Alþýðublaðið - 24.03.1965, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 24.03.1965, Blaðsíða 10
Bjartsýnismaðurinn sér grænt ljós alls staðar. Bölsýnismað- urinn sér rautt Ijós alls stað- ar. En sá hyggni — hann er litblindur . . . MESSUR Föstumessur: Dómkirkjan: Föstumesa 1 kvöld kl. 8,30.. — Sr. Árelíus Níelsson. Neskirkja: Föstumessa í kvöld fcl. 8.30 Kirkjugestir, vinsamlega beðnir að hafa með sér Passíu- jjálmana. Sr. Frank M. Halldórss. Hallgrínvskirkja: Föstumessa í kvöld kl. 8,30- Sr. Sigurjón Þ. Arnason. Laugarneskirkja: Föstumessa I kvöld kl. 8,30. Sr. Garðar Svavars eon. Langholtsprestakall: Föstu- Biessa í kvöld kl. 8,30. Sr Sigurð- ttr Haukur Guðjónsson- Kvenfélag Kópavogs. Félags- konur munið aðalfundinn n.k, flpimtudagskvöld 25. þ. m. Stjórnin. TIL HAMINGJU Laugardaginn 13. marz opárber- liðu trúlofun sína Ólöf Gestsdótt- Ir, gjaldkeri, Sigluvogi 10, og Bagnar Gunnarsson, bankafulltrúi, Langholtsvegi 182. Brúttótekjur Framh. af 12. síðu. aðrir ófaglærðir 129 þúsund króna meðaltekjur og 25,2% hækkun. Segir síðan í Hagtíðindum: Meðal kaupstaðanna eru hæstar brúttótekjur á framteljanda í Ól- afsfirði, rúmlega 129 þús. kr„ 12 þús. kr. hærri en í þeim kaupstöð- um, sem næst ganga (Keflavík og Kópavogur með 117 þús. kr. meðal- tekjur á framteljanda). Lægstar eru meðaltekjurnar á Sauðárkróki (82,5 þús. kr.), og svo var einnig árið 1962. Siglufjörður hefur næst lægstar meðaltekjur (rúmlega 87 þús. kr.) árið 1963, eins og árið áður. Hlutfallsleg hækkun frá ár- inu 1962 er mest í Ólafsfirði (52,2%), en minnst í Siglufirði (13,0%), á Akranesi (14,3%), Kefla vík (17,7% — þar voru meðal- tekjur hæstar árið 1062) og á Sauðárkróki (18,1%). Sú sýsla, sem hefur hæstar brúttótekjur á framteljanda, er Gullbringu- og Kjósarsýsla (tæpl. 117 þús. kr.), og er hún jafnframt eina sýslan með meðaltekjur fyrir ofan tekjumeðaltal alls landsins 1962 og 1963. Næst koma Snæfells- nessýsla (rúml. 98 þús. kr.) og Ár- nessýsla (tæpl. 95 þús. kr.), eins og var árið áður. Lægstar meðaltekj- ur eru í Skagafjarðarsýslu (67 þús. kr.) og Dalasýslu (69 þús. kr.), og svo var einnig árið 1962. Hiutfalls- leg hækkun tekna er einnig minnst f þessum sýslum frá árinu 1962 til 1963 (16,8% í Dalasýslu, 18,7% í Skagafjarðarsýslu). Mest er hækk- unin hlutfallslega í Vestur-Skafta- fellssýslu (33,5%), Rangárvalla- sýslu (33,1%) og Norður-Múlasýslu (30,1%). Vietnam Framh. af bls. 3. um Norður- og Suður-Vietnam. Sagt er, að allar flugvélarnar hafi snúið aftur heilu og höldnu eftir árásarferðina, sem stóð í 40 mín- útur. Nyrzta árásin var gerð á skotmörk rétt sunnan við Dong Hoi, sem er 72 km. norðan við landamærin. í loftárásunum var önnur rat- sjárstöð, við Vin Sonh, nær al- gerlega eyðilögð. Bandarískur for mælandi sagði, að loftárásimar á Norður-Vietnam hefðu breytzt og nú væri einnig ráðizt á