðingar höfðu tekið gagnvart „lífsreynslunni“, trúarreynslu og samskiptareynslu. Þeir höfðu sterka til- hneigingu til að setja allar meginreglur í ákveðnari skorður og búa til nákvæmar regl- ur um framkvæmd meginboðanna. Um helgi hvíldardagsins myndaðist t.a.m. heilmikil reglugerð um það hvað mætti og hvað mætti ekki. Matföng voru flokkuð í hreint og óhreint, jafnvel fólk var ýmist hreint eða óhreint og fór það þá eftir líkamlegu ástandi eingöngu, sbr. holdsveikir. Kristur varð auðvitað sá, sem fyrstur benti á þessa skekkju í lífsafstöðunni með einhverj- um verulegum árangri. Hann talaði um að hvíldardagurinn hefði orðið til mannsins vegna en ekki öfugt (sbr. Mk. 2:17) og hann sagði að ekki saurgaði það manninn, sem inn í munninn færi, heldur það sem út af honum kæmi (sbr. Mt. 15:11). Þannig gafhannjarð- neskum (mannlegum) fyrirmælum andlegt innihald. Heilbrigð trú metur afstöðu sína til Guðs og afstöðu sína til lífsins í sama vetfangi. Með því móti gerir hún ráð fyrir því að maður- inn sé ábyrgur í lífi sínu. Abyrgð mannsins felst í því að hann hefur hæfileika til þess að geta metið sjálfan sig og aðstæður sínar í ljósi þess skilnings eða í ljósi þeirra forsenda, sem hann hefur í kring um sig. Maðurinn þarf því að vega og meta skilning sinn og afstöðu til Guðs, sköpunar hans og til- veru í mannlegu samfélagi. Ut frá því mótast hugarfar hans gagnvart sköpuninni, gjöfum Guðs og hvernig hann vill nýta sér þær og öðr- um til blessunar eða bölvunar. Hér er því ekki spurning um hreint eða óhreint, heldur afstöðu. Með hvaða hugarfari umgengst ég sköpun Guðs. Þess vegna segir Páll postuli t. d.: „Allir hlutir eru hreinum hreinir, en flekkuðum og vantrúuðum er ekkert hreint“. (Tít. 1:15). Á þessu stigi væri líklega gott að skoða lítið eitt umgengni okkar við ýmis konar efni nátt- úrunnar, sem við köllum almennt vímuefni. Við skulum líta á þessa hlið út frá forvarnar- starfi. Meginmarkmið forvarnarstarfs er að hjálpa einstaklingum til að taka ábyrga afstöðu og ákvörðun og breyta samkvæmt því. Með þessu er verið að hjálpa sérhverjum til þess að þroska með sér styrk og eiginleika til að taka persónulega og félagslega afstöðu, sem brýtur ekki í bága við það grundvallar- atriði, að ég þarf ætíð að vera ábyrgur gerða minna og vera fær um að auðsýna náunga mínum fullt tillit. Þetta gildir ekki aðeins um þann sem ekki neytir vímuefna, heldur ekki síður þá sem neyta í hófi eða óhófi. Hér þarf því hver og einn ekki aðeins að vera ábyrgur gagnvart sjálfum sér, heldur einnig gagnvart sambræðrum sínum og hin- um algilda reglugjafa, Guði. Hér verður hver og einn að taka tillit til reynslu sjálfrar sín og ekki síður reynslu kyn- slóðanna. Maðurinn verður að þekkja tak- mörk sín og vanmátt í þessu sem öðru. Það 11

x

BFÖ-blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.