BFÖ-blaðið - 01.12.1990, Síða 5
Varða með krossmarki við Reykjanesbraut:
Á að minna ökumenn á ábyrgð þeirra
á varasömum vegaköflum
Áhugahópur um bætta umferðarmenningu
stóð í haust fyrir uppsetningu á vörðu með
krossmarki við Reykjanesbraut (Keflavíkur-
veginn), nánar tiltekið við Kúagerði. Vörð-
unni er ætlað að minna vegfarendur á að veg-
urinn getur verið varasamur á þessum kafla,
sérstaklega að vetrarlagi þegar ísing og hálka
getur myndast fyrirvaralítið, enda hafa orðið
alvarleg umferðarslys og banaslys á þessum
kafla.
Reykjanesbrautin er mikill hraðaksturs-
vegur og umferðarslys sem þar verða eru jafn-
an alvarleg, stundum banaslys, menn slasast
alvarlega og eignatjón verður mikið. Talið er
að um 45 banaslys hafi orðið á Reykjanes-
brautinni á þeim tveimur áratugum sem hún
hefur verið í notkun.
Samkvæmt upplýsingum Vegagerðar ríkis-
ins á nýlegri ráðstefnu um umferðarmál er
kaflinn við Kúagerði einn sá varasamasti og
eru þeir þó margir slæmir. Þarna liggur veg-
urinn einna næst sjó og í beygju. Vegna rak-
ans myndast ísing þar iðulega jafnvel þótt
hún sé ekki á öðrum vegarköflum.
Vörðuna sem sett var upp við Kúagerði hlóð
Þorsteinn Einarsson og við athöfn flutti séra
Cecil Haraldsson blessunarorð. Þar voru við-
staddir nokkrir félagar sem starfað hafa í
Áhugahópi um bætta umferðarmenningu og
þar var einnig móðir pilts sem lést í umferð-
arslysi á þessum kafla. Við athöfnina var
einnig flutt bæn hennar.
Áhugahópurinn hefur síðustu misserin lát-
ið nokkuð að sér kveða varðandi umferðar-
öryggismál, meðal annars staðið fyrir auglýs-
ingaherferð, umferðarviku á Aðalstöðinni og
félagar hafa talað um umferðarmál á fundum
hjá ýmsum félagasamtökum.
Að sögn Ragnheiðar Davíðsdóttur er ráð-
gert að koma upp fleiri slíkum vörðum á þjóð-
vegum landsins. Vonast áhugahópurinn til að
uppsetning þessarar fyrstu vörðu verði öðrum 5