hentug skotmörk, sem yrðu á vegi flug- vélanna. Góðar heimildir í Washington herma, að gas það, sem suður-vi- etnamiskir hermenn nota gegn Vietcong hafi svipuð áhrif og táragas, sem beitt er I óeirðum, og geri fjandmennina óvíga um stundarsakir. Þetta komi einkum að notum í þelm tilvikum, er Vi- etconghermenn skýli sér á bak við óbreytta borgara. í Saigon var sagt, að suður-vletnamiskir hermenn hefðu aðeins þrisvar sinnum beitt gasinu og það hefði ekki reynzt áhrifaríkt. Miðvikudagrur 24. marz 7.00 Morgunútvarp: 12.00 Hádegisútvarp. 13.00 „Við vinnuna": Tónleikar. 14.40 „Við, sem heima sitjum”: Edda Kvaran les löguna „Davíð Noble“ eftir Frances Parkinson Keyes (8). 15.00 Miðdegisútvarp. 16.00 Síðdegisútvarp. •17.40 Framburðarkennsla í dönsku og ensku. 18.00 Útvarpssaga barnanna: „Þrír strákar standa sig“ eftir George Wear. Örn Snorrason les (3). 18.20 Veðurfregnir. 18.30 Þingfréttir — Tónleikar. 18.50 Tilkynningar. — 1930 Fréttir. 20.00 Lestur fornrita: Hemings þáttur Áslákssonar Andrés Björnsson les (2). 20.20 Kvöldvaka: a) Séra Gísli Brynjólfsson flytur frásögu- þátt: Þegar Klaustrið missti kirkju sína; fyrri hluti: Hús Drottins hrörna og falla. b. íslenzk tónlist: Lög eftir Hallgrím Helga- son. c. Gísli Kristjánsson ritstjóri flytur síðasta þátt sinn um danska heiðabændur: Frá ör- birgð til allsnægta. d) Kvæðalög. 21.30 Á svörtu nótunum Svavar Gests skemmtir með hljómsveit sinni. Söngvarar: Ellý Vilhjálms og Ragnar Bjarna son. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Lestur Passíusálma Séra Erlendur Sigmundsson les þrítugasta og þriðja sálm. 22.25 Lög unga fólksins Bergur Guðnason kynnir lögin. 23.15 Við græna borðið Hallur Símonarson flytur bridgeþátt. 23.40 Dagskrárlok. aa. '*** Uppi undir Arnarhéli Uppi undir Arnarhóli oft er á kvöldin sukk. Fáeinir fylliraftar fá sér þar beiskan drukk. Einstaka kjaftakerling kemur þar líka á vakk og líknar sig yfir látinn Ijóðelskan fylli pjakk. í frosti og norðan fjúki er ferlegt aS vera til. Útigangs hrossin eiga erfitt í vetrarbyl. KANKVÍS. ÍÞRÓTTIR Framhald af 4. síðu. Drengjaflokkur. Einliðaleikur. Haraldur Kornílíusson TBR: Magnús Magnússon TBR, 11:7, 11:8. Tvíliðaleikur. Magnús Magnússon og Axel Axelsson TBR: Halldór Jónsson og Finnbjörn Finnbjörnsson 15:6. 15:10. Auglýsið í Alþýðublaðinu Eitthvert stórkostlegasta list munauppboð allra tíma var haldið í London á föstudag- inn var. Þá var Titus Htll, sonur Rembrandts, m. a. sleg inn hæstbjóðanda á ca, 100 millj. ísl. krónur. Vísir. i Austan kaldi eða stinningskaldi. í gær var aust- an og norðaustan átt um land allt. Frost nyrðra 10—15 stig, en 4—8 stig hér sunnanlands. — í Reykjavík var austan kaldi, skýjað, 4 stiga frost. Það er ókei með nám- ið Maður skverar þvf af á nó tæm ... 24. marz 1965 - AIÞÝÐUBLA0IÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.