Alþýðublaðið - 05.01.1965, Page 6

Alþýðublaðið - 05.01.1965, Page 6
KOMMÚNISTAR austan járntjalds eru enn að berjast á móti hinum „kapítalistíska" jólasveini eða Santa Claus. Um daginn var haldin jólaskemmtun fyrir börn í austur-þýzka iðnaðarbænum Schwedt, þar sem kom „Ruprecht vinnumaður" í stað Santa og deildi út gjöfum. Aðstoðarmaður hans var „Juri geimfari", og í stað kapítalistísks hrein dýrs voru aktýgi lögð á ísbjörn, sem kallaðist „Polarka”. í stað gjafa var svo útdeilt úttektarmiðum á hvað það, sem fyndist í austur- þýzkum verzlunum. — ★ — MEIÐIRÐAMÁL, sem Volkswagen-verksmiðjumar fóru 1 fyrir nokkru við vestur-þýzka neytendablaðið D.M., hefur endað með réttarsætt. Blaðið hafði reynt bíl af gerðinni 1500-S og fundið honum ýmislegt til foráttu. Volkswagen heimtaði mikið yfir 100 milljónir í skaðabæt- ur. Réttarsættin er fólgin í því, að Volkswagen fellur frá fjárkröfunni, en hins vegar gefa báðir aðilar út sameiginlega yfirlýsingu, þar sem segir, að bíll sá, sem blaðtð lét reyna, hafi verið af gamalli gerð. - * - JAMES nokkur Machen, 27 ára gamall, var fyrir nokkru handtekinn í,íbúð sinni í New York, þar sem hann var að reykja marijuana sígarettu með fílter-munnstykki. — Hvers konar sigaretta er þetta, spurði einn af lögregluþjón- undm. — Marijuana, svaraði Machen. — Marijuna með munnstykki? spurði lögginn vantrúaður. — Auðvitað, sváraði Machen. Heldurðu, að ég vilji fá lungna- krabba? -★“ l HINN raunverulega sjálfstæði maður er sá, sem þorir að af- þakka heimboð, án þess að gefa skýringu. — ★ — FRANSKA leikkonan Madeleine Barrault, kona hins mikla leikara Jean-Louis Bárrault, lýsir því yfir, að eigi konur í einhverjum erfið- leikum méð eiginmenn sína, skuli þær bara senda þá á sjúkrahús. — Það er ótrúlegt hvað það gerir mikið gagn. Jean-Louis hefur aldrei verið eins meðfærilegur og góður heima fyrir, eins og eftir að hann kom af spítalanum um daginn, segir hún. Hugsið ykkur, hann mótmælti meira að segja ekki um daginn, þegar ég varð að viður- kenna fyrir honnm, að ég ætti ekki annað í hádegismat en artichoke- kjarna, kola, nautafilet og jarðaberjaköku. Satt að segja mundu nú fæstir þurfa að fara á spítala til að læra að meta slíkan hádegisverð. — ★ — TVEIR elskendur í Buffalo í Bandaríkjunum, Peggy John og Robert Pilz, hrundu I framkvæmd hugmynd, sem því miður er ekkert eins dæmi, Þau leigðu tvo gangstera til að ryðja eiginmanni Peggy úr vegi, þar eð hérna megin grafar var hann aðeins til óþæginda. Þau sitja nú í sitt hvorum fangaklefanum í Buffalo! Það kom nefnilega í Ijós, að „morðingjarnir” voru leynilögreglumenn. — ★ — HANN kom að vini sínum sitjandi við barinn með svip, sem benti til, að allar heimsins áhyggjur hvildu á honum. — Hvað er að, gamli minn? — Ja, konan er búin að setja mér úrslitákosti. Annað hvort hætti ég að veðja á hesta eða hún sækir um skilnað. — Það má vera erfitt val . . . — Ja, eiginlega ekki, en ég get ekki bægt þeirri hugsun frá mér, hvað hún eigi ei'tir að sakna mín mikið. — ★ — MARGIR gagnrýnendur stórborga kvarta yfir öllum þessum höggmyndum af frægum mönnum, sem þar séu upp settar, og fylli borgirnar af „buxna-körlum“. En í London verður þó undantekning. Það hefur lengi verið á döfinni að reisa höggmynd af hinum gamla vini og fjandrnanni Breta Mathatma Gandhi. Nú hefur borgarstjórnin samþykkt frum- drög af slíkri styttu, sem gerð eru af myndhöggvaranum Fredda Brilliant. Hún hyggst hafa Candhi svo til nakinn, aðeins með klæði yfir. axlir og mitti, og sitjandi með fætur í kross á indverska vísu. Myndin á að vera á Trafalgartorgi. 