Skólablaðið - 15.05.1910, Qupperneq 12
76
SKÓLABLAÐIÐ
til þess að, láta minningargjöf koma í staðinn fyrir krans — gefa
Heilsuhœlinu það, sem krans myndi hafa kostað.
Ártíðaskrá Heilsuhœlisins verður geymd fyrst um sinn í
skrifstofu minni, Amtmannsstíg 1. Þar verður hún til sýnis á
hverjum virkum degi kl. 5-7, og mun ritari minn, Jón lœknir
Rósenkranz, taka á móti minningargjöfnm.
Herra A. J. Johnsson hefur einnig gefið Holdsveikraspítalanum
og Qeðveikrahælinu ártíðaskrár, og verða þær afhentar læknum
þessarra sjúkrahúsa.
Bækurnar eru nýkomnar.**) Eg kann honum bestu þakkir
fyrir gjöfina.
Heilsuhælinu hafa þegar hlotnast tvær minningargjafir, önnur
frá Johnson sjálfum, til minningar um móður hans (50 kr),
hin frá Bjarna prófasti Símonarsyni á Brjánslæk; hann kom til
mín, sá bókina og gaf minningargjöf (5 kr.) til minningar um
barn, sem lést fyrir tveim árum í sókn hans.
Menn út um land eru beðnir að senda minningargjafir handa
Heilsuhœlinu til Jóns læknis Rosenkranz, sem er fulltúi Heilsu-
hælisstjórnarinnar.
Hverjum þeim, er gjöf gefur, verður fengið eða sent við-
tökuskírteini. Þau verða vönduð að útliti; bæjarbúar geta sent
þau í stað kransa, og á þann hátt látið í ljós samhrygð sína
þegar jarðað er.
Hvað sem öðrum líður — þegar kemur að mér, vildi eg
mælast til þess, að »kransarnir«, ef nokkrir yrðu, væru látnir fara
í Heilsuhælið en ekki í gröfina mína.
G. Björnsson.
Nýbreytni mælist eigi nærri því altaf vel fyrir — síst þegar
brugðið er útaf rótgróinni venju í einhverju því, er snertir oss
sárt.
En varla er hugsanlegt að nokkur skynsamur maður bregðist
illa við því nýmæli, sem hér er borið fram.
**) Pappírinn sendi gefandinn mér, en eg hef annast prentun og
en eg het annast prentun og band fyrir hann, á hans kostnað.