BFÖ-blaðið - 01.11.1989, Síða 3
Helgi Seljan:
Einfalt ráð gegn
ölvunarakstri
Á samkomu SEM hópsins fyrir skömmu,
sem sjónvarpað var, þótti mér eitt viðtal öðr-
um athyglisverðara.
Ungur maður vitnaði um ölvunarakstur
sinn sem hafði hræðilegar aíleiðingar — vitn-
aði með opinskárri hætti og einlægari hætti
en venjulegt er.
Beint fyrir framan sjónvarpsvélarnar,
gegnt einu fórnarlambi ölvunaraksturs síns,
sem valdið hafði ómældri þjáningu greindi
hann á hreinskilinn hátt frá köldu kæruleysi
sínu, vítaverðu gáleysisóráði sínu aftur og
aftur, þar til ósköpin dundu yfir.
Það var ekki verið að finna afsökun, enn síð-
ur réttlætingu, en það var óendanleg eftirsjá í
orðunum, raddblænum og svipnum. Mér varð
hugsað til þess á síðkvöldsstund, hve margir
myndu nú einmitt þá vera að iðka þennan lífs-
háska í umferðinni.
Unglingur eins og hann var, fullur undir
stýri, sýnandi félögum og öðrum hversu kald-
ur karl hann væri, virðulegi borgarinn af
bjórkránni eða úr boðinu, sem þykist fær um
akstur heim, þrátt fyrir drjúga drykkju og
svona dæmi utan enda flugu um hug mér þar
sem ég sat þarna undir ádrepu unga
mannsins. Því ádrepa var það, brennandi
ákall til allra um að gera ekki eins, taka ekki
áhættuna ógurlegu, valda ekki sjálfum sér og
enn frekar öðrum ómælanlegu tjóni, örkuml-
um, jafnvel dauða. En auðvitað vissi ég innst
inni að ekki mundi þetta ákall ná til þeirra,
sem þyrftu nema að litlu leyti.
Hinir hrokafullu sjálfbirgingar unga
mannsins halda áfram að gerast ótæpilega
með ýmsum hræðilegum tilbrigðum af því
heyrandi heyra menn ekki, og vitandi betur
verður skeytingarleysið öllu yfirsterkara.
Jafnvel í tilkynningum yfirvalda, m.a. lög-
reglu er sagt fullum fetum að ölvunarakstur
hafi ekki aukist. Svo segja virtustu lögreglu-
menn manni það alls óhikað að hér sé um
markleysu að ræða, því sparnaðarins vegna sé
eftirlitið alltof lítið, enn minna í æ vaxandi
umferð.
Manni býður í grun að grunnástæður yfir-
lýsinga um að allt sé í stakasta lagi og jafnvel
aldrei betra en nú, að þær ástæður valdi að um
samvizkufróun ýmissa geti verið að ræða,
þeirra sem ábyrgð bera á bjórflæðinu og fegr-
uð mynd henti fjarska vel til að slá ryki í augu
almennings. Það er sárgrætilegt að á sama
tíma og stjórnvöld þykjast taka undir með
Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni um minnk-
un áfengisneyslu til aldamóta skuli allar flóð-
gáttir opnaðar til aukningar. Þvílík hræsni og
skal þá nokkurn undra þó yfirvöld leggi fyrir
lögregluna að segja nú fallega frá og eins hitt
að draga svo úr eftirliti að ölvunarakstur á
skýrslum skráður verði jafnvel minni. Hve-
Helgi Seljan, fyrrverandi
alþingismaður, er fræðslufulltrúi
hjá Öryrkjabandalaginu.
BFÖ-blaðið • 3/1989
Útgefandi: Bindindisfélag ökumanna,
Lágmúla 5, 108 Reykjavík, sími 83533.
Ritnefnd: Sigurður Rúnar Jónmundsson (ritstj. og áb.m.),
Halldór Árnason og Jónas Ragnarsson.
Myndir: Heimir Óskarsson o.fl.
Prentun: GuðjónÓ hf.
Upplag: 3.600 eintök ]V«»VemI»Cr 1989
__________________________________________ 3