Skólablaðið - 15.05.1910, Side 7

Skólablaðið - 15.05.1910, Side 7
SKÓLABLAÐIÐ 71 orðið 122 ára. Verst endast baðstofnr - og fjós; í þeim húsum verður mestur raki, af manneskjunum ogskepnunum; þargrætur hver viður Baldur úr helju leynt eða Ijóst frá haustnóttum til vordaga. Baðstofur geta ekki orðið rnjög gamlar, ef þœr era ofnlausar. En m'ikill munur er þó á endingunni eftir veðurlagi. Norðurland er miklu þurrviðrasamara en Suðurland, ársúr- koman fullum helmingi minni. ÖU hús endast því betur fyrir norðan; hygg eg nærri sanni, að þar geti torfbaðstofur staðið að meðaltali 3 mannsaldra, en syðra ekki langt fram yfir þriðjung úr mannsaldri. Hér á suðurlandi hef ég séð margar baðstofur grautfúnar eftir 8—10 ár. I Húnavatnssýslu þekki ég margar baðstofur, sem eru orðnar 50—70 ára gamlar og enn mjög stæðilegar. Þaðsegir mér Pétur ritsjóri Zóphóníasson að í Viðvík í Skagafirði sé baðstofa, sem reist hafi verið á 18. öld; hafi Jón Espólín lengt hana þá er hann bjó í Viðvík og sá endinn nú hrörlegastur þó yngstur sé. Espólín fór Irá Viðvík 1816. Þá er éftir að vita hvort timburhús endast mun betur. Það er mjög mikið vafamál. Oömul timburhús eru til, 100 ára og þaðan af eldri; en þau eru fá. Flest timburhús hér á landi eru reist á síðasta mannsaldri úr ungum við og óhörðnuðum. Þau eru lítt reynd, og járnið felur fúablettina. En þess eru eigi all- fá dæmi að 5—10 ára gömul timburhús hafa reynst skaðfúin innan járnklæða, þar sem að liefur verið gáð. Það er nú engum efa bundið að íbúðarhús bænda bæði torfbæir og timburhús myndu endast miklu lengur, efhúsinværu vermd á vetrum; eg hygg þau myndu yfirleitt endast helmingi lengur; en þá er líka auðstætt hvílíkt feikna tjón þjóðin bíður öld eftir öld af eldsneytisskortinum. Þola torfbœir ver landskjálfta en timburhús? Á því er enginn efi. Timburhús þola landskjálfta allra húsa best. Það leyndi sér ekki í landskjálftanum mikla á Suðurlandi árið 1896. Mitt er annað mál, hvort ekki er gerlegt, að breyta torfbæiunum svo að þeir þoli landskjálfta alt að því áviðtimb- urhús. Annars eru þau hjeruð fá, þar sem óttast þarf svo mikinn iandskjálfta, að húsuni sé hætt. Hvort er dýrara torfbœr eða timburhús? Það er altalað, og efalaust, að timburhús eru miklu dýrari.

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.