Alþýðublaðið - 24.03.1965, Blaðsíða 2
£ WUtJðrar: Gylfl Grðndal (&b.) og Benedlkt Gröndal. — Rltstjömarfull-
■'"01 : Eiöur Guðnason. — slmar: 14800-14903 — Augiyslngasiml: 149(6.
Utget’and': Albyðuflokkurlnn
AQsetur: AlpyðuhúslO vlO Hverflsgötu, Keykjavlk. — Prentsmioja Alþyau
•laOstns. — Askriftargjald kr. 80.00. — 1 lausasölu kr. 5.00 elntakiO.
Draumar um gróða
) LEIÐTOGAR Sjálfstæðismanna deila nú xnn-
byrðis um það, hvort ríkið skuli eignast Áburðar-
verksmiðjuna eða ekki. Virðast þeir hafa ólíkar
og raunar óljósar skoðanir á ríkisrekstri, jafnvel
þessarar 12 ára gömlu verksmiðju.
Það voru ríkisstjórn og síðan Alþingi, sem
, ákváðu að hefja undirbúning að byggingu áburðar
verksmiðju. Málið var undirbúið á vegum ríkis-
stjórnar og allt fé útvegað til verksins. Þegar setja
átti lög um verksmiðjuna kom á síðustu stundu
fram krafa frá Alþjóðabankanum þess efnis, að
verksmið.jan skyldi gerð hlutafélag. Var þá lög-
unum breytt, en ekki hefur verið ljóst til þessa
dags, hvort hlutafélagið á verksmiðjuna eða er að-
eins rekstursfélag. Hefur það aldrei fengizt úr-
skurðað, og ha-fa verkalýðsflokkarnir hallazt að
hinu síðarnefnda.
Hlutafélagið var stofnað með aðeins 10
milljón króna hlutafé, enda þótt verksmiðjan
kostaði um 130 milljónir, sem ríkið útvegaði. Sam
kvæmt áætlun landbúnaðarráðherra er verðmæti
verksmiðjunnar í dag um 350 milljónir.
Morgunblaðið lét í gær í Ijós þá eindregnu
skoðun, að ekki kæmi til mála að selja hlutabréf
í verksmiðjunni á öðru verði en verðmæti þeirra
í dag. „Verður að sjálfsögðu að greiða fyrir þau
fullt verð‘, sagði Morgunblaðið.
Ekki þarf að efast um, að þeir Sjálfstæðis-
menn, sem vilja láta ríkið kaupa Áburðarverk-
smiðjuna, ætla að selja hlutabréf sín á „fullu
verði“. Það mun þýða, að allir aðrir hluthafar en
ríkið, en þeir lögðu samtals fram 4 milljónir
króna, eigi nú að fá fyrir sinn hlut 140 milljónir.
Hver sá, sem fyrir 12 árum lagði fram 1 milljón,
• ætti nú að fá 35 milljónir!
j -Sæmilegur bissniss, að því er virðist.
Þetta er glöggt dæmi um auðmyndun á auð-
valdsgrundvelli, og er furðulegt, að nokkrum ábyrg
. um manni skuli detta í hug, að slíkar aðfarir séu
hugsanlegar á íslandi vorra daga. Jafnvel Morgun
blaðið sér þetta og mælir gegn þeim flokksbræðrum
sínum, sem vilja að ríkið kaupi hlutabréf verksmiðj
unnar
[ Ef þau ótrúlegu tíðindi gerðnst, að ríkið
keypti hlutabréfin á þessu verði, mundi það að
sjálfsögðu afla fjárins með því að hækka ver* áburð
ar. Bændur landsins fengju að borga þann brúsa
í’
fi Áburðarverksmiðjan var byggð fyrir frum-
kvæði ríkisins og ríkið útvegaði fé til hennar. Þessi
verksmiðja átti auðvitað að vera ríkisfyrirtæki frá
, upphafi. Úví miður varð ekki svo, en þau mistök
mega ekki verða einstökum aðilum stórfelld gróða
lind.
m
■••••■miiiiimiiiiiiliuiiiiinm .inimmiimiimiiiiiimiiimimmm •••iiiiiiiimniiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiii»ii»iiiiiiiiiii
* AS krafsa ofan af fyrir sjálfum sér.
ít Farðu burt og bjargaSu þér.
Framfærslumálin í óreiðu.
Daglegt mál í útvarpinu.
