Alþýðublaðið - 21.03.1965, Síða 7
Hin fræga síldarflokkunarvcl.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ hefur hitt að
máli Gísla H. Friðbjarnarson,
framkvæmdastjóra Stálvinnsl
unnar hf. og varpað fram við
hann nokkrum spurningum varð
andi hina nýju tollalækkun á fisk
iðnaðarvéium og sitthvað fleira
um íslenzkan iðnað.
— Er ekki ykkar aðalverkefni
smíði á fiskiðnaðarvélum?
— Það má segja það, en við
höfum líka smíðað mikið af plast-
mótum og hverjum þeim stöns-
um, sem til falla.
— Kom það sér ekki illa fyrir
ykkur, þegar Alþingi lækkaði
tolla á fiskiðnaðarvélum erlendis
frá? Hvað viltu segja um þær
ráðstafanir?
—■ Það má helzt um þær segja,
að það sætir furðu að þær skuli
ekki hafa verið gerðar löngu
fyrr. Ég skil ekki það viðhorf að
láta það viðgangast að fiskiðnað
urinn þurfi að greiða háa tolla
af vélum, sem eru aðaltækin við
gjaldeyrisöflun þjóðarinnar. Það
var mál til komið að leiðrétting
fengist á því. Að það getur kom-
ið hart niður á Stálvinnslunni er
auðvitað annað máj. Verst er nátt
úrlega það, að við erum áfram
látnir greiða háa tolla af því
efni, sem við notum til smíðinn-
ar, allt að 30-35%. Það finnst
okkur auðvitað mikill ójöfnuður,
nái ekki nokkurri átt. Slíkar að-
gerðir þættu lélegar á íslenzku
bóndabýli.
Það getur naumast
talizt eðlileg ráðstöfun að færa
niður slíka tolla alveg fyrirvara-
laust. Þetta þarf eins og annað
að hafa sinn tíma og gefa fyrir-
tækjum sæmilegan frest, þegar
um svo stórt mál er að ræða.
SUPA-MATIC
HANBKLÆHASKÁPARNIE ERU
Hreinlæti á snyrtiherbergjum er bezt tryggt meS
SUFA-MATIC handklæðaskáp.
Bezt — Ódýrast — Engar ruslakörfur.
SUPA-MATIC fyrir veitingastaði, verzlanir,
verkstæði, skóla, skrifstofur. Alls staðar þar
sem hreinlæti er í heiðri haft.
Borgartúni 3. — Sími 172G0 — 17261 — 18350
Þörf þar þjóðin þvær sér
hreint, sterilserað, mjúkt
tauhandklæði fyrir hendi.
Haraldur Haraldsson við hina nýju hausunarvél sína.
VÉLARNAR TOLLF RJÁLSAR,
EN EFNI í ÞÆR TOLLAÐ
— Hvaða vélar hafið þið aðal-
lega smíðað?
— Það má segja, að mest hafi
farið fyrir síldarflokkúnarvélinni,
sem er íslenzk uppfinning, gerð
af Haraldi Haraldssyni meðeig-
anda og aðalverkstjóra Stálvinnsl
unnar. Einnig höfum við smíðað
síldarflökunarvélar eftir norskri
fyrirmynd. Og nú síðast er verið
að fullgera hausunarvél fyrir
þorsk.
— Er síldarflokkunarvéiin kom
in víða?
— Hér á Suðvesturlandi má
segja að hún sé í hverri verk-
unarstöð og frystihúsi. Eins var
reynt að koma vélum til Austur
lands s.l. sumar, eins og mögu-
legt var, og hefði söltunin þar
eflaust orðið önnur, ef vélanna
hefði ekki notið við.
— Hvað um fjármagn ti) þess-
ara framkvæmda?
— Það hafa verið miklir erfið-
leikar á útvegun fjár, og má það
heita furðulegt að ekki fæst nægi
legt fé til slíkrar framleiðslu.
Vélvæðing í fiskiðnaðinum er þó
óumdeilanlega mikil nauðsyn,
bæði sakir manneklu og ekki síð-
ur hins að allt þarf að gera til
að lækka framleiðslukostnaðinn.
Við hefðum ekki komizt langt,
ef Iðnaðarbankinn hefði ekki
hlaupið drengilega undir bagga.
Eins hefur Landsbankinn nú
greitt götu okkar.
— Hvað er annars um iðnað
að segja almennt?
— Mig satt að segja furðar á
skipulagsleysinu í ráðstöfunum
stjórnarvalda í málum iðnaðar-
ins. Nær allar iðnaðarvörur eru
settar á frílista, en iðnfyrirtækj-
um gert erfitt um vik, enginn
fyrirvari settur og yfirleitt má
segja að allar aðgerðir séu handa
hófskenndar. Fyrir nokkru þótti
það nauðsynleg ráðstöfun, og eP
það enn-, að láta kanna hvar þörf-
in væri mest fyrir smærri iðnaf)
til þess að vissir landshlutar yrðu
ekki afskiptir um atvinnumögu-
leika suma tíma árs. Svo mikiíj
var talið við liggja að þingskipuff
nefnd var sett á laggirnar til þess
að semja tillögur til úrbóta. En
nú er svo komið, að þau fyrir-
tæki, sem fyrir eru, fá varla
hjarað sakir óeðlilegs innflutn-
ings á ýmsum. vörutegundum,
sem við getum framleitt eins vel
og hver önnur þjóð. Það er allt
gott í hófi — eins er með frjáls-
ræði — það er gott á meðan þafí
skaðar ekki. Fyrir nokkrum ár-
um var það tízka að kaupa tog-
ara handa þorpum og kauptún-
um, er ekki gátu einu sinni mann
að skipin, hvað þá gert þau út
að öðru leyti. Og nú á að leggja
flestan iðnað niður og mynda
aðra tízku; stóriðjuna. HvafS
hyggst ríkisstjórnin gera við þaf)
fólk, sem missir atvinnu, ef veru
lega er þrengt að iðnaðinum?
Hvað um allar milljónirnar, seni
búið er að festa í byggingum og
vélbúnaði þess iðnaðar, «em ml
á í vök að verjast. Það færi bet-
ur að íslenzka þjóðin sæti sem
lengst við jafn gilda gjaldeýris-
sjóði, sem okkur er tjáð af vitr-
um mönnum að hún geri nú. En
hvað svo, ef lindin þornaði? A
þá aftur að fara að koma þeinv
verksmiðjurekstri í gang. sem nú
virðist muni eiga örðugt upp-
dráttar eða leggjast niður? —
Væri ekki hyggilegra sð
fara með löndum og sjá, hvort
drottinn verður öll ár jafn gjaf-
mildur á afla og gæftir og vcrið
hefur.
Vinnuvélar
til íeigu
Leigjum út litlar rafknúnar
steypuhærivélar o. m. fL
LEIGAN S.F.
Sími: 23430.
PfanósíiIIingar
og viðgerðir
GUÐMUNDUR STEFÁNSSOI*
hljóðfæraverkstæðl.
Langholtsvegi ðl.
Slml 3 60 81 milll kl. 10 og M.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 21. marz 1965 J