Alþýðublaðið - 21.03.1965, Page 9
I
JUULIUS CAESAR
ar hafi í fyrstu verið kaldhuga
stjórnmálabraskari og hamslaus
svallari, sem breyttist smám sam-
an með þroska og ábyrgð og gerð-
ist einn hinn djúphyggnasti og
ágætasta stjórnvitringur sem
uppi hefur verið.”
Það er öldungis óþarft að rekja
nánar embættisferil hans; en
ýmsir . sagnfræðingar hafa reynt
að skýra manninn, reynt að draga
upp heillega mynd af honum og
oft hefur það farið svo, að þeim
hefur orðið starsýnna á galla
hans en kosti; ýrt eigin frásögn
með ísmeygilegu orðalagi irétt
eins og þeir væri að draga sam-
ari söguþátt upp úr íslenzkum
kirkjubókum. I
En við þessir ungu skólasvein-
ar kynntumst honum aðeins sem
herforingja, ströngum og siða-
vöndum. Það var ekld fyrr en
skyggnzt var í aðrar bækur, að
maður las um bresti hans og
manngildi. Ef til vill höfum við
greint nærveru hans okkar tíma
vegna þess, hve við skildum vel
mannlega lesti hans.
Við urðum lærðari og lærðari;
þyngri texti var lagður á okkur.
Við kynntumst fágaðri yfirborðs
mennsku Cicero; rákum nefið ofan
í Hóraz og Óvidíus, en samt sem
áður þrengdi Caesar sér inn á
hugann; hans mál var tunga lart-
nesku stílanna: ,,Að þessum að-
gjörðum loknum, sneri hann aft-
ur til Rómar.” Sumir höfðu líka
eflzt að styrk í íslenzkri tungu
við að snara textanum, aðrir fóru
eftir versiones, eða studdust við
hina prýðilegu þýðingu Páls
Sveinssonar.
En latínan var mörgum kval-
ræði; máifræði hennar var þeim
fjötur, sem þeir gátu ekki losn-
að úr sína skólatíð, og þeir hinir
sömu vildu leggja niður þessa á-
gætu grein og því miður þá átti ■
þessi skoðun talsverðu fylgi að f%
fagna, en skólamennirnir sjálfir S
skildu gildi þessarar menntunar |1
og skelltu skollaeyrum við öllum jj
slíkum beiðnum.
Gallia est omnis divisa in par-
tes tres. Sem betur fer er þessi j§
Framhald á 10 síöu. M
Merkisberi
ir hermenn.
ENSKIR
KVENSKÓR
frá
CLARK'S
★
ÍTALSKIR
KVENSKÖR
Vor- og sumarlilír. - Nýjar send-
ingar í fyrramálið.
★
SKÓBÚÐ AUSTURBÆIAR
Laugavegi100
KJGRGARÐUR, Skódeild
Laugavegi 59
«'
NÝ SENDING
HoIIenzkar rúskinnskápur
í fallegu úrvali.
Einnig ný sending enskar
Vor- og heiisárskápnr og
fermlngarkápyr
í fjölbreyttu úrvali.
Kápu og dömubúðm
Laugavegi 46.
KONA ÓSKAST
í ÞVOTTAHÚS OKKAR.
★
Veitingahúsið NAUST
Sími 17758.
Hið eftirspurða
ER NÝKOMIÐ.
PÓLARIS H. F. Sími 21085.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ ~ 21. marz 1965 $