Sovétvinurinn - 01.10.1935, Blaðsíða 15

Sovétvinurinn - 01.10.1935, Blaðsíða 15
[Sovétvinurinnl Skákþraut nr. 2, eftir P. Pimenoff (Jaroslawl). Hvítt: I<f3, Dg(i, He7, Rf6 (4 taflmenn). Svart: Kh8, Dg8, Bf4, Bf7, (15 (5 taflmenn). Hvítt mátar í öðrum leik. Nöfn þeirra, sem senda rétta ráðningu, verða birt í Sovétvininum. Lausn á skákþraut nr. 1: 1) Hd4—d7. Þessi sniðugi leik- ur, þar s'em hróknum er leikið i veð, leiðir til þess, að hvítt mátar i nœsta leik á mismunandi hátt, eftir þvi hvernig svart reynir að verjast. Réttar lausnir hafa sent: Jóhannes Stefánsson, Neskaupstað, Olgeir Friðfinnsson, Borgarnesi, Kristján F. Friðfinnsson, Vopnafirði, Böðvar Jónsson, Óðinsgötu 13, Reykjavik, Trausti Árnason, Tjarn- argötu 16, Reykjavík og Haukur Þorleifsson, Hringbraut 32, Reykjavík. Jóhannes Stefánsson sendi Sovétvininum ennfremur bréf, þar sem hann þakkar þessa viðleitni okk- ar til þess að birta eitthvað um skák í hverju hefti, og hvetur til þess, að Sovétvinurinn veiti lesendum sínum fræðslu um þessi efni. Sovétvinurinn fagnar þessu vinsam- lega bréfi og mun leitast við að svara fyrirspurnum bréf- ritara um skákbækur frá Sovét-Rússlandi i næsta blaði. Moskva-Yolga-skurðurinn. Nokkur hluti af hinum mikla Moskva-Yolga- skurði, sem verið er að grafa, var tekinn til notkunar 18. sept. Þessu geysilega mannvirki verður lýst síðar hér í hlaðinu. Kennarar til Sovétríkjanna. Sökum sívaxandi áhuga uppeldisfræðinga fyrir skóla- og uppeldismálum í Sovétríkjunum, gengst ferðafélagið „Intourist" í Stokkhólmi fyrir sér- stakri ferð til Rússlands í jólafríinu fyrir kennara og áhugamenn í skólamálum. Farið verður frá Stokkhólmi 26. des. og komið þangað aftur 9. janúar að morgni. Dvalið verð- ur i Leningrad í 4 daga og Moskva í 6 daga. Auk hinnar venjulegu ferðaáætlunar, gefst hópi þess- um tækifæri til þess að kynnast barnaheimilum og „menningarhúsi barna“ í Leningrad. Einnig verður þar komið í stofnunina: „Verndun fyrir mæður og börn“. í Moskva verður skoðuð hin þekkta uppeldis- stofnun fyrir listhneigð börn, ungherj aheimili, verkamannaklúbbar, fyrirmyndarskóli (mönster- skole) fyrir byrjendur, uppeldisfræðistofnunin „Bubnov“, verkamannaháskóli og ýmsir æðri skólar. Einnig mun verða komið i barnaleikhúsið. Kostnaður allur frá Stokkhólmi og þangað aft- ur, reiknað með 3. klassa ferð á járnbraut og 2. klassa á skipi (Stockholm—Ábo), matur, gistihús og ferðalög í Sovétríkjunum, verður i sænskum krónum 280.00. Leiðheinandi verður hinn alkunni kennslumála- frömuður Svia, Ruben Wagnsson. Sovétvinurinn vill vekja athygli lesenda sinna á augl. hér í blaðinu um Teikniskólann. Hér er um þá kennslu að ræða, sem veitir ekfci að eins nothæfa kunnáttu og þroska á listræmun sviðum, heldur einnig gleði og ánægju. I tómstundunum er gott að iðka teiknun, mótun í leir eða meðferð lita, því það kostar lítið sem ekkert en veitir hollari og betri skemmtun en flest annað. Blaðið hvetur því fólk og ekki sízt unglinga til þess að sækja slíka kennslu. TEIKNISKÓLINN hefst í október. Kennd verður fríhendisteikning, perspektiv, meðferð á vatns- og’ olíulitum. Einnig að móta í leir. NÝTlZKU KENNSLUAÐFERÐIR. MARGSKONAR FYRIRMYNDIR (lifandi model). Upplýsingar hjá Marteini Guðmundssyni, Þingholtsstræti 14. Sími 4505 frá kl. 12Á2-—og eftir kl. 8 e. li. marteinn GUÐMUNDSSON. björn björnsson. N.B. Sérstakt, ódýrt námskeið fjrrir börn innan fermingar- aldurs — teiknað og mótað í leir. k ESENDUR! Kaupið MÚ8IKVÖRUR og LEÐURVÖRUR í HLJÓÐFÆRAHÚSINU Bankastræti 7, simi 3656 og ATLARÚÐ Laugaveg 38, simi 3015 15

x

Sovétvinurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sovétvinurinn
https://timarit.is/publication/237

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.