•mniiiliiiiiiiimiiiiiiiiiiiiH»i»»mmmiiiii,iiimi,i,ti,i,,,,n,m,,i,,,,|,M,,,,,,i,|,,,,,,,,i,,i,,,,»,,,,*,,,,,,,*,,,,,,,,,,,*,«*
J. Br. SKRIFAR: ,,Eff þakka
þér fyrir pistilinn þinn uni fram
færslumálin í Reykjavík. Vað er
öllum ljóst, að þau eru komin í
mestu óreiðu. Ekki svo að skilja
að þar sé um að ræða, að' ein-
staklingar fari út fyrir þann
rainrna, sem þessum máíum er
settur, hins vegar er ramminn orð
inn of víður, ef svo má segja.
Þú drepur á það, að fyrrum, með
an þú og aðrir börðust fyrir því
að þeim sem lijálpar þurftu að
að njóta yrðu hennar aðnjótandi,
þá hefði framkvæmd þessara mála
verið harðýðgisleg, og það er
hverju orði sannara. En nú hefur
snarazt nin. Nú virðast ekki vera
neinar skorður, en hver geti vaðið
í pottinn sem vill.
VITANLEGA Á AÐ lljálpa þeg
ar sjúkdómar, elli, ómegð og slys
er um að ræða, og sem betur fer
stefna tryggingarnar að þessu og
gera það. En það er framfærsla
bæjarins sem verður að endur-
skoða reglur sínar með það fyrir
augum að gera þær strangari.
Ég gæti komið með mörg déemi
um þetta, en vil ekki bera erfið
lleikafólk á torg, vil ekki auglýsa
niðurlæginguna." Sumt fólk þaif
að lúta stjórn og aga. Það er að
minnsta kostj ekki rétt, að fátækir
menn, sem berjast í bökkum, striti
árum isaman fyrir ræfilsdómi
annarra.
ÖLLUM BER OKKUR að vinna
fyrir okkur. Það er ekki trétt að
bæjarfélagið mati letingja og ó-
reiðumenn. Mörg dæmi eru til
þess, að heimili séu á framfæri
borgarinnar þar sem fyrirvinnan
liggur í óreglu. Við slíka menn á
»ð seeia: Farðu banvað sem þú
vilt vinna fyrir þér. Við liættum
að mata þig- Við munum sjá svo
um, að börn þín líði ekki nauð,
en fyrir þér vinnum við ekkL
EF TIL VILL YRÐI þetta til
þess, að sá liinn sami tæki sér
tak og færi að krafisa ofan af
fyrir sjálfum sér. Sumir menn
þurfa að hafa liúsbónda yfir sér.
Og það er gamall og nýr sann-
leikur, að sá sem ekki vill vinna
en getur það, á ekki mat að fá.
T r úlof unar hringar
Sendum gegn póstkröfu
Fljót afgreiðsla
Guðm. Þorsteinsson
guBsmiður
Bankastrætl 12.1
Það er hætta í þvi fólgin upp á
framtíðina, að börn alist upp á
heimili þar sem allt er sótt í
annarra vasa, enda munu borgar
yfirvöldin þekkja dæmi þess. Það
kemst nefnilega upp í vana að
sækja allt til annarra.“
P.P. SKRIFAR: „Ég hlusta alltaf
á þættina um íslenzkt mál í útvarp
inu. Þetta er áreiðanlega eitt nauð
fSf
synlegasta útvarpsefnið. En mia
jafnlega er skift- Þáttur Óskarg
Haildórssonar um daglegt mál,
fær aðeins fimm mínútur til um
ráða. Þetta er helmingi of stutt
ur tími, ætti að fá að minnsta
kosti tiu mínútur. Ég er viss um að
verkefnið er nægilegt og útvarps
ráð á að gera þetta.“
Hannes á horninu. f
Áfengisvamarráð
vill ráða erindreka í þjónustu sína á næsta vori.
Upplýsingar um starfið eru gefnar á skrifstofu ráðsins,
Veltusundi 3, og óskast umsóknir um það sendar þang-
að fytir 1. maí n.k.
Áfengisvarnaráð.
Aukastarf
Utanbæjarblað óskar eftir umboðsmanni í Reykjavík til
að sinna ýmsum erindum þar. Er hér um heppilegt og
vel launað aukastarf að ræða fyrir t.d. húsmóður, heilsu-
lítinn mann eða vaktavinnumann. Þeir, sem kynnu að
hafa áhuga fyrir starfi þessu eru beðnir að leggja nöfn
sín inn á afgreiðslu Alþýðublaðsins í lokuðum umslög-
um, merktum „UTANBÆJARBLAÐ".
SPILAKVÖLD
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG KÓPAVOGS held-
ur spilakvöld næstk. LAUGARDAGSKVÖLD í
Félagsheimilinu Auðbrekku 50 kl. 8,30. Spiluð verð-
ur félagsvist. o. fl. — Kaffiveitingar, j
2 24. marz 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