BFÖ-blaðið - 01.07.1993, Blaðsíða 12
GALTALÆKJARSKOGI
um verslunarmannahelgina
Allan tímann verður gaman enda er umhverfið
sérlega fallegt, nóg við að vera, allur aðbúnaður og
aðstaða til fyrirmyndar. Og allt án áfengis.
Rútuferðir frá: REYKjAVÍK fBSÍ), KEFLAVÍK (SBK), CRINDAVÍK (SBK), SANDGERÐI (SBK), GARÐAR (SBK), VOGAR (SBK).
HVAÐ VERÐUR UM AÐ VERA?
Á daginn verður hjólreiðakeppni BFÖ og ökuleikni
BFÖ, Lukkuland, leiktækjaland, minigolf að ekki sé
minnst á barnaball og söngvarakeppni fyrir börnin.
Spaugstofan skemmtir og Mikki refur og Lilli klifurmús
verða á sveimi. Magnús Scheving þolfimimeistarinn
glaðlegi stjórnar hádegisþolfimi.Talandi risa kanínur
munu rölta um skóginn.
Séra Pálmi Matthíasson messar í fögrum
lundi og hefur hresst fólk sér til aðstoðar.
Á kvöldvökum leikur Spaugstofan
við hvern sinn fingur, HörðurTorfa trúbador
syngur við raust og Raddbandið gefur tóninn. Magnús
Scheving þolfimimeistari sýnir á sér alla enda og kanta.
Á kvöldin sveiflast mannskapurinn í takt við
skagfirska sveiflu Geirmundar, hljómsveitirnar
Pandemonium og Örkin hans Nóa sjá um ýkt fjör fyrir
unglingana.
Á laugardagskvöldinu mun stórfengleg flugeldasýning
lýsa upp himininn og rómantískur varðeldur stafa
hlýlegri birtu um Bríkina.