Skólablaðið - 15.05.1910, Side 2

Skólablaðið - 15.05.1910, Side 2
66 SKÓLABLAÐIÐ 'menn trúi hverju sem þeir sjá á prenti. Á þvi mun engan furða. Eigi á eg heidur við það, að þér gjörið það með ræðum og skrafi um alþýðumentun og ættjarðarást; slíkt geíur líka verið gott með, en það getur líka verið þreytandi leiðinlegt. Áheyrendum er farið að verða tamt að spyrja sjálfa sig, hvað búi nú undir fimbulfambinu og fagurmæl- unurh og þykir einatt glytta í síngirnina undir, þó að vand- lega sé ofan á breitt. Með þeim hætti vinst það aldrei. En vér höfum ’stundum í vetur talað um skoðankenslu, og talið hana bestu aðferðina til að fræða og leiðrétta. Ég hygg að hún verði í þessu efni eina aðferðin, sem dugir. Þér verðið að sýna það, láta menn þreifa á því, að góð kensla getur gert börnin námfúsari, vitrari og betri, þar sem léleg kensla kemur að litlum eða engum notum. Ég hef tröllatrú áalþýðu landsins bæði að viti og mannkostum; þykist hafa það af reynslu; og eg er sannfærður um, að hún reynist ekki svo tornæm ef þessari aðferð er við hana beitt og vel að henni farið. Hún lærir þá að meta barnakenslu að verðleikum. Og það er henni líka fyrir bestu. Jeg veit, að þessi krafa til yðar er þung; og sárast finna þeir til, hversu erfitt er að fullnægja henni, sem mest- an hafa áhugann og vandlátastir eru við sjálfa sig. Þeir kenna mest til af vonbrygðunum og erfiðleikunum. sem óaðgreinanlegir eru frá þessu starfi. Þeir þurfa á þolinmæði og trú að halda, barnakennararnir eigi síður en aðrir menn; jafnvel flestum fremur; þolinmæði til að bíða eftir ávöxtun- um, trú á því, að upp af góðu sæði sprettur fyr eða síðar eitthvað gott; trú, sem kemur fram í því að vinna af alúð og öllum mætti, og fela svo kvíðalaust árangurinn honum sem ávöxtinn gefur. Það er, ef svo mætti segja, rótarávextir, sem kennararnir eru að rækta; fagilr gróður getur að vísu komið fljótt og berlega í Ijós, en það arðmesta er þó einmitt falið undir yfirborðinu lengi vel; kemur eigi íljósfyren við uppskeruna,í æfistarfi þroskaáranna. Og þar á hún einkum heima setn- ingin, sem þið kannist við, að kennarinn áorki meira með því, hvað hann er, heldur en nieð því, hvað hann veít.

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.