Skólablaðið - 15.05.1910, Side 3

Skólablaðið - 15.05.1910, Side 3
SKÓLABLAÐIÐ 67 kostið því kapps um að vera sem best, þá vinst yður mest, mest í því, sem mestu varðar og drjúast dregur hverjum manni. Eg tala við yður, eins og þið séuð sjálfsögð að verða barnakennararar, sem þér vitanlega eigi eruð. Ég býst alls eigi við, að það verði æfistarf yðar allra. Hins vegar þykir mér líklegt, að þér gefið yður flest öll við því iengri tíma eða skemri. Og eg treysti því um yður öll, eftir þeim kynnum sem eg hef af yður, að þér rækið það með fullri alúð. En í hverja stöðu, sem þér annars komist, má við því búast, að fleiri börn eða færri verði jafnan á leið yðar og þá langar mig að biðja yður einnar bónar að skiln- aði; liún er sú, að þér látið þau börn heldur njóta kennara- skólans en hitt, ef þér liafið lært hér nokkuð, sem einhvers er vert, ef þér berið eftir hérveruna einhvern yl til skólans, þá látið það koma fram á vesalings börnunum, sem verða yður samferða á lífsieiðinni lengri spöl eða skemri. Reynið að verða þeim kennarar í einhverju góðu. — Þér farið nú héðan, þegar sumarið kemur, og dreifist heim um sveitirnar. Jeg bið kærlega að heilsa þeim öllum. Jeg vildi óska að þær fengju nú allar sól og sumar með yður. Og eg vildi óska að sól og sumar fylgdi líka með yður í öðrum skilningi. Framtíðarspor yðar eru hulin. Enginn veit hvert eða hvernig þau kunna að liggja. Jeg ætla einskis um það að óska. Þar veit eg svo lítt hvers biðja ber. En einsóskaéghjartanlega, og vil kveðja yður með þeirri bæn til guðs fyrir yður öllum, að eitthvað gott megi gróa í hverju yðar spori, hvar sem þau eiga að liggja. Þá verða þau gjæfuspor, hvort sem þau verða að öðru leyti •étt eða þung. II. Söngkennarapróf. Það fór fram í Kennaraskólanum 14. þ. m. Dagsins er hér getið fyrir þá skuld, að það er eigi óhugsandi, að hann kunni einhverntíma að verða talinn allmerkur dagur í söngsögu þessa lands. Þrír nemendur luku prófi. Uppskeran ekki meiri en svo, enda ekki við miklu að búast eftir atvik*

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.