0 5. janúar 1965 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ Tízkan lætur ekki að sér hæða. Heimur- tnn er rétt að segja búinn að jafna sig eftir topplausu kjól- anna, þegar ný ósköp dynja yf- •ir. Það nýjasta M sjáum við á ■ myndinni hér g til hliðar. Hér . sr um að ræða H nýja gerð af ■: samkvæmis m kjólum, sem jf fljótt á litið eri\ j eins og undir- I kjólar, en tízku i sérfræðingarnir •Jg segja að sjálf- | sögðu að þeir .jj eigi ekkert sam j eiginlegt með j| þeim. Ekki hafa 1 enn borizt • fregnir af því, M hvort kvénfólk p er farið að til- m einka sér þessa 1 tízku. Á mynd- g inni er þokka- H disin Samantha p Just að kynna m samkvæmiskjól i^ffil!í!!"'!^npmHIWiliUáUll!n!ntIi!ni!ilti!llin!!!l!!m!!l!i!!lt'Hni!i!löi!!l!I!!WUimtlffl!mHimi].l[inUOmililJDilllöli)!i!Uiiliiam!IU)Uill«W!UniminH]lIinPJnnilOHWlJJUIJlUUfiUl!lJlJUiillffiiillJilU[UUlNUUIUlU!l!li:ilUliUIII!fll!llinilii!II!ini!IUnUllMliUiifillia Elisðbet Brettandsdrottning kvartar yfir Ijósmyndurum ELÍSABET Bretadrottning hef- ur 'kvartað við brezka blaðaráðið vegna þess _að blaðaljósmyndarar hafi reynt að rjúfa friðhelgi heim ilis hennar og systur hennar, Mar grétar prinsessu, segir í fréttum frá London. Blaðaráðið — stofnun, sem hef ur það verkefni að gæta þess að brezkir blaðamenn fylgi ákveðn- um siðareglúm — hefur rannsak að kvartanlrnar, sem voru út af tveim tilvikum. í öffru tilvikinu er. gagnrýnd hegðun ljósmyndarans, en í hinu tilfellinu sætti ljósmynd arinn mjög hörðum ákúrum. Jafn framt gaf ráðið ritstjórnum blað anna aðvaranir. Segir þar að sýna beri aðgát varðandi birtingu mynda af meðlimum konungsfjöl- skyldunnar við aðstæður, sem hafi í'för með sér brot á friðhelgi einka lífsins. í yfirlýsingu ráðsins segir, að drottningin hafi tilkynnt ráðinu um tilraunir einstakra blaðaljós- myndara til aff rjúfa friðhelgi einkalífs hennar og Margrétar syst ur hennar. Tilraunir þessar hafi náð hámarki í birtingu mynda í blöðunum Sunday Express og The People. Sunday Express birti myndir af drottningunni — eina, þar sem hún var að hjálpa Mar- gréti prinsessu að fara í jakka ut- an yfir fötln, sem notuð eru á vatnaskíffum, og aðra mynd, sem sýnir Múr^réti í baðfötum, en drottningin liggur út af á bakk anum rétt hjá, og enn eina mynd af Margréti. The People birti mynd af Margréti prinessu, þar sem hún var á sundi, í baðfötum við stýrið á hraðbáti og berfætt í fötum með sundbol í hendi. Ráðið hefur komizt að raun um, að myndirnar eru teknar af óráðn um (free-lance) Ijósmyndara, R. Bellisario, sem hafði troðið sér inn á einka-landareign drottningar. Hann hafði talið ritstjóranum trú í AFRÍKURÍKINU Líberíu komst nýlega upp um velskipu- lagt samsæri um að afla nemend um við einn af skólunum i höfuð borginni Monroviu svara við próf spurningum alllöngu fyrir próf- dag. Menntamálaráðuneyti Líberíu hefur upplýst, að það hafi rann- sakað upplýsingar um, að próf- spurningar hafi „lekið“ til nem- enda í viðkomandi skóla og hafi rannsakað upplýsingar um, aff próf spurnirigar hafi „lekið“ til nem- um, aff myndirnar hefðu verið teknar með leyfi viffkomandi. í bréfi skýrir blaðafulltrúi drottningar svo frá, að fundizt hefðu ljósmyndarar frá Daily Ek-, press og annar óráðinn í Sunning ham Park í Vestur-London og hefðu þeir beint vélum sínum aff kofa, þar sem Margrét prjnsessa hefði veriff að skipta um föt til aff fara á vatnaskíði. Þeir voru báðir fjarlægðir af einka-landareign og hindraðir í að taka fleiri myndir, segir í bréfinu. enda í viðkomandi skóla og hafl skýrsla um málið verið send dóms málaráðuneytinu. Áður en menntamálaráðuneytMf var búiff að senda skýrslu síná, voru blöðin byrjuff að ræða mál- ið. Samkvæmt blaffafregnunum ettt tveir opinberir fulltrúar og einn kennari flæktir í málið, sem þegar er orðið að hneyksl*. Hugsanlegfc er, aff höfffað verði mál, en þaff ákveður dómsmálaráffuneytiff, er Framhald á 10. síffu Skipulögd próf- svik í Liberíu

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.