Skólablaðið - 01.05.1911, Blaðsíða 13
SKOLABLAÐIÐ
93
Frá alþingi.
Frv. til laga um frœðslu œskulýðsins. Nefnd sú, er kosin
var til að íhuga það mál, komst öll til þeirrar niðurstöðu, að
fella frumvaipið, og var það síðan moldað á tilhlýðilegan hátt
af yfirgnæfandi meiri hlula efri deildar.
Frv. Jóns á Hvanná um lengingá frestitil að semja fræðslu-
samþyktir, var eftir nokkrar umræður felt í neðri deild. Enda
ekki gott að sjá til hvers gagns sú breyting var.
Frv. til laga uin breytingá lögum nm styrktarsjóð barnakennara
var felt við 3. umr. í neðri deild, eftir að hafa verið rætt í
nefndum í báðum deildum og samþykt við 2. urnræðu í neðri
deild. —
Frv. mátti heita meinlaust og gagnslítið, þar sem það fór
að eins fram á að lækka gjald nokkurra kennara til sjóðsins, en
aðalkrafa málsflytjanda var frá upphafi sú, að sjóðnum yrði breytt
1 eftirlaunasjóð, það verður sjálfsagt gert á sínum tima.
Spurningar og svör.
1. Þarf að taka fram í ráðningarsamningi kennara að uppsagn-
arfrestur sé 6 mánuðir frá beggja hálfu; er það ekki sjálf-
sagt að lögum?
Uppsagnarfrestur (hve langur hann skuli vera) er ekki
ákveðinn með lögum.
2. Má gefa barni burtfararskírteini frá skóla, sem vantar
1 '/.2 mánuð til að fylla 14 ára aldur við skólauppsögn að
vorinu, en fullnægir að öðru leyti fullnaða'-prófseinkunnum
í öllum námsgreinum? Ef svo er að gefa megi barninu
fullnaðarskírteini, er þá ekki hægt að krefjast þess að prestur
fermi barnið?
Já. Fullnaðarprófskirteini gefur engan rétt til að heimta
prestur fermi barn.