BFÖ-blaðið - 01.12.1990, Blaðsíða 13

BFÖ-blaðið - 01.12.1990, Blaðsíða 13
merki um vanþekkingu, sem að vissu leyti er skiljanleg. Ekki hafa farið fram rannsóknir hér á landi sem sýna hvað megi og hvað ekki. Sænskir vísindamenn hafa gert rannsóknir á þessu sviði enda hafa Svíar nýlega fært nið- ur prómillmörkin úr 0,5 í 0,2 prómill. Þeir telja sig geta fært sönnur á að þau mörk megi ekki vera hærri þar sem ökuhæfni er orðin skert við meira áfengismagn. Sænska veg- og umferðarstofnunin (Vág- och trafikinstitutet) í Linköping lét gera könnun á magni áfengis í blóði ökumanna eftir neyslu ýmissa drykkja. Um var að ræða 10 konur og 12 karlmenn á aldrinum 21 árs til 61 árs. Meðalaldur var 36 ár. Þyngd þeirra var 50-105 kg. Meðalþyngd var 70 kg. Athuguð voru áhrif af pilsner (Láttöl) 33 cl, sterkum pilsner 33 cl (klass II), áfengum bjór 33 cl og léttvíni 18,75 cl með styrkleika 11,5. Þá voru nokkrar gerðir af sælgæti með áfengri fyllingu prófaðar. Drykkjanna var neytt með mat og mæl- ingar fóru yfirleitt fram 5 mínútum eftir mál- tíð. Léttur pilsner mældist í engu tilfellanna og sterkari pilsner í einu tilfella hjá léttustu kon- unni. Afengur bjór mældist hjá öllum nema einni konunni. Mest mældist 0,20 prómill af einni 33 cl flösku af áfengum bjór. Hjá flestum kvennanna tók það 30-60 mínútur fyrir lík- amann að hreinsa blóðið af vínanda. Ekkert vínandamagn mældist hjá neinum karlmanni af neyslu pilsners og hjá fjórum mældist vínandamagn eftir 33 cl af sterkum bjór. í öllum tilvikum var magnið undir 0,10 prómill. 13

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.