Sovétvinurinn - 01.10.1935, Side 10
[Sovétvinurinn]
og frelsi — og sósialistiskri samhyggju. Þar fer hið
nýja fólk, hér vex það upp, hróast.
Hið fullkomna öryggi um framtíðina mótar ef til
vill æskulýð Sovétlýðveldanna meir en flest annað.
Öryggisleysið grípur um kverkar æskulýðsins i auð-
valdsheiminum og svæfir og kæfir getu hans og
eldmóð. Sovétæskulýðurinn fær að beita kröftum
sínum óhindrað og þekkir ekki atvinnuleysið og það
kapphlaup um stöður, sem því fylgir né þann kvíða
og þau ólieilindi i annara garð, sem stöðukeppnin
hefir í för með sér. Hæfnin, iðnin, viljakrafturinn
ráða öllu um lífsstarf og framför unga fólksins í
landi sem hefir varpað af sér okinu, sem er að sliga
menningu auðvaldsheimsins. Þar sem fram fara
skapandi störf; þar sem byggð er upp ný menning á
nýjum grunni, með aðstoð hins bezta frá eldra tíma-
bili, þar er þörf fyrir æskuna, þar þarf ekki að gera
starfið að kvaðavinnu eða æskumennina að slátur-
fénaði í annari heimsálfu. — Þar er kallað á krafta
unga fólksins.
1. sept. fagnar frjáls æska alþjóða æskulýðsdegin-
um í böfuðborg Sovétlýðveldanna. Hún fagnar sigri
feðranna á því böli, sem hún þekkir ekki nema af
afspurn, en sem þjakar og heftir æskulýð auðvalds-
iandanna. Hún fagnar sínu eigin frelsi en er þó jafn-
framt ljóst hlutverk sitt í frelsisbaráttu allrar æsku
vcraídar. Hún sýnir með lífi sínu, lífskjörum sínum,
árangri viðleitni sinnar og starfs síns, hvað frjáls
æska í frjálsu landi getur áorkað.Hún er sósialistisk
æska í sósialistisku landi, það er blysið, sem hún
bregður á loft framundan iiinni kúguðu æsku kapí-
lalistiskra landa.
Æskulýður Sovétlýðvcldanna gefur æskulýð auð-
valdslandanna nýjar vonir - og nýjar skyldur, því
að sá sem eygir lífvæni nýrra lifsvona þúsundanna
og hefst ekki að, bregðst skyldum sínum. Alþjóða
æskulýðsdagurinn er sameiginlegur baráttudagur
æskunnar fyrir sínum eigin lífsskilyrðum. í sjötta
hluta heims hefir sigur náðzt í þeirri baráttu. Fimm
sjöttu hlutar eru eftir. Þar ríkir vonleysið og oft
ómarkviss barátta og leit.
Mistökin opna augun, kapítalisminn og kúgunin
grafa sér sjálf gröf. Æskan vill frá þeim leik ganga
og til nýs og yngra lífs.
En er til nokkurs....
Atvinnuleysi, kvaðavinna, lokun skóla, bóka-
hrennur: Þýzkaland.
Atvinnuleysi, hernaðarbrjálæði, menningarhrun,
múgslátrun: Ítalía.
Atvinn uleysi, úrræðaleysi, vonleysi, getuleysi,
menntunarleysi: Auðvaldsheimurinn í heild.
Er til nokkurs að vera ungur í auðvaldsríki?
Jú, vegna ....
Lærdómsríkt dæmi um
óskir æskulýösins.
1. sept., alþjóðaæskulýðsdaginn, var mikið um
dýrðir í Moskva, höfuðborg verklýðsrikisins, þar
sem æskan á landið, framtíðina, tækifærin og tækn-
ina. Æskulýðurinn í Sovétrikjunum er hamingju-
samur. Hann þarf ekki að jarða óskir sínar og ætlan-
ii í örbirgð atvinnuleysis. Hann þarf ekki að beygja
bak undir ok áþjánar og fasisma, hann er djarfasti,
frjálsasti og athafnamesti æskulýður heimsins.
Sovétríkið er eina ríkið i heiminum, sem getur veitt
æskunni óskorið athafnafrelsi. Af hverju? Vegna
þess, að ríkisvald auðvaldslanda þarf að hafa taum-
bald á æskunni, til þess að hún verði ekki ríkinu
hættuleg. Með hverju hættuleg? Með því nýja lífi,
sem óspillt æska og ókiiguð jafnan býr yfir. En það
nýja líf, það nýja, sínýja frjómagn er sál Sovét-
skipuiagsins. Sovétmenningin byggir tilveru sína á
nýju lífi, nýju fólki — og skapar nýtt fólk. Æsku-
lýður Sovétlýðveldanna er að verða æ meir frábrugð-
inn æskulýð hinna þrautpíndu, kapítalistisku landa.
Ahugaefni og sálfar æskunnar i þessum tveim heim-
um söniu jarðar bera ljósan vott hins mikla mis-
munar þcirra.
Gott dæmi — og um leið átakanlegt — þessa mis-
munar fer hér á eftir. Er það tekið úr frásögn og lýs-
ing frá síðasta alþjóðaæskulýðsdeginum í Moskva.
Fyrir skemmstu var sýnd viðsvegar um heim ný
kvikmynd „Hinn ósýnilegi“ (tekin eftir sögu H. G.
Wells). Hún var sýnd hæði í Póllandi og í Rússlandi.
Pólskum kennara datt þá í hug að láta öll skölabörn
i Wilna svara sömu spurningunni: „Hvað myndi eg
gera, ef eg gæti orðið ósýnilegur?“ Þess var vand-
lega gætt, að bvergi kæmi í ljós nafn hvers einstaks
svaranda, eða annað, sem gæti hent til, hver hann
væri, svo að það gæti engin áhrif baft á svör barn-
anna.
Svörin voru átakanleg. Allmörgum skólabörnum
þótti girnilegast að nota tækifærið og hnupla kökum
Stórkostlegustu atvinnuframkvæmdir mannkyns-
sögunnar, sífjölgun skóla og endurbætur uppeldis-
mála, aukning bókaútgáfu og blaða, frelsi, festa og
samheldni í starfi, öryggi um afkomu, nýsköpun,
orka, blómgun lista og vísinda, nýtt fólk: Sovétlýð-
veldin.
Það er til einhvers að vera ungur í sósialistisku
riki!
Og þess vegna er ekki mcð öllu vonlaust nú ungu
fólki í auðvaldsríki.